Valsblaðið - 01.05.2008, Qupperneq 33
Ógleymanleg sigurstund.
því og ég er sannfærð um að ég hafi orð-
ið betri þjálfari fyrir bragðið."
- Hvernig tekurðu á agabrotum?
„Agi skiptir öllu máli. Stelpurnar þurfa
að vita hver stjómar og í upphafi tímabils
þarf að leggja fram þær reglur sem gilda
allt keppnistímabilið. Það er of seint að
gera það í maí. Og það gildir einu hvort
um sé að ræða meistaraflokk eða 6.
flokk. Ég hef lagt gríðarlega áherslu á
liðsheildina. í henni eru óllkir einstak-
lingar með ólíkar þarfir og því breiðari
sem aldurshópurinn er því meiri ágrein-
ingur getur komið upp. Mér hefur gef-
ist best að leysa ágreining strax og helst
fyrir framan hópinn. Það hefur einkennt
okkar lið undanfarin ár að vera nánast
algjörlega laus við öll vandamál.“
- Sérðu einhvern mun á nýrri og eldri
kynslóð knattspyrnukvenna?
„Þegar ég var í meistaraflokki voru
leikmenn ekki að leggja það sama á sig
og leikmenn gera í dag og þær höfðu
hreinlega ekki jafn mikla trú á sér. Og ég
sé gríðarlegan mun á líkamlegu ástandi
leikmanna. Það er himin og haf þar á
milli. Öll gæði í dag eru miklu meiri
en áður. Þegar ég var 16 ára fannst mér
ég ekki kunna neitt en í dag eru leik-
menn miklu betur þjálfaðir en áður. All-
ur grunnur mun betri.
Þjálfunaraðferðir eru vitanlega ólík-
ar. Sumir þjálfarar eru af gamla skólan-
um og aðrir hafa tileinkað sér nýja hluti.
Sumir leggja mikið í þjálfun, aðrir minna.
Mikilvægasti eiginleiki þjálfara er sann-
færingarkrafturinn, burtséð frá þjálfun-
araðferðinni. Ef maður nær að sannfæra
hópinn um að maður sér að gera rétta
hluti er maður í góðum málum. í gamla
daga var ég stöðugt í langhlaupum. Vet-
ur var tákn um útihlaup. Stelpurnar mín-
ar hafa nánast aldrei hlaupið langhlaup.
Ég hef fylgst vel með erlendum þjálf-
urum og lagt mig fram um að heimsækja
þau lið sem ná góðum árangri. Ég hef
lagt mestu áherslu á að skoða hvað lið-
in gera á undirbúningstímabilinu. f því
sambandi var ég hrifnust af því sem ég
sá í Þýskalandi. Þaðan hef ég tileink-
að mér hinar alræmdu teygjur sem eru
orðnar frægar að Hlíðarenda. Stelpurn-
ar hafa hlaupið mikið í teygjum, tvær og
tvær saman. Ég nota teygjurnar ekki sem
snerpuæfingar, heldur meira til að ná upp
kraftþoli sem nýtist betur í fótbolta en
hið loftháða þol. Þetta eru erfiðar æfingar
og frekar nýjar af nálinni á undirbúnings-
tímabilinu. Öllum þótti mjög spennandi
að nota þetta í upphafi. í bikarúrslita-
leiknum árið 2006 töluðum við bara um
teygjurnar í hálfleik framlengingarinn-
ar. Við unnum leikinn sálrænt af því að
stelpurnar sannfærðu sig um að þær
væru í súperformi út af þessum æfingum
með teygjumar. Svo hef ég notað „inter-
val“ frekar en að láta stelpurnar hlaupa á
jöfnum hraða. Eflaust em stelpurnar eru
orðnar dálítið þreyttar á þessu og þurfa
líklega tilbreytingu."
- Hvað gerist í þjálfun á nœstu árum
í Ijósi þess að þjálfarar eru flestir það
vel menntaðir að þeir geta komið liðum í
gott líkamlegt form, á mismunandi hátt?
Kemur matarœði, hugarþjálfun, einstak-
lingsþjálfun og fleira í þessum dúr ekki
sífellt sterkara inn?
„Ég er að reka mig á það að
hjá erlendum liðum, þar sem
mataræði leikmanna eru í föst-
um, hollum skorðum, að við
verðum að taka okkur í gegn á
íslandi. Þennan þátt geta allir
íslenskir íþróttamenn bætt því
hér ríkir töluverð skyndibitas-
temning. Leikmenn og þjálfar-
ar em án efa of illa upplýstir.
Og þar fyrir utan hvíla íslend-
ingar ekki nógu mikið. Ég hef
lagt of litla áherslu á þetta. Öll
Iitlu atriðin skipta miklu máli.
En þetta snýst líka um íslenska
menningu. Ef einhver ætlar að
skera sig úr, borða hollari mat,
hvíla sig meira þá gemm við
nánast grín að viðkomandi."
- Hvað eiga yngri iðkend-
ur í Val að gera ef þeir vilja
skara fram úr?
„Það er klárt mál að leik-
menn þurfa að æfa meira sjálfir, utan
æfingatíma. Þetta hljómar sem klisja en
er engu að síður staðreynd. Það er verið
að kenna marga frábæra hluti á æfingum
og svo ætla menn bara að mæta á næstu
æfingu til að halda þeim áfram. Leik-
menn eiga að æfa þetta á milli æfinga-
tíma og koma betri á næstu æfingu. Þó
ekki væri nema að gefa sér 15 mínútur
á dag. Leikmenn eiga að æfa styrkleik-
ana jafnt sem veikleikana. Krakkar ættu
líka að horfa meira á fótbolta til að öðl-
ast meiri leikskilning. Ég hef rekið mig
á það í leikjum okkur við erlend lið að
okkur skortir leikskilning.“
- Efþú vœrir einráð í Val hverju mynd-
irðu breyta í yngri flokka starfinu til að
lyfta þvíupp á hœrra plan?
„Ég myndi ráða yfirþjálfara yngri
flokka karla og annan yfirþjálfara yngri
flokka kvenna sem væru ekki að þjálfa
neinn flokk, heldur eingöngu ráðnir til
að vera á æfingasvæðinu á meðan æfing-
ar eru hjá yngri flokkunum. Viðkomandi
væri ráðinn til þess að vinna á þessum
tíma til að fylgjast með og veita þjálfur-
um aðhald. Samt hefðu þjálfarar vitan-
lega þokkalega frjálsar hendur.“
- Hvert er draumamarkmið þitt sem
þjálfari?
„Mig dreymir vitanlega um að þjálfa
íslenska kvennalandsliðið en minn æðsti
draumur er að gera félagslið að Evrópu-
meisturum. Einn góðan veðurdag ætla
ég mér að verða Evrópumeistari og helst
myndi ég vilja verða það með Val.“
„Einn góðan dag œtla ég mér að verða Evrópu-
meistari. “
Valsblaðið 2008
33