Uppeldi og menntun - 01.07.2006, Page 78

Uppeldi og menntun - 01.07.2006, Page 78
78 það markverðasta og taka um leið myndir á stafræna myndavél. Börnin fengu leið- beiningar um notkun vélarinnar og voru hvött til að taka myndir af því sem þau vildu, því sem þeim fyndist mikilvægt og langaði að mynda. Með þessu móti var gagnasöfn- unin að hluta til í höndum barnanna, þau völdu það sem þau vildu mynda og gátu myndað það sem skipti þau máli. Myndirnar voru síðan prentaðar út og myndir hvers barns settar saman í bækling. Þetta var gert stuttu eftir myndatökuna, og strax­ í kjöl- farið settist rannsakandi með hverju barni og ræddi við það um myndirnar; af hverju það myndaði þetta, hvað þetta væri o.s.frv. Á þennan hátt stýrðu myndirnar viðtalinu og þar af leiðandi sjónarmið barnsins. Umræðurnar voru teknar upp á segulband og afritaðar á eftir. Börnin fengu síðan sinn myndabækling með sér til eignar. Sp­urningak­önnun Spurningakönnun var lögð fyrir börnin í formi leiks. Spurningaspil, sem til var í leik- skólanum, var aðlagað og því breytt þannig að það þjónaði einnig þeim tilgangi að fá fram skoðanir barnanna á leikskólastarfinu. Spilið samanstendur af spjöldum í mis- munandi litum og mismunandi formum. Á hverju spjaldi er spurning eða þraut sem börnin eiga að svara. Börnin gátu valið að leika með spilið þegar þau vildu og sitja nokkur saman með starfsmanni, draga spil og skiptast á að svara. Starfsmaðurinn skráði hjá sér svör barnanna á þar til gerð eyðublöð. Spurningarnar á spjöldunum eru af ýmsum toga en þær spurningar sem tengdust verkefninu voru um eftirfarandi: 1. Hvaða reglur eru bestar og hvaða reglur eru erfiðastar í leikskólanum? 2. Hvað er skemmtilegast og hvað er leiðinlegast að gera í leikskólanum? 3. Á hvaða stað er best að leika og hvar er leiðinlegast að leika í leikskólanum? 4. Hvað er skemmtilegast og hvað er leiðinlegast úti? 5. Hverju mátt þú ráða og hverju mátt þú ekki ráða í leikskólanum? 6. Hvað lærir þú í leikskólanum? 7. Hvað gerir fullorðna fólkið í leikskólanum og hvað finnst þér að það ætti að gera? 8. Hvað mátt þú gera og hvað mátt þú ekki gera í leikskólanum? 9. Hvers vegna ertu í leikskóla? Greining gagna Gögnin voru að hluta til greind samhliða gagnaöfluninni, einnig fór greining gagna fram eftir að gagnasöfnun lauk. Við greiningu gagnanna var byggt á aðferðum Bogdan og Biklen (1998) og Graue og Walsh (1998) og var sá háttur hafður á að fyrst voru þau gögn sem safnað var með hverri aðferð tekin saman og þau kóðuð og flokkuð. Því næst voru niðurstöður úr öllum gagnasöfnunaraðferðum lesnar saman og sameiginleg þemu skoðuð. Teikningar barnanna og ljósmyndirnar voru skipulagðar og flokkaðar og niðurstöður bornar saman við niðurstöður úr hinum aðferðunum. Eftir nákvæman lestur afritaðra viðtala voru þau síðan sett inn í tölvuforritið NVivo sem notað var til að kóða og flokka gögnin. Til að tryggja réttmæti og áreiðanleika var notuð margpróf- un aðferða eins og fram kemur hér að framan, löngum tíma var eytt á vettvangi og við úrvinnslu og túlkun niðurstaðna eru notaðar beinar tilvitnanir og lýsingar. l e iks­kó­l inn frÁ s­ jó­narHó­l i Barna
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118

x

Uppeldi og menntun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.