Valsblaðið - 01.05.2002, Síða 37
Eivor Pála hefur barist við of háan blóðþrýsting í 10 ár
Allt bendir til þess að Eivor Pála Blön-
dal, fyrirliði meistaraflokks í handbolta,
leggi skóna á hilluna næsta vor. Hún hef-
ur þurft að glíma við of háan blóðþrýst-
ing í áratug og samkvæmt læknisráði
verður hún að fara að lifa „venjulegu"
lífi ef hún vill ekki eiga á hættu að verða
fyrir frekari skaða af völdum sjúkdóms-
ins. Eivor Pála á hátt í 300 meistara-
flokksleiki að baki með Val og hefur ver-
ið fyrirliði síðustu árin. Hún er aðeins 26
ára gömul.
„Það er öllum ráðgáta af hverju þessi
hái blóðþrýstingur stafar en ég hef getað
haldið honum niðri síðastliðin ár með
lyfjum. Ég er með 160/120 í þrýsting og
eru neðri mörkin hjá mér hærri en hærri
mörk hjá flestum sem hafa eðlilegan
blóðþrýsting. Lyfin sem ég tók um árabil
hættu að virka, eflaust vegna þess að
ónæmiskerfið var búið að fá nóg, þannig
að ég þurfti að fá ný lyf. Þau fóru hins
vegar það illa í mig að ég hrundi niður í
leik og þurfti að vera rúmliggjandi um
tíma. Núna er búið að finna annað lyf
sem slær á blóðþrýstinginn en engu að
síður verð ég taka því rólega því annars
er álagið á æðamar og hjartað of mikið.
Alagið verður að vera innan skynsam-
legra marka því það hefur slæm áhrif á
mig, andlega sem líkamlega. Það segir
sig sjálft að keppni í 1. deild í handbolta
er ekki heppileg fyrir fólk með of háan
blóðþrýsting. Og þar fyrir utan hef ég
verið að þjálfa 2-3 flokka á hverjum vetri
en tók mér frí í vetur til að geta undirbúið
mig fyrir mastersnám í stjómunarfræði."
Eivor hefur ekki gert það upp við sig
hvort hún hætti endanlega eftir yfirstand-
Eivor Pála, fyrirliði meistaraflokks, hef-
ur lítið getað leiki sökum of hás blóð-
þrýstings.
andi keppnistímabil eða hvort hún
„hangi“ eitthvað áfram á bekknum með
stelpunum. „Ég hef æft 2-3 sinnum í
viku síðustu vikur og verið á bekknum í
leikjum, einkum vegna þess að það eru
svo margar stelpur í meiðslum. En það er
líf eftir handboltann og kannski tímabært
að líta í kringum sig“.
Valslög
Við leikum allir saman
Við leikum allir saman, gerum
mark, mark, mark.
Við leikum allir saman, gerum
mark, mark, mark.
Við leikum allir saman,
létt það verður gaman,
við leikum allir saman, gerum mark.
Á næsta mann, hvar er hann?
Á næsta mann, hvar er hann?
Það er líf og fjör í leikjum okkar,
Valsmenn hlæjum,
ha, ha, ha, ha, ha
hí, hí, hí, hí, hí.
Við leikum allir saman, gerum mark.
Valssöngur
Jakobs Frímanns Magnússonar
Áfram Valur, vinnum leikinn.
Nú vantar hvorki dug né þor.
Að loknum leik fer héðan hreykinn
hópur vor.
V! Úr víti verður mark.
A! Aldrei óþarfa spark.
L! Limaburður mestur.
VALUR! Er og verður bestur.
Áfram Valur, vinnum leikinn.
Nú vantar hvorki dug né þor.
Að loknum leik fer héðan hreykinn
hópur vor.
V! Vöm í sókn skal snúið.
A! Aldrei vort lið er lúið.
L! Liðsaukinn er hraustur.
VALUR! Þú ert alltaf traustur.
Endurtekið í Valstakti
Vogun vinnur vogunn tapar
Valur vinnur!
Valsblaðið 2002
37