Valsblaðið - 01.05.1994, Qupperneq 12

Valsblaðið - 01.05.1994, Qupperneq 12
Ólafur Stefánsson, einn lykilmanna Vals og framtíðarskytta í landsliðinu. Ho rnið hjálpaði mér Ólafur Stefánsson landsliðsmaður hjá Val hefur átt við meiðsli að stríða í vetur Texti: Jóhann Ingi Myndir: Arni G Ragnarsson Ólafur Stefánsson á marga íslands- og Reykjavíkurmeistaratitla að baki, hann tapaði aldrei leik með yngri flokkum Vals þegar hann var á eldra ári en sagði lið hans hafa átt í erfiö- leikum gegn Fram þegar hann var á yngra ári. Hann þekkir því lítið annað en að vinna og var eins og allir vita, Islandsmeistari með meistara- flokki Vals á síðasta keppnistímabili. Óli á núna við meiðsli að stríða og segist ekki verða orðinn góður fyrr en í byrjun febrúar. Það er eins gott að hann komi sér fljótt í gott form þar sem landsliðið þarf á kröftum hans að halda fyrir HM'95. MAÐUR f MANNS STAÐ HJÁ VAL „Ég reikna með að verða kominn á fullt skrið hjá Val í byrjun febrúar. Endur- hæfmgin gengur mjög vel en Stefán læknir passar að maður reyni ekki of mikið á sig. Þetta tekur allt sinn tíma og er bara líffræðileg þróun sem ekki er hægt að flýta. Auðvitað er svekkjandi að hafa meiðst en kannski lán í óláni þar sem ég er núna á fullu við lestur fyrir læknisffæðina, ég hef varla tíma til að koma á leiki svo meiðslin voru bara smá bónus. Stundum er samt erfitt að sitja og horfa á en þegar vel gengur hjá Val er þetta allt í lagi. Það kemur alltaf maður i manns stað hjá Val, liðið hefur mikla breidd og alltaf er hægt að dekka upp svona 95% þeirra leikmanna sem meiðast eða hætta. Ég held að það að hafa svona mikla breidd sé ein af ástæðum fyrir góðu gengi okkar en við erum líka með sterka leikmenn og góðan þjálfara." HÖFUM NÁÐ TOPPNUM „Peningagreiðslur til leikmanna hafa náð hámarki og eiga eftir að minnka í VALSBLAÐIÐ 12

x

Valsblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.