Valsblaðið - 01.05.2002, Blaðsíða 47
Ungir Valsarar
Þórður Steinar Hreiðarsson er einn af efni-
legustu knattspymumönnum Vals og var
fulltrúi félagsins í landsliði íslands skipað
leikmönnum 17 ára og yngri sl. sumar.
Hann gekk upp í 2. flokk á haustdögum og
er á fyrsta ári í Kvennaskólanum, segir frá-
bært að vera þar. En hvemig gekk honum
með 3. flokki síðastliðið sumar?
„Okkur gekk mjög vel, við urðum í 2.
sæti á Islandsmótinu í B-riðli, komumst
reyndar ekki í úrslitakeppnina en skil-
uðum flokknum upp f A-riðil.“ Þórður
segist spila sem senter en hann hefur
einnig leikið á kantinum og reyndar
alls staðar á vellinum.
Foreldrar Þórðar Steinars eru Vals-
aramir Þórey Einarsdóttir og Hreiðar
Þórðarson. „Ég byrjaði að æfa með
Val á eldra ári í 5. flokki og mér hefur
líkað mjög vel.“
— Þú fékkst að æfa með hollenska lið-
inu Heerenveen í haust, hvernig var
það?
„Já, við Ari Freyr Skúlason fórum út
og það var frábært. Okkur gekk báðum
mjög vel. Sá sem sá um liðið sagði að ég
þyrfti að bæta tæknina og ég ætla að
vinna í því á næstunni. Mér fannst við
standa vel að vígi í samanburði við hol-
lenska jafnaldra okkar.“
— Hvernig hefur gengið með landslið-
inu?
„Mjög vel. Ég spilaði einn æfinga-
leik áður en ég fór með liðinu til Sví-
þjóðar þar sem við tókum þátt í Norður-
landamótinu. Við urðum mótsmeistarar
þótt við hefðum tapað fyrir Englendinum
í úrslitaleik 0:1 með sjálfsmarki því þeir
voru bara gestir á mótinu. Svo spiluðum
við í Evrópuriðlinum í sumar og það var
mjög gaman.“
— Áttu þér einhverjar fyrirmyndir?
„Ég held upp á Argentínumanninn
Crespo sem leikur með Inter Milan og
Beckham hjá United. Báðir frábærir.“
— Átt þú þér markmið sem knatt-
spyrnumaður?
„Draumurinn er auðvitað að komast
að sem atvinnumaður en það tekst ekki
nema maður haldi einbeitingu á öllum
æfingum og leggi sig alltaf 100% fram.
Það kemur víst ekkert að sjálfu sér í bolt-
anum, sem betur fer.“
— Hver stofnaði Val og hvenær?
„Séra Friðrik, 11. maí 1911.“
Valsblaðið 2002
47