Uppeldi og menntun - 01.07.2006, Page 57

Uppeldi og menntun - 01.07.2006, Page 57
7 að hugmyndinni um ljós sem ferðast og breytir um stefnu á speglinum, en almennt er best að nálgast hugmyndina þannig að hún virðist koma fram hjá börnunum sjálfum (Driver o.fl., 1985). í lok hvers Vísindaleiks var rætt við börnin um það sem þau höfðu lært og hvern- ig þau lærðu það, hvað þeim þótti skemmtilegast, skrítnast og svo framvegis. Þetta er í samræmi við hugmyndir manna um að mikilvægt sé fyrir nám hvers og eins að hann íhugi hvað og hvernig hann læri (Palmer, 2005). Þótt þetta eigi best við um ung- linga og fullorðna hefur komið fram að börn á aldrinum fimm til sex­ ára geta einnig haft gagn af að ígrunda eigin hugsun (adey, Robertson og Venville, 2002). Þannig má fá börnin til að tengja orð hugtökum og fyrirbærum og ræða hugmyndir sínar. Þessi vinna með hugtökin er ekki einungis bundin við lok hvers leiks heldur eru öll tækifæri gripin til að hjálpa börnunum að læra að tala um fyrirbærin á meðan á leikn- um stendur. Þetta er í samræmi við hugmyndir Dewey (2000) um mikilvægi þess að ígrunda hlutina og ábendingu asoko og Scott (2006) um að mál og umræða séu mikil- vægir þættir í námsferlinu. Nánari lýsingar á verkefnunum má finna í skýrslu um þróunarverkefnið (Haukur arason og kristín Norðdahl, 2005). rannsók­narað­fErð­ir Rannsóknin sem hér er lýst var samtvinnuð þróunarverkefninu. Farið var á vettvang og unnið með leikskólakennurunum að því að breyta starfsháttum og síðan var árang- urinn af íhlutuninni rannsakaður. Þær upplýsingar sem þannig fengust voru síðan notaðar til að bæta íhlutunina. Þessi rannsóknaraðferð hentar mjög vel til að þróa og meta nýjar aðferðir í kennslu (McNiff, Lomax­ og Whitehead, 1996). Rannsóknin hefur einnig það einkenni eigindlegra tilviksrannsókna að ákveðið tilvik er skoðað vel og því lýst án þess að ætlunin sé að álykta að sú lýsing eigi við um aðra hópa eða aðstæður (Gall, Borg og Gall, 1996). Þát­t­t­ak­endur Þátttakendur í verkefninu voru, auk okkar, flest börn leikskólans Hamraborgar í Reykjavík, 80 talsins, á aldrinum eins til sex­ ára (þau allra yngstu tóku ekki þátt í verk- efninu) og sjö kennarar ásamt leikskólastjóranum og verkefnisstjóranum Hildi Skarp- héðinsdóttur, skrifstofustjóra Leikskólaskrifstofu Menntasviðs Reykjavíkurborgar. Gagnaöflun og greining Nokkrar mismunandi aðferðir voru notaðar til að leita svara við rannsóknarspurning- um, óformleg viðtöl við kennara, þátttökuathuganir, myndbandsupptökur og spurn- ingalistar. Gögnum var bæði safnað samhliða þróunarstarfinu og eftir að því lauk. Tilgangur þess að safna gögnum eftir að þróunarstarfinu lauk var að fá upplýsingar um langtímaáhrif verkefnisins á börnin. HaUkUr aras­on, kris­tín norð­daHl
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118

x

Uppeldi og menntun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.