Valsblaðið - 01.05.2008, Page 39
Lengjubikarmeistarar karla í knattspyrnu 2008. Efri röð frá hœgri: Willum Þór Þórsson þjálfari, Friðrik Eilert Jónsson sjúkra-
þjáifari, Geir Brynjólfsson, Einar Marteinsson, Bjarni Ólafur Eiríksson, Birkir Már Sœvarsson, Atli Sveinn Þórarinsson, Gunnar Ein-
arsson, Albert Brynjar Ingason, Þór Hœngur Hinriksson aðstoðarþjálfari, Halldór Sigtryggur Eyþórsson liðstjóri. Neðri röð frá hœgri:
Guðmundur Benediktsson, René Carlsen, Daníel Hjaltason, Agúst Garðarsson, Baldur Bett, Hafþór Ægir Vilhjálmsson, Sigurbjörn
Hreiðarsson fyrirliði, Dennis Bo Mortensen, Pálmi Rafn Pálmason,Kjartan Sturluson og Baldur Þórólfsson.Ljósm. Ásbjörn Þór.
Hafþór Ægir Vúhjálmsson.
var aðstoðarþjálfari og Ólafur Pétursson
sá um markmannsþjálfun, Friðrik Ell-
ert Jónsson sjúkraþjálfari, Björn Zoéga
læknir og Halldór Eyþórsson liðstjóri.
Leikmannamál
Um leið og íslandsmótinu 2007 lauk þá
fór stjórn knattspyrnudeildar að huga að
næsta tímabili. Þrátt fyrir þá staðreynd
að liðið væri íslandsmeistarar þá var
mikill metnaður og vilji hjá stjórnendum
að gera betur á komandi tímabili. Þó var
ekki hugað að stórbreytingum á liðinu,
aðallega hugsað um að fá meiri breidd í
leikmannahópinn.
Komu: Albert Ingason kom frá Fylki,
Kristján Hauksson frá Fram og Rasmus
Hansen frá Randers í Danmörku. Einn-
ig kom Daninn Henrik Eggerts Hansen á
miðju tímabili frá Fram.
Fóru: Hinn leikreyndi Kristinn Haf-
liðason lagði skóna á hilluna, Sigurður
B. Sigurðsson markvörður gekk til liðs
við Reyni Sandgerði, Andri Valur fvars-
son fór til Fjölnis, Örn Kato Hauksson
gekk til liðs við Hamrana, Geir Brynj-
ólfsson til Víðis og Jóhann Helgason í
Grindavík, Daníel Hjaltason og Kristján
Hauksson voru lánaðir til annarra félaga
yfir sumarið, Daníel til Víkings og Krist-
ján til Fjölnis. Einnig meiddist Daninn
Dennis Bo Mortensen það illa rétt fyr-
ir mót að hann lék ekkert með í sum-
ar og rann hans samningur út í haust. Á
miðju sumri voru svo tveir lykilmenn
seldir til erlendra félagsliða. Birkir Már
Sævarsson seldur til Brann í Noregi, og
svo stuttu síðar var Pálmi Rafn Pálmason
seldur til Stabæk í Noregi.
Árangur á mótum
Árið fór vel af stað hjá karlaliðinu á
árinu 2008, og vann liðið nánast flesta
titla sem hægt var að ná í á undirbún-
ingstímabilinu. Valur varð fslandsmeist-
ari innanhúss og Lengjubikarmeistari
2008 eftir 4-1 sigur á Fram. Liðið lenti
í 3. sæti í sínum riðli Reykjavíkurmóts-
ins. Þá vann liðið Atlantic bikarinn með
því að leggja færeysku meistarana NSÍ
að velli 5-2 í Kómum. Þá vann Valur
meistarakeppni KSÍ þegar þeir lögðu bik-
armeistara FH að velli 2-1 með mörkum
Pálma Rafns. En þá fóm meiðsli að gera
vart við sig í hópnum. Gróft brot sem
Dennis Bo Mortensen varð fyrir í meist-
araleiknum gegn FH varð þess að kross-
bönd í hné slitnuðu illa og hann lék ekki
meira með Val. Var það mikil blóðtaka
fyrir liðið, því Dennis hafði spilað mjög
vel á undirbúningstímabilinu og skor-
að grimmt. Einnig var Helgi Sigurðsson
enn að jafna sig eftir löng meiðsli þegar
þátttaka í íslandsmótinu hófst þann 10.
maí gegn Keflavík. Þrátt fyrir þetta var
það mikið áfall fyrir íslandsmeistarana
oonoo
Bir/cir Már Sœvarsson og Pálmi
Rafn Pálmason fóru í atvinnu-
mennsku a arinu.
Helgi Sigurösson leidir
lukkukrakka inn á völlinn.
dafonevölluri