Tímarit um uppeldi og menntamál - 01.01.1892, Blaðsíða 52
Jóhann Amos Comeníus.1
Jóhann Húss í Bæheimi var einn af þeim, er
hófu mótmæli gegn páfa á undan Lúther; fjekk hann
allmarga á sitt mál, og hjelzt trúarflokkur hans,.
Hússítarnir, saman eptir hans dag. Síðar mynduðu
nokkrir af þeim trúarflokki sjerstakan flokk, er kall-
aður var Máhrisku- og Bæheimsbræður.
Hinn 28. marz í vetur voru víða hátíðahöld í skól-
um og hjá skólamönnum í minningu þess, að þá voru
liðin 300 ár frá því, að sveinn sá fæddist hjá Máhr-
isku bræðrunum, er síðar varð slíkur maður, að hann
skipar öndvegissess meðal uppeldisfræðinga. Það
var Jóliann Amos Comeníus. Hann fæddist í Máhren
28. marz 1592, en fullvíst er livorki um fæðing-
arstað hans, nje hverrar stjettar foreldrar hans hafi
verið; þó segja flestir, að faðir hans hafi verið mal-
ari.
Fátt er kunnugt um uppvöxt Comeníusar; for-
1) Þess skal getið, að jeg lief ekki átt kost á að kynna.
mjer rit Comeníusar sjálfs, en orðið að fara eptir því, er aðrir
segja um liann, og að eins getað liagnýtt mjer tilvitnanir úr
ritum hans, teknar úr ýmsum ritum um hann. Það er ann-
ars leitt, þótt það sje ekki svo óeðlilegt, hve snauð bókasöfn
vor eru að ritum, er snerta uppeldisfræði, og að stuðnings-
og leiðbeiningarritum við alla kennslu á lœgri skólunum.