Uppeldi og menntun - 01.07.2006, Side 61

Uppeldi og menntun - 01.07.2006, Side 61
61 í nokkrum tilvikum nefndu foreldrar að fyrra bragði að börnin töluðu um þau fyrir- bæri og hugtök sem leikirnir fjölluðu um. Dæmi um það er þegar einn faðirinn hafði orð á því að sonur hans væri að pæla í því hvort ýmsir hlutir í umhverfinu færu hægt eða hratt og að ein móðirin sagði frá því að dóttir hennar vildi fá vasaljós í baðið til að leika sér með. í spurningalistakönnuninni voru foreldrar spurðir hvort börnin hefðu talað um verkefnin heima og hvort þau hefðu prófað að gera tilraunir þar. Hjá þeim mæðrum sem svöruðu kom í ljós að börn þeirra höfðu nefnt verkefnið heima og sum þeirra höfðu gert tilraunir með eitt og annað í umhverfinu eftir að þau tóku þátt í vísinda- stundunum. Dæmi um tilraunir sem börnin höfðu gert heima voru: að athuga hvort hlutur breytist ef horft er í gegnum glas frá misjöfnu sjónarhorni. að reyna að búa til regnboga með vasaljósi og kristal. athuganir á lit á vatni í mismunandi litum glösum. að athuga hvernig lófinn verður á litinn ef lýst er gegnum hann með vasaljósi og hvernig maginn verður á litinn þegar lýst er á hann með vasaljósi. að prófa að gera stóra og litla ljóshringi með vasaljósi á vegg. Leikskólakennararnir sögðu dæmi þess að börn hefðu komið til þeirra til að benda á eðlisfræðileg fyrirbæri, svo sem skugga, fimm mánuðum eftir að þau voru í leikjun- um. almennt drögum við þá ályktun að Vísindaleikirnir hafi breytt því hvernig mörg barnanna upplifa ákveðin eðlisfræðileg fyrirbæri í umhverfi sínu og verkefnin hafi beint athygli þeirra að eðlisfræðilegum kjarna fyrirbæranna. Gögnin gefa okkur hins vegar aðeins mjög veikar vísbendingar varðandi það hversu varanleg þessi áhrif eru og engar vísbendingar varðandi það hversu yfirgripsmikil þessi breyting sé. Sk­ilningur barnanna á þeim fyrirbærum sem t­ek­in voru fyrir Til þess að meta skilning barnanna á þeim fyrirbærum sem unnið var með var bæði leitað að vísbendingum í því sem þau gerðu og sögðu. Á grundvelli þátttökuathugana og viðtala við kennara barnanna er erfitt að segja til um hvort Vísindaleikirnir höfðu áhrif á skilning þeirra. Börnin voru spurð í upphafi hverrar stundar um viðfangsefnið. Sem dæmi má nefna að þegar fjalla átti um speglun ljóss voru þau spurð hvort það væri hægt að spegla sig í einhverju inni í leikstofunni. En börnin voru ekki spurð aftur í framhaldi af tilraununum. í stað þess var reynt að fylgjast með merkjum þess að þau skildu það sem unnið var með hverju sinni. í verkefninu með hreyfingu var greinilegt að börnin skildu hvað hugtökin hratt og hægt fela í sér. Þetta kom fram í því að þau gátu breytt sinni eigin hreyfingu í að fara hratt og svo hægar og öfugt. ólíklegt er að það sé eitthvað sem verkefnin hafi leitt af sér. Börnunum gekk ekki eins vel að sjá hraðabreytingar á bílum eða keflum sem runnu niður (og jafnvel upp) skábretti, þannig að ekki er líklegt að verkefnið hafi auk- ið skilning þeirra á því hversu ör hraðabreyting getur verið. í sambandi við liti og ljós virtust börnin skilja að glærurnar hefðu áhrif á það sem horft var á í gegnum þær. Til dæmis sagði ein stúlkan þegar hún setti litaglæru á gluggarúðuna og horfði út: „Heim­ urinn er allur rauður.“ Börnin áttuðu sig einnig á að ljósið litaðist af litaglærunum ef lýst var með vasaljósi í gegnum þær. Þegar börnin voru beðin um að segja frá hlutum HaUkUr aras­on, kris­tín norð­daHl
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118

x

Uppeldi og menntun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.