Valsblaðið - 01.05.2008, Page 56

Valsblaðið - 01.05.2008, Page 56
Fríöur hópur foreldra á Shell-mótinu í Eyjum sl. sumar. ► A I- - i' \ Ég hvet þvf alla Valsfoneldra til aö karna aö barna- og unglingasiarfinu hjá llal. Það er bæði gefandl og skemmtilegt Margt hefur verið skrifað á undanförn- um árum um hlutverk foreldra í íþrótta- iðkun barna sinna. A tímabili var mik- ið um gagnrýni á „brjálaða“ foreldra á hliðarlínunni sem kunnu sér ekki hóf við hvatningu barna sinna. Foreldrar tóku ekki þátt áður fyrr Ég er orðinn svo gamall að þegar ég var krakki og æfði boltaíþróttir sást varla nokkurt foreldri á íþróttaleik barna sinna og hvað þá að fylgjast með æfingatíma. Foreldrar mínir komu held ég aldrei á íþróttaleik þegar ég var að keppa sem barn og unglingur. Ég hugsa að þau hafi aldrei hitt þjálfara sem ég var með á þessum árum og hvað þá rætt við þá. Þau voru ekkert einsdæmi. Foreldrar vom bara ekki með. Mikil breyting Ég veit ekki hvenær þetta breyttist? Ein- hvern tíma milli 1985 þegar ég hætti í fótboltanum og fram til áranna eft- ir aldamótin 2000 þegar sonur minn var að byrja sína íþróttaiðkun. Og breyting- in var frá því að engir foreldrar sáust á íþróttaviðburðum barna sinna yfir í tugi snarbrjálaðra foreldra hlaupandi og garg- andi á hliðarlínunni. Kannski tengdist það þessum knatt- spyrnumótum sem eru nú haldin út um allt land á sumrin um helgar fyrir yngstu krakkana. Slík mót þekktust ekki þegar ég var barn og sennilega byrjuðum við krakkarnir að æfa skipulega miklu seinna þá en nú er gert. Það segir sig auðvitað sjálft að þegar börn em í 7. og 8. flokki, frá 5 ára aldri, að fara á skipulögð marga daga knattspyrnumót, að þá fara foreldr- arnir með. Mikið að gera í foreldrastarfi Allavega var þetta svona þegar son- ur minn hóf æfingar hjá Val. Foreldrarn- ir fengu um leið nýtt hobbý. Að fylgj- ast með æfingum og framgangi barnsins. Ekki bara að skutla og sækja heldur taka þátt í starfinu af fullum þunga. Skipu- leggja ferðir, afla fjár, taka að sér farar- stjórn, fylgjast með æfingum, horfa á leiki, samskipti við þjálfara, aðra foreldra og félagið. Og það varð nóg að gera, með bam í tveimur íþróttagreinum, nánast fullt starf meðfram annarri vinnu. A sex ámm hef- ur verið farið þrisvar á Akranes, tvisvar til Eyja og tvisvar norður á Akureyri og að auki margoft á minni mót í fótboltanum og nú í 5. flokki eru spiluð full Reykjavíkur- og íslandsmót með tilheyrandi ferðalög- um. Handboltinn keyrir allt sitt íslandsmót á helgarmótum, svo ferðir til Akureyrar og til Eyja eru fastir liðir þar líka. Starf foreldra gríðarmikilvægt Að mínu mati er þetta foreldrastarf gríð- arlega mikilvægt. Það er ljóst að íþrótta- og keppnisferðahefðin sem er komin á hér á landi er foreldmm að stórum hluta að þakka því þetta gæti aldrei geng- ið upp öðmvísi. Foreldrar eru þjálfur- um og félaginu hvatning og stuðningur. Mikilvægast er þó að áhugi og hvatning foreldra styrkir barnið til áframhaldandi íþróttaiðkunar. Hér þarf að feta milliveg- inn því „brjáluðu“ hliðarlínu-pabbarnir og mömmurnar em sem betur fer hverf- andi í dag enda gera þau börnum sínum ekki mikinn greiða. Mikill áróður hefur verið rekinn undanfarin ár til að útrýma ósæmilegri hegðun foreldra á íþróttamót- um og sá áróður hefur skilað sér. Hóf er best í öllu Það er hófleg hvatning og áhugi ásamt því að foreldrarnir séu starfandi í félaginu á sínum forsendum sem ég tel að skili bömunum mikilli ánægju og hvetur þau til að halda áfram að æfa og spila. Flest- ir foreldrar gera sér grein fyrir því að all- ar þessar æfingar skila að öllum líkind- um ekki nýjum Eiði Smára eða Ola Stef. Kannski verður 1% barna afreksfólk í íþróttum. Það em aðrir hlutir sem eru miklu mik- ilvægari. Við foreldrar vitum nú og rann- sóknir hafa sýnt að því lengur sem börn- in okkar haldast í skipulögðum íþróttum því minni líkur eru á að þau leiðist út í að nota vín, tóbak eða eiturlyf. Það hafa svo aðrar rannsóknir sýnt að eftir því sem tekst að seinka fyrstu áfengisnotkun hjá unglingum því meiri líkur em á að allt fari vel og börnunum okkar farnist vel í lífinu. Tökum þátt í foreldrastarfinu Séra Friðrik sá mikli brautryðjandi hafði miklar hugsjónir fyrir Val og íþróttaiðkun barna og unglinga. Hann var svo sann- arlega á undan sinni samtíð og sá gildi íþróttanna í forvarnarskyni. Höfum hann til fyrirmyndar þegar við styðjum við bama- og unglingastarfið hjá Val. Tök- um þátt og látum til okkar taka en látum aldrei kappið bera fegurðina ofurliði. Eftir Sigþór Sigurðsson foreldraáði 56
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Valsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.