Uppeldi og menntun - 01.07.2006, Side 71

Uppeldi og menntun - 01.07.2006, Side 71
71 Rétt barna til að tjá eigin skoðanir má rekja til aukinnar vitundar um réttindi barna (e. Children’s right movement), sem upphaflega beindist að vernd barna en hefur á síðustu árum þróast í þá átt að líta á börn sem fullgilda borgara sem eiga rétt til þátttöku og ákvarðana. Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, sem samþykktur var á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna árið 1989 og undirritaður af íslands hálfu árið 1990, er afrakstur þessarar hreyfingar og markaði stórt skref í þá átt að viðurkenna rétt barna til að láta í ljósi skoðanir sínar og hafa áhrif á líf sitt (Samn- ingur Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, 1997). í 12. grein sáttmálans, 1. lið, segir: aðildarríki skulu tryggja barni sem myndað getur eigin skoðanir rétt til að láta þær frjálslega í ljós í öllum málum sem það varða, og skal tekið réttmætt tillit til skoðana þess í samræmi við aldur þess og þroska. Hæfni barna til að taka þátt í rannsóknum og tjá eigin skoðanir var lengi vel dregin í efa. En eigindlegar rannsóknaraðferðir og fjölbreyttar aðferðir við gagnasöfnun hafa opnað augu rannsakenda fyrir þeim möguleika að leita eftir sjónarmiðum barna. Rann- sóknir þar sem notaðar eru fjölbreyttar aðferðir til að afla gagna hafa jafnframt sýnt að börn eru áreiðanlegir heimildamenn og fær um að gefa gagnlegar og áreiðanlegar upplýsingar ef notaðar eru réttar aðferðir. Að­ hlust­a á börn – hvert­ leið­ir það­? Mikilvægi þess að hlusta á raddir barna og hafa þau með í ákvarðanatöku og mati á skólastarfi er eins og áður sagði nú viðurkennt. Þetta er ögrandi staða fyrir kennara jafnt sem stefnumótendur og vekur upp grundvallarspurningar. Sem dæmi má nefna: Hvernig förum við að þessu? Getum við hlustað á raddir allra barna eða bara sumra? Heyrast sumar raddir betur en aðrar? Eiga börn auðveldara með að láta í ljósi sum við- horf en önnur? Hvað gerum við með upplýsingarnar? Hvernig eigum við að bregðast við því sem börnin segja? Hvert er hlutverk kennarans? Þetta eru allt grundvallar- spurningar þegar menn velta fyrir sér lýðræði í skólastarfi. Hæfni barna til að vera virkir þátttakendur og réttur þeirra til að hafa áhrif á um- hverfi sitt er nú talinn ótvíræður. En hvað felst í því að hlusta á börn og hvað ber að varast? anne Trine kjörholt og samstarfsmenn hennar hafa bent á hugsanlegar hættur samfara þessu (kjörholt, 2005; kjörholt, Moss og Clark, 2005). Þau benda m.a. á að ef í framhaldi af því að hlusta á börn í leikskólum er farin sú leið að leggja ofuráherslu á frelsi og val barnanna til að mæta einstaklingsóskum skapist sú hætta að aðrir nauð- synlegir þættir, eins og umhyggja, samvinna og samstaða, falli í skuggann. Þau benda á að allir einstaklingar, hvort sem um er að ræða ung börn eða fullorðið fólk, séu stundum sjálfstæðir og stundum ósjálfstæðir, stundum hæfir og sterkir og stundum óhæfir og veikir. Þótt svo börn séu talin sterk og hæf og hafi rétt til að láta í ljósi skoð- anir sínar eru þau líka viðkvæm og þurfa á umhyggju og vernd að halda. kjörholt og félagar benda einnig á að börn eigi erfiðara með að láta í ljósi sumar skoðanir og viðhorf en önnur og nefna sem dæmi þörfina fyrir væntumþykju og ást. Þau telja jó­Hanna e inars­dó­tt i r
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118

x

Uppeldi og menntun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.