Valsblaðið - 01.05.2008, Page 60
Valsstelpurnar komust í B-úrslita-
leikinn á körfuhátíðinni í Gautaborg
Dagana 1.-4. maí héldu 12 Valsstelpur
á körfuhátíðina í Gautaborg (Götaborg
Basket Festivalen). Þetta mót hefur ver-
ið haldið í 30 ár og í þetta sinn mættu um
500 lið á mótið.
Þar sem leikimir á mótinu eru frek-
ar stuttir og lið eru ekki örugg með nema
fjóra leiki, þá ákvað þjálfari Vals (Krist-
jana Magnúsdóttir) að vera með tvö lið
(1993 og 1994). Valshópurinn saman-
stóð af tveimur 1993 stelpum, sex 1994,
tveimur 1995 og tveimur 1996. Það var
því ljóst að það myndi mæða mikið á
stelpunum, því flestar voru að leika 1-3
ár upp fyrir sig í aldri og stór hluti liðsins
þurfti að leika með báðum liðunum, þeg-
ar það væri mögulegt.
Slakt gengi í 1994 stelpuflokknum í
riðlakeppninni
í 1994 stelpuflokknum voru 56 lið
og vom þau í 14 riðlum. 1994 liðinu
gekk illa í riðlakeppninni og tapaði öll-
um leikjum sínum. Hlutir eins og ferða-
þreyta, leikir snemma að morgni, tíma-
mismunur, reynsluleysi og aðrir hlutir
komu m.a. í veg fyrir betri úrslit. Það var
því hlutskipti Valsliðsins að leika í B-
úrslitum og vom þau leikin í formi bik-
arkeppni.
Frábær árangur í B úrslitakeppninni
í 32 liða úrslitum mætti Valur danska
liðinu SISU. Nú vom Hlíðarendastelp-
urnar búnar að yfirvinna flesta hlutina
sem tmfluðu þær fyrstu daga mótsins.
Þær mættu vel einbeittar í leikinn, léku
grimma 2-3 svæðisvörn og nýttu hæðina
sína vel í vörninni og áttu þær dönsku í
miklu basli í sókninni. Leikurinn endaði
með léttum sigri Vals 20-4.
I 16 liða úrslitum mætti Valur sænska
liðinu KFUM Central Basket sem hafði
leikið ágætlega á mótinu. í þessum leik
vom Valsstelpurnar aðeins sex þar sem
1993 liðið var að leika á sama tíma í öðm
húsi. Stóm leikmenn Vals lentu í miklum
villuvandræðum í þessum leik, en frábær
vöm tryggði góðan sigur, 19-15.
Síðasti leikur laugardagsins var leik-
ur í 8 liða úrslitum á móti sænska liðinu
Sandvika. Þær sænsku höfðu staðið sig
vel á mótinu. Enn vom 1994 stelpurnar
aðeins 6. I þessum leik héldu þær áfram
að leika hörkuvörn og sóknin var betri en
oft áður. Valur var undir í hálfleik, 8-9. í
seinni hálfleik lék Valur mjög vel og náði
að landa góðum sigri 20-11. Með þessari
góðri frammistöðu á laugardeginum var
Valur komið í undanúrslit.
í undanúrslitum á sunnudeginum var
andstæðingurinn sænska liðið Tumba
Goif. Það hafði lent í erfiðum riðli og
var einni körfu frá því að komast í A-
úrslitin. Þetta lið spilaði ágæta vörn, var
að skora nokkuð mikið og hafði leikið
vel í B-úrslitunum. Það var því ljóst að
Valur þyrfti að leika vel til að komast í
úrslitaleikinn. Valsstelpurnar mættu vel
stemmdar í leikinn og léku frábæra vörn
og ágæta sókn á fyrstu mínútum leiksins
og komust yfir 8-0. í þessum leik var Val-
ur með fullmannað lið og notaði Krist-
jana þjálfari alla leikmenn mikið. Seinni
helmingur fyrri hálfleiksins var barning-
ur og Valur var yfir í hálfleik 10-0. Leik-
urinn jafnaðist aðeins í seinni hálfleik og
endaði með sigri Vals 17-12.
Slepptu úrslitaleiknum vegna heim-
ferðar
Þar með var ljóst að Valur var kominn í
úrslitaleikinn sem átti að fara fram síðar
um daginn. Ferðaskrifstofa sú sem skipu-
lagði ferðina fyrir Val hafði annaðhvort
ekki gert ráð fyrir því að Valur kæmist
alla leið í úrslitaleikinn eða að hún vissi
ekki hvenær mótið myndi enda, því að
Valur þurfti að sleppa úrslitaleiknum til
að komast tímanlega í flug í Kaupmanna-
höfn um kvöldið. Forsvarsmenn Vals töl-
uðu við mótstjóra og báðu um að úrslita-
leiknum yrði flýtt, en mótstjórnin treysti
sér ekki til þess. Valsstelpurnar sýndu
mikinn styrk og þroska og tóku þessari
niðurstöðu nokkuð vel.
Misjafnt gengi hjá 1993
stelpuflokknum
I 1993 stelpuflokknum voru 33 lið og
voru þau í 8 riðlum. Valsstelpumar léku
ekki vel í fyrstu tveimur leikjunum í riðl-
inum og töpuðu stórt.
Kristjana þjálfari undirbjó liðið mjög
vel fyrir þriðja leikinn í riðlinum gegn
Tyresö Basket og notaði yngri stelpurn-
ar meira en hún hafði gert í fyrri leikjun-
um tveimur. Þessi taktík gekk ágætlega
og Valur lék prýðisgóðan fyrri hálfleik
þar sem Rebekka fór á kostum. Valur
var undir í hálfleik 16-18. Það var mik-
ill barningur í seinni hálfleik og staðan
var 18-18 mjög lengi. Þegar um 20 sek-
úndur voru eftir þá jafnaði Valur, 22-22.
60
Valsblaðið 2008