Valsblaðið - 01.05.2008, Blaðsíða 64
wm ænu
gmík ^-fc t% #ÍUa Aiui ■ pAHÍAhAMA
ao lara a pariina cup i bayiaoapg
Eftin Bryndísi Bjapnadótlup 4. flnkki Vals í handbnlta
Við vorum búnar að hlakka til að fara aft-
ur til Partille eftir ferðina 2006. Það er
að segja í 731 dag. Við fórum 12 stelp-
ur ásamt tveimur farastjórum og einum
FRÁBÆRUM þjálfara, Bjarneyju Bjarna-
dóttur. Einnig komu 3 aðrar mömmur
með sem við sáum voða lítið. Við hitt-
umst á BSÍ um hádegið mánudaginn 30.
júní og tókum rútu saman upp í Leifsstöð.
Við flugum um 3 leytið til Gautaborgar
og gekk ferðin vel. Við sváfum í Katrinel-
und skóla með tveimur öðrum íslensk-
um liðum, strákum úr FH og stelpum úr
Fjölni ásamt fullt af sænskum strákum.
Klósettferðirnar voru óvenju margar þar
sem strákarnir á ganginum voru frjálsleg-
ir með að vera berir að ofan. Við vorum
líka ekki feimnar með að fara oft niðrí
mötuneyti til að „borða“ með strákunum.
Dagur 2. Kíkt á strákana
Annan daginn fórum við í Skara Som-
merland eins og öll önnur íslensk lið. Og
svo þegar við ætluðum að fara aftur í rút-
una með FH strákunum þá vorum við
búnar að týna Elmu og Elvu. En á end-
anum fundust þær í barnalauginni. Um
kvöldið var opnunarhátíðin sem var með
sama sniði og fyrir tveimur árum. Það
var gaman og fyrir þær okkar sem voru
þarna í annað sinn og gátum sungið með.
Skólinn sem við gistum í var við Ullevi
íþróttaleikvanginn í Gautaborg. Þeg-
ar við komum í skólann eftir opnunarhá-
tíðina tókum við eftir að fólk var búið að
safnast saman við leikvanginn. Við töl-
uðum við fólkið og komumst að því að
þau voru að bíða eftir tónleikum með
Bruce Springsteen sem áttu að veru eftir
2 daga. Sumir voru búnir að vera þarna í
viku. Sumir voru að fara á fyrstu tónleika
sína með Springsteen en aðrir voru jafn-
vel búnir að elta hann um allan heim.
Dagur 3. Góð byrjun á mótinu
Við kepptum fyrsta leikinn okkar og unn-
um með miklum mun, seinna um daginn
kepptum við annan leik við hollenskt lið,
vanmatið var mikið hjá okkur, enda all-
ar minni en við en eftir lélegan leik náð-
um við að jafna í lokin og fá eitt stig sem
voru mikil vonbrigði fyrir okkur. Eftir
leik ákváðum við bara að skella okkur í
Lieseberg skemmtigarðinn og keyptum
okkur tveggja daga passa til að vera viss-
ar um að komast í öll tækin. Heimsóknin
tókst vel og allar skemmtu sér vel. I ferð-
unum í Liseberg garðinn var bæði far-
ið í tæki og reynt að vinna til verðlauna
í ýmsum tækjum. T.d. reyndu Kata og
Salvör mikið að vinna stórt Kex súkkul-
aðistykki í lukkuhjóli en ekkert gekk. Að
lokum notuðu þær síðustu krónurnar sín-
ar í skot í körfu þar sem Kata notaði „3
pointers" hæfileika sína í körfu og vann
þar risastóran bangsa sem að sjálfsögðu
fékk nafnið Kex, eftir súkkulaðistykkinu
sem þær langaði svo mikið í.
Dagur 4. Léttur leikur og slökun
Við áttum einn leik sem var léttasti leik-
urinn í ferðinni og að lokum enduðum
64
Valsblaðið 2008