Valsblaðið - 01.05.2008, Blaðsíða 86
séra Friðrik fullorðnum knattspyrnu-
mönnum í Reykjavík til fjölmenns kaffi-
samsætis. Þangað var Valsmönnum sér-
staklega boðið, ásamt KFUM-piltum sem
spiluðu með öðrum knattspyrnufélögum
sem og öllum í kappliðum KR og Fram
eftir því sem best verður séð.8
Samsætið var haldið í húsi KFUM við
Amtmannsstíg og mættu nálægt sextíu
manns ef marka má séra Friðrik. Kvöld-
ið hófst á kaffidrykkju og spjalli en síðan
las Friðrik fyrsta kafla sögunnar Keppi-
nautar sem rúmum áratug síðar var gef-
in út til ágóða fyrir fyrstu utanför Vals.
Hafði Friðrik samið kaflann nóttina áður
af þessu tilefni en hafði ekki framhald í
huga. Sagan hlaut hins vegar svo góðar
undirtektir að um veturinn skrifaði hann
nokkra kafla til viðbótar.9 í lok kvöldsins
flutti séra Friðrik síðan einkar áhugavert
erindi um eðli og tilgang knattspyrnunn-
ar frá eigin sjónarhóli séð.
I upphafi ræðu sinnar kvaðst séra Frið-
rik hafa hlakkað til þessa kvölds „eins
og til stórhátíðar“. Bauð hann Valsmenn
velkomna sem og leikmenn úr „báðum
kappliðunum“ sem keppt höfðu við Val
„á umliðnu móti“. Síðan bætti hann við:
Er jeg sje yður alla samankomna
sitja hjer svo friðsamlega í sátt og
bróðurlyndi dettur mjer í hug lífein-
herjanna í Valhöll; fóru þeir út um
daga og þreyttu leiki og háðu orust-
ur, en að kveldi settust þeir saman að
samdrykkju og voru glaðir sem góð-
ir brœður.10
I kjölfarið lýsti Friðrik því allítarlega
hvernig hann sæi fyrir sér að knattspyrn-
an, sem íþrótt og list, gæti verið „til
hinna mestu þrifa, og hagnaðar bæði fyrir
líkama, sál og anda þeirra sem iðka hana
á rjettan hátt.“" Taldi Friðrik að fótbolta-
leikurinn væri „eitt hið bezta meðal til
þess að æfa sig í sjálfsafneitun og sjálf-
stamningu“ og lagði mikla áherslu á gildi
góðrar samvinnu og drenglyndis.12 En
í ljósi þeirra deilna sem hið haganlega
útskorna íslandshorn hafði valdið árið
áður eru orð séra Friðriks undir lok ræð-
unnar sérstakrar athygli verð. Þar brýndi
hann alla viðstadda:
... að nota þessa íþrótt rjett, ekki svo
að það verði höfuð markmiðið að
vinnaj,] vinna sjer inn „horn “ eða
aðra góða gripi að sigurlaunum ein-
stakra leikja, þvíefvjer ... ekki kom-
um auga á hina uppalandi, göfgandi
og menntandi þýðingu leiksins; og
leikum hann aðeins oss til fordild-
ar og stundargamans, þá munum vjer
sem heimsku launfá horn og klauf-
ir með sem setja oss (tignarröð með
rymjandi nautumP
Eflaust komu þessi orð við kaunin hjá
einhverjum. En séra Friðrik er óhrædd-
ur að stinga á graftarkýlin og í framhald-
inu reynir hann að skerpa fókusinn á það
sem hann telur mestu máli skipta. Hann
hvetur hina ungu menn til að keppa fram-
ar öðru eftir því að verða „betri menn ...
þolgóðir[,] einbeittir, viljafastir, með
hrein og óeigingjörn markmið“.14 Að lok-
um má segja að hann beri smyrsl á sárin
og kveðji vini sína á ljúfum nótum:
Svo keppi hvert fjelagið Fram,
Reykjavíkur15 og Valur hvert við
annað að skara fram úr hinu í öll-
um þeim drengilegu kostum sem
bezt meiga prýða unga karlmenn og
sanna föðurlandssyni.
í Þjónustumiðstöð KFUM og KFUK á
íslandi við Holtaveg 28 er sértök stofa
helguð minningu séra Friðriks Frið-
rikssonar. Stofan er öllum opin til skoð-
unar á almennum skrifstofutíma. Hér má
sjá hœgindastólinn sem séra Friðrik sat
gjarnan í á efri árum. Ofan við stólinn er
mynd afséra Friðriki sem Jóhannes Sig-
urðsson prentari málaði á sínum tíma og
gafPáli bróður sínum. Nýverið gafsonur
Páls, séra Sigurður Pálsson, KFUM og
KFUK á íslandi myndina. Til hliðar sést
hluti af einkabókasafni séra Friðriks.
Valsblaðið 2008