Uppeldi og menntun - 01.07.2006, Side 13

Uppeldi og menntun - 01.07.2006, Side 13
13 áttundi áratugurinn – lög uM dagVist og fæð­ingarorlof Áttunda áratuginn má skilgreina sem tíma mikilla breytinga. Lög um hlutdeild rík- isins í byggingu og rekstri dagvistunarheimila (nr. 29/1973) voru sett árið 1973 og í kjölfarið fylgdu fyrstu lög, sett 1975, um fæðingarorlof mæðra á vinnumarkaði (Lög um atvinnuleysistryggingar nr. 57/1973). Með þessari lagasetningu hafði ríkisvaldið skilgreint það sem hlutverk opinberra aðila að styðja foreldra með markvissum hætti til að annast ung börn sín, bæði með greiðslum og uppbyggingu dagvistarþjónustu. Á sjöunda og áttunda áratugnum jókst umræða um mikilvægi opinberrar dagvist- ar á Norðurlöndum og öll löndin settu sér löggjöf um málefnið, Danmörk árið 1964, Finnland, ísland og Svíþjóð árið 1973 og loks Noregur árið 1975 (Sipilä, 1997). Lög- gjöfin átti það sammerkt að gert var ráð fyrir algildum rétti, opinberum reglum um starfsemina og að hún væri niðurgreidd. öll löndin skilgreindu það sem ábyrgð sveit- arfélaga að standa fyrir uppbyggingu þjónustunnar (Guðný Björk Eydal, Ingibjörg Broddadóttir, Steinunn Hrafnsdóttir og Sigurveig H. Sigurðardóttir, 1997; Leira, 1987; Rostgaard og Fridberg, 1998; Sipilä, 1997). Eins og bent var á í upphafi hafa meginrökin fyrir því að byggja upp dagvistarþjón- ustu verið annars vegar að veita börnum bestu möguleg uppvax­tarskilyrði og hins vegar að tryggja báðum foreldrum möguleika til þátttöku á vinnumarkaði. í grein- argerð með íslenska lagafrumvarpinu frá 1973 eru báðar röksemdirnar notaðar, en meiri áhersla er lögð á þarfir barna (Alþt. 1973–74. 94. lögþ. a:3). í markmiðsgrein laga um hlutdeild ríkisins í byggingu og rekstri dagvistunarheimila (nr. 29/1973) sagði: „Markmiðið með starfsemi dagvistunarheimila er að gefa börnum kost á að njóta handleiðslu sérmenntaðs fólks í uppeldismálum og búa þeim þau uppeldisskilyrði er efli persónulegan og félagslegan þroska þeirra“. Sú staðreynd að dagvistarmál heyrðu samkvæmt lögunum undir menntamálaráðuneyti bendir til að þau hafi frá upphafi verið skilgreind sem skólamál og hagsmunamál barna, frekar en félags- eða vinnu- markaðsmál sem hefðu heyrt undir ráðuneyti félagsmála. Árið 1981 var samþykkt á alþingi breyting á lögum um uppbyggingu og rekstur dagheimila (nr. 112/1976). Breytingartillagan var flutt af Guðrúnu Helgadóttur, þing- manni alþýðubandalagsins, sem lagði til að bætt yrði inn í lögin ákvæði um að gerð yrði námskrá á vegum menntamálaráðuneytis sem kvæði nánar á um markmið og leiðir í uppeldisstarfi á dagvistarheimilum (Alþt. 1980–91, 103. lögþ. a:546). í með- förum þingsins var orðinu námskrá skipt út fyrir orðið starfsáætlun og þannig var tillagan samþykkt (Alþt. 1980–91, 103. lögþ. B:4727). Þessi breyting verður að skoðast sem skref í þá átt að skilgreina starf leikskóla og dagheimila sem hluta af skólakerfinu (Guðný Björk Eydal o.fl., 1997). Þrátt fyrir framangreindar sameiginlegar megináherslur allra Norðurlandanna varðandi löggjöf um dagvistarmál kemur í ljós að þau dagvistarlíkön sem Norður- löndin þróuðu eru ólík um margt (Rauhala, anderson, Eydal, ketola og Warming, 1997; Rostgaard o.fl., 1998; Sipilä, 1997). í Danmörku og Svíþjóð einkenndist þróunin fyrst og fremst af miklu framboði á dagvistarþjónustu. í báðum löndunum var auk áherslu á að mæta þörfum barna fyrir dagvistun lögð áhersla á að mæta þörfum vinnu- gUð­ný Björk ey­dal
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118

x

Uppeldi og menntun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.