Valsblaðið - 01.05.2008, Síða 106
Félagsstarf
Sigurlið Vals Old-Boys á Borgarnesmóti
Old-Boys 2008. Standandi frá vinstri:
Hannes Birgir Hjálmarsson, fyrirliði
og þjálfari, Trausti Jósefsson, Birgir
Mikaelsson, nýliði, Stefán S. Stefánsson
og Stefán Arnason. Krjúpandi frá vinstri:
Pétur Stefánsson, varafyrirliði og
aðstoðarþjálfari, Kristinn Kristjánsson
og Örn Þórisson.
Old-Vals í körfu
Árið 2008 hefur verð viðburðarríkt að
vanda hjá Old-Vals í körfunni en hóp-
urinn hefur nú verið starfræktur í ein 15
ár. Vikulegar æfingar eru hjá hópnum og
töflufundir þar sem farið er yfir helstu
áhersluatriði að lokinni æfingu jafnmarg-
ar æfingunum.
Old-Boys lið Vals tók þátt í tveimur
mótum í ár; hjá Skallagrími í Borgarnesi
og Molduxum á Sauðárkróki. Árlegt mót
í Köben hefur verið haldið fjögur síðustu
ár en fresta varð mótinu nú í haust vegna
efnahagsástandsins og gengislækkunar
íslensku krónunnar.
Old-Boys Vals unnu frækinn sigur á
mótinu í Borgamesi annað árið í röð, nú
eftir framlengingu í hnífjöfnum úrslita-
leik gegn Molduxum. Gengið var ekki
jafngott á Sauðárkróki þótt flestir þátttak-
enda haldi því jafnan fram að Valsliðið sé
alltaf sigurvegari í „sameiginlegri stiga-
gjöf‘ fyrir körfuknattleik og skemmtiat-
riði á kvöldvöku Molduxa!
Árshátíð Old-Boys var haldin í októ-
ber á Kaffi París og voru þar ýmis verð-
laun veitt að vanda. Rodman verðlaunin,
sem eru þeirra eftirsóttust, hlaut Kristinn
Kristjánsson (oft kenndur við Reebok)
að þessu sinni. Rodman verðlaunahafar
frá upphafi eru þá orðnir þrír, Einar KR.
Haraldsson, Stefán Sigurður Stefánsson
auk Kristins.
Old-Boys hópurinn hefur jafnan tek-
ið þátt í framkvæmd Hraðmóts Vals á
haustdögum og mættu til aðstoðar þetta
árið eins og undanfarin ár.
Firma- og félagahópamótið í körfubolta
milli jóla og nýárs er einnig í umsjón Old-
Boys hópsins en þar mæta fjölmorg lið og
etja kappi eftir jólasteikina.
Lesa má fleiri fréttir af Old-Boys Vals
hópnum á www.oldboyskarfa.net
Með Valskveðju, Hannes Birgir
Hjálmarsson „Aðal“ Old-Boys Vals í
körfuknattleik
Kletthálsi | sími 590 5044 | www.heklanotaditbilar.is | notadirbilar(«?hekla.is
þAÐERMJÖG GAMAN... Á mJNN.
SÆKJUM MESSU.
WP HtTTVMST NOKKUR OG DONSUM.
þAC 6ETUR VERID SKEMMVLEGT
AD HLUSTA Á GÓDA TÓNLIST SAMAN.