Búnaðarrit - 01.06.1967, Blaðsíða 146
456
B 11 N A H A R K I T
sýndar voru, liöfðu afleitt júgurlag eða spena eða livort
tveggja, og ein var nieft' blindan spena. Flestar voru á-
gætar í mjöltun, og þær, sem góðum þroska höfðu náð,
liöfðu óvenju vel þroskaðar mjólkuræðar. Að meðal-
tali fengu Depilsdætur 74,6 stig fyrir byggingu. Depill var
tekinn á Kynbótastöðina í Laugardælum baustið 1960, og
voru því þær dætur hans, sem voru dreifðar um béraðið,
nýlega bornar að 1. kálfi og reynsla á þeim því mjög
stutt. Var hæsta dagsnyt þeirra að meðaltali 10,8 kg. Þær
dætur hans, sem eldri voru og borið höfðu árið 1963,
fyrir sýningu, höfðu komizt að meðaltali í 17,0 kg dags-
nyt og virtust yfirleitt hafa háa mjólkurfitu. Allt of
lítið var vitað um afurðir þessa systrahóps, og Idaut Dep-
ill því II. verðlaun og biðdóm gagnvart ákvörðun uni I.
verðlaun.
2. Bleikur S247, sonur Hnífils S212 frá Efra-Langholti
og Tunglu 5 í Ásatúni í Hrunamannahreppi, var tekinn
á Kynbótastöðina í Laugardælum, þegar hún tók til
starfa, þá ársgamall. Höfðu í árslok 1962 fengið við hon-
um 2036 kýr. Bleikur var í afkvæmarannsókn í Laugar-
dælum 1961 — 1963. Voru sýndar undan honum 5 dæt-
ur þar og 20 vngri víðs vegar um Suðurland.
Af þessum 25 dætrum Bleiks voru 19 rauðar og rauð-
skjöldóttar, 4 bröndóttar og brandskjöldóttar og 1 kol-
ótt. Hyrndar voru 3, hníflóttar 2, en binar 20 kollóttar.
Þessar systur hafa flestar sviphreinan haus, þjála húð,
sterkan hrygg, en nokkuð ójafna yfirlínu og mikið bol-
rými. Malir eru dálítið ballandi og afturdregnar, en
fótstaða sæmileg. Margar þeirra liafa stórt júgur og vel
setta spena, en nokkuð þykka. Margar hverjar eru ágæt-
ar í möltun, en nokkrar þó seigmjólka, og ber einkum á
þeim galla, ef lians verður vart í móðurætt. Meðalbrjóst-
ummál bópsins var 166 cm og einkunn fyrir byggingu
74,3 stig.
Mjög stutt reynsla var komin á dætum Bleiks, þegar
sýningin var haldin. 1 Laugardælum höfðu 9 dætur hans