Uppeldi og menntun - 01.07.2006, Page 31

Uppeldi og menntun - 01.07.2006, Page 31
31 anna ÞorBjörG InGólfs­dóttIr Els­a s­IGríð­ur jóns­dóttIr Sam­s­tarf í leiks­kó­lum­ við foreldra barna af erlendum­ uppruna Á árunum 2001–2004 stýrðu greinarhöfundar þróunarverkefninu Fjölmenningarleikskóli í einum leikskóla í Reykjavík . Markmið þróunarverkefnisins voru m .a . að leikskólastarfið endur­ speglaði fjölmenningarlegt samfélag og að gera heimamál og heimamenningu barnanna að virtum þætti í starfinu . Til þess að svo mætti verða var nauðsynlegt að efla samstarf við alla foreldra, en sérstaklega foreldra af erlendum uppruna . Í tengslum við þróunarverkefnið gerðu greinarhöfundar rannsókn á því hvernig til tókst og hér verður sjónum fyrst og fremst beint að því hvernig tókst að efla samstarf við foreldra af erlendum uppruna í leikskólanum og hvaða áhrif það hafði á starfið, starfsfólkið og börnin . Meginniðurstöður eru þær að í þeirri vinnu sem fram fór í þróunarverkefninu tókst starfsfólki að ná betur til erlendra foreldra en áður og kynnast þeim . Foreldrarnir urðu sýnilegri í leikskólanum og virkari, en það skilaði sér í auknu sjálfstrausti sumra barnanna og þau urðu opnari, áhugasamari og gerðu meiri kröfur . Ennfremur varð starfsfólkinu ljóst að allt frumkvæði í foreldrasamskiptum verður að koma frá skólanum . Á undanförnum árum hefur börnum með annað móðurmál en íslensku fjölgað mjög í leikskólum landsins og eru þau nú 7,4% af öllum leikskólabörnum (Hagstofa íslands, 2006). Það hefur í för með sér ný verkefni fyrir starfsfólk leikskólanna. Eitt af þeim er samstarf við erlenda foreldra. Hér verður fjallað um rannsókn á samstarfi við for- eldra í einum leikskóla í Reykjavík. í leikskólanum var unnið þróunarverkefni um fjölmenningarlega starfshætti á árunum 2001–2004. Greinarhöfundar voru verkefnis- stjórar þróunarverkefnisins og gerðu jafnframt rannsókn á áhrifum fjölmenningar- legra starfshátta á starfsfólk, foreldra og börn. Eitt markmið þróunarverkefnisins var að efla samstarf við alla foreldra, en einkum foreldra barna af erlendum uppruna. Greint verður frá því hvernig starfsfólki tókst að efla þessi samskipti og hvaða áhrif það hafði í leikskólanum. Þetta mun vera fyrsta íslenska rannsóknin sem gerð er á sam- starfi leikskóla við foreldra barna af erlendum uppruna. Uppeldi og menntun 1. árgangur 2. hefti, 2006
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118

x

Uppeldi og menntun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.