Uppeldi og menntun - 01.07.2006, Page 49
4
Haukur arason
krIstín norðdaHl
„Heimurinn er allur rauður“
Rannsókn á áhrifum eðlisfræðiverkefna á leikskólabörn
Í þessari grein er fjallað um þau áhrif sem það hafði á börn að vinna ákveðin eðlisfræðiverk
efni í leikskóla . Verkefnin eru leikir frá sjónarhóli barnsins en eru einnig eðlisfræðilegar til
raunir með sérstökum kennslufræðilegum markmiðum . Rannsóknin náði til flestra barna í leik
skólanum Hamraborg, u .þ .b . 80 barna á aldrinum þriggja til sex ára, og átta kennara þeirra .
Gagna var aflað með athugunum á vettvangi, myndbandsupptökum og óformlegum viðtölum
við kennarana . Spurningalisti var lagður fyrir foreldra barnanna og allir kennarar héldu dag
bók þar sem reynslan af verkefnunum var skráð . Ein augljós niðurstaða rannsóknarinnar er
að verkefnin höfðuðu mjög vel til barnanna . Eins virtust verkefnin hafa áhrif á það hvernig
athygli barnanna beindist að ákveðnum fyrirbærum . Í rannsókninni komu fram vísbendingar
um að þessi reynsla hefði breytt því hvernig sum börnin hugsuðu um þau viðfangsefni sem
tekin voru fyrir .
inngangur
allir sem hafa fylgst með smábörnum að leik hafa séð hve virk og dugleg þau eru. Þau
rannsaka hluti og efni í umhverfi sínu og prófa færni sína í að hafa áhrif á umhverfið.
Þau skoða, taka í, smakka á og athuga hvað hægt er að gera við hluti í umhverfi sínu.
Með því að endurtaka athuganir sínar nógu oft lærist þeim að mjólkin rennur úr glas-
inu sé því snúið við, að stólfætur og kubbar eru harðir en bangsi og púðar eru mjúkir
viðkomu, sumir hlutir smakkast vel og aðrir illa, sumir gefa frá sér hljóð sé þeim barið
í gólfið o.s.frv. af slíkri reynslu læra börn að þekkja eðli hluta og efna í umhverfi sínu.
Þannig má segja að það sé börnum eðlislægt að fást við viðfangsefni eðlisfræðinnar.
Foreldrar og kennarar geta gert ýmislegt til að ýta undir þessa sjálfsprottnu rannsókn-
arhvöt barna. Þar má nefna að sjá börnunum fyrir heppilegum efniviði til að leika sér
með og rannsaka, hvetja þau og hjálpa þeim að skoða og rannsaka verðug viðfangs-
efni og ekki hvað síst að hafa orð um hlutina sem þau leika sér að og vera með þeim í
að „spá og spekúlera“. í aðalnámskrá fyrir leikskólastigið (Aðalnámskrá leikskóla, 1999)
Uppeldi og menntun
1. árgangur 2. hefti, 2006