Valsblaðið - 01.05.1994, Page 38

Valsblaðið - 01.05.1994, Page 38
í minnineu látinna Valsmanna Albert Guðmundsson Fæddur: 5. október 1923 Dáinn: 7. apríl 1994 Einhver litríkasti íþrótta- og stjómmála- maður landsins á þessari öld, Albert Guðmundsson, lést hinn 7. apríl s.l. Hann fæddist í Reykjavík hinn 5. október 1923, sonur hjónanna Guð- mundar Gíslasonar gullsmiðs og konu hans Indíönu Bjamadóttur. Þau hjón áttu átta böm, sjö syni og eina dóttur og var Albert þeirra elstur. Albert ólst upp í gamla austurbænum í Reykjavík og hneigðist snemma til knattspymu. Jafiiframt kynntist hann ungur að ámm starfi KFUM svo og stofnanda þess og leiðtoga til margra ára, séra Friðrik Friðrikssyni. Kynni hans af séra Friðrik höfðu mikil áhrif á Albert og minntist hann gamla mannsins oft. Knattspyman var í hávegum höfð innan KFUM enda séra Friðrik orðlagður áhugamaður um íþróttina. Leið þvi ekki á löngu áður en að Albert hóf æfingar hjá Knattspymufélaginu Val enda tengslin milli KFUM og félagsins ákaf- lega náin. Fljótt kom í ljós að Albert bjó yfir fágæt- um eiginleikum sem knattspymumaður. A uppvaxtarárum sínum spilaði hann með öllum yngri flokkum Vals. Strax og aldur leyfði vann hann sér fastan sess í meistaraflokki félagsins en á þessum ámm var lið Vals mjög sterkt. I liðinu vom á meðal annarra kappar eins og Hermann Hermannsson, markmaður, Grímar Jónsson, Frímann Helgason, Sigurður Ólafsson, Snorri Jónsson og Ellert Sölvason (Lolli) svo nokkrir séu nefndir. Með Val vann Albert marga glæsta sigra. En það vom ekki aðeins félagar Alberts og samlandar sem fengu að njóta hæfi- leika hans sem knattspymumanns, sem sumir hafa líkt við töfrabrögð. I kjölfar brottfararprófs frá Samvinnuskólanum árið 1945 hélt hann til framhaldsnáms í verslunarfræðum í Glasgow. Ekki hafði hann dvalið þar lengi þegar forsvars- menn stórliðsins Glasgow Rangers höfðu spumir af einstökum hæfileikum hans og buðu honum að koma til félagsins. Eftir skamma viðdvöl hjá Rangers lá leiðin til London en þar spil- aði Albert með hinu fomffæga liði Arsenal. Þar sem ekki tókst að afla atvinnuleyfis fyrir Albert í Englandi varð dvölin hjá Arsenal ekki lengri en rúm- lega eitt ár. Það var síðan á árinu 1947 sem Albert gerði atvinnumannssamning við franska knattspymufélagið Nancy. Hann var ekki aðeins fyrsti Islending- urinn sem gerðist atvinnumaður í knattspymu heldur mun hann vera lýrsti atvinnuknattspymumaður Norðurlanda. Eftir ársdvöl hjá Nancy lá leiðin til hins fræga og auðuga félags AC Milan á Ítalíu en með því liði lék Albert á hátindi ferils síns. Hann var dáður af áhangend- um og virtur af andstæðingum enda á þessum árum talinn einhver besti leik- maður í Evrópu. Eftir að samningurinn við Milan rann út lá leiðin aftur til Frakklands, nú til Parísar þar sem hann lék með Racing Club de Paris. Feril sinn sem atvinnuknattspymumaður endaði Albert síðan hjá ffanska félaginu Nizza. Með Nizza náði hann m.a. því lang- þráða markmiði að verða Frakklands- meistari í knattspymu. Arið 1954 sagði Albert skilið við atvinnuknattspymu og snéri heim eftir næstum áratugs frægðar- for um helstu knattspymuvelli Evrópu. Albert er að sönnu einhver mesti affeks- maður í iþróttum sem Island hefur alið. Hann var dáður og virtur af milljónum manna í álfunni sem einhver glæsilegasti leikmaður síns tíma. Slíkum árangri og ffama í íþróttum ná ekki aðrir en þeir sem búa bæði yfir gífurlegum líkam- legum og andlegum styrk, sjálfsaga og eru reglusamir. Yfir þessum kostum bjó Albert í ríkum mæli. Að auki var atorku hans og drenglyndi við bmgðið. Því kom ekki á óvart þó að hann hafi eftir heim- komuna gerst áhrifamaður í félags- málum, fyrst einkum innan íþrótta- hreyfingarinnar, og síðar sem einhver áhrifamesti og litríkasti stjómmálamaður landsins um árabil. Þrátt fyrir hinn glæsta frama erlendis og síðar erilsöm störf hér heima gleymdi Albert aldrei gamla félaginu sínu sem hafði fóstrað hann í æsku. Hann var stoltur af því að vera Valsmaður rétt eins og félagið er stolt af þeim heiðri að hafa átt sinn þátt í þvl að búa hann undir framabrautina. Valur gat alltaf reitt sig á stuðning hans þegar mikið lá við. Einkum var Albert félaginu oft innan handar í sambandi við þátttöku þess í þeim fjölmörgu Evrópukeppnum sem það hefur tekið þátt í á liðnum áratugum. Þar hefur ætíð komið sér vel að hafa að bakhjarli jafn vel kynntan og reynslu- ríkan mann úr evrópskri knattspymu og hann. Albert hefur verið sæmdur öllum helstu heiðursmerkjum Vals, síðast gull- orðunni 1971. Albert kvæntist fiú Brynhildi Hjördísi Jóhannsdóttur 1946, orðlagðri sómakonu sem lifir eignmann sinn. Þau eignuðust þrjú böm, þau Helenu Þóm, Inga Bjöm og Jóhann Halldór. Eins og oftast falla eplin sjaldnast langt ffá eikinni því öll böm Alberts hafa tekið virkan þátt bæði í leik og starfi innan Vals. Ingi Bjöm var t.d. einhver dáðasti leikmaður meist- araflokks Vals á síðustu tveim áratugum auk þess sem hann þjálfaði meistara- flokk félagsins ffá 1989 til 1992 með mjög góðum árangri. Að leiðarlokum þakka aldnir sem ungir Valsmenn Albert Guðmundssyni margþættar gleði- og ánægjustundir í leik og starfi á liðnum áratugum. Þeir munu ætíð minnast hans sem einhvers besta og fræknasta sonar Knattspymu- félagsins Vals. Frú Brynhildi, bömum þeirra, bamabömum og öðmm ætt- ingjum og vinum vottar félagið sína innilegustu samúð. Knattspyrnufélagið Valur VALSBLAÐIÐ 38

x

Valsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.