Tímarit um uppeldi og menntamál - 01.01.1892, Blaðsíða 77
75
þær í flestu réttar og sjálfsagðar til eptirbreytnis.
Set eg liér fyrst nokkur almenn ráð.
I.
Kenn ungum að þekkja sjálfa sig, og lát þá
heyra, sjá og reyna það, sem er gott og rétt. Ven
þá á, að bera lifnað sinn saman við lögmál krist-
indómsins. Lát þau ekki að eins lesa það og læra,
heldur tala um það við þá. Ven þá á, að heimta
aldrei meiri vináttu né virðing, gjafir né dekur af
öðx’um en þeir sjálfir gefa aptur á móti. Ven þá á,
að muna vel og meta ogþakkaþað, sem þeir þiggja
af öðrum, en lát þá ekki gorta af né telja eptir það,
«em þeir gera öðrum gott. Ven þáá, að vilja held-
ur eiga hjá öðrum en skulda þeim, heldur þola ó-
réttinn en gera hann. Sýn þeim aldrei fegraðar
myndir af syndinni; þær tæla þá; eru því margar
skáldsögur ungum skaðlegar; vara þá við þeim. Lát
þá heldur heyra og lesa og lesa kvæði Bjarna, Jón-
-asar, Matthíasar, Steingríms og Gröndals og fleiri
;skálda, sem mála góðar og fagrar myndir af væn-
um og göfugum mönnum. Lát þá heyra og lesa
fornsögur þær, sem bezt sýna sjálfstæði, trúmennsku,
sannleik, hreysti og andríki og göfuglyndi forfeðra
vorra, t. d. Njálu, Vatnsdælu, sögu Gests Þór-
hallasonar, Rafns Sveinbjarnarsonar o. fl.
Lát þá heyra og lesa sögur Péturs biskups; í
þeim eru líka margar góðar og fagrar fyrirmynd-
ir, sem unglingar hefðu mjög gott af að taka
eptir. Sumar af Torfhildar sögum, og ef til vill,
sumar mínum sögum, mætti og nota til þessa. Sög-
ur Gests og Jónasar eru og góðar fyrir unglinga, sé
þeim að eins kennt að taka flestar persónur þeirra