Valsblaðið - 01.05.2008, Page 94
Vil sjá fleiri stuðningsmenn á leikjum Vals
Ég ákvað að skrifa ég smá pistil sem
almennur stuðningsmaður Vals.
Það sem ég hef velt töluvert fyrir mér
í gegnum tíðina hvað fámennt sé á Vals-
leikjum, veit það samt fyrir víst að það
eru til margir Valsmenn og konur meira
segja gríðarlega margir. Ég endurvakti
ásamt nokkrum góðum Valsmönnum
Stuðningsmannafélag Vals sem við end-
urnefndum Stuðara sem var mjög öflug
stuðningsmannasveit snemma á níunda
áratugnum.
Það sem kom þessu eiginlega af stað
var hversu lítil stemning var á Valsleikj-
um eiginlega engin, ég hafði varla heyrt
kallað úr stúkunni Áfram Valur í einhver
ár svo að ég var að vona að þetta myndi
hleypa einhverju kappi í hinn almenna
stuðningsmann Vals. Þetta gekk vonum
framar og vorum við Baldur Orri á nán-
ast hverjum einasta leik í þrjú ár, berj-
andi á húðir, á handboltaleikjum bæði
karla og kvennamegin og í fótboltanum,
taldi ég að gamni mínu leikina sem við
sóttum eitt árið og voru þeir nærri 100
sem eru ansi margir klukkutímar, en ég
sé ekki eftir einni einustu mínútu enda
hefur það verið mitt líf og yndi að hvetja
Val til dáða.
Á þessum tíma fjölgaði töluvert Vals-
mönnum á leikjunum og miklu skemmti-
legri stemning myndaðist. Nú hafa aðr-
ir tekið við keflinu í forystusveit Stuðara
og eru þeir að gera fína hluti.
Hver eru aliir Valsararnir?
Það sem mér er hugfangið er hvar eru
allir Valsararnir? Fólk sem eyddi tugum
klukkutíma í æfingar á mánuði hverjum
og hætti svo að æfa þegar fullorðinsár-
in nálgast og hafa ekki sést á Hlíðarenda
síðan. Hvar er þetta fólk? Eðlilega er það
gangur lífsins að eignast fjölskyldu en er
ekki hægt að heimsækja gamla klúbbinn
sinn og horfa á nokkra leiki, taka maka
og börnin með og rekast á gamla kunn-
ingja?
Skora á alla Valsmenn að mæta á leiki
Á þessum tímum þegar kreppan ógurlega
skellur yfir okkur öll, er þá ekki upplagt
að skella sér á leik og eyða kannski rúmri
klukkustund í góðum hópi og hvetja sitt
lið og fá hugann til þess að gleyma þess-
Gestur Valur tekur virkan þátt á pöllunum.
um erfiðleikum í þjóðfélaginu um stund.
Allavega langar mig að skora á alla Vals-
menn að mæta á leiki og taka með sér
kunningja, það eru alltof mikið af texta-
varps Völsurum sem fylgjast með gangi
félagsins á síðum textavarpsins.
Svo í lokinn langar mig að óska Val-
mönnun gleðilegra jóla og farsældar á
nýju ári.
94
Valsblaðið 2008