Búnaðarrit - 01.06.1967, Blaðsíða 255
NAUTGRIPASÝNINGAR
565
ingin var lialdin, var langt liðið á 2. mjólkurskeið, en
á því mjólkuðu þessar sömu kvígur til jafnaðar 2964 kg
með 4.32% nijólkurfitu eða 12794 fe. Eftir þeirri reynslu,
sem komin var á þennan hóp, þótti sýnt, að Brandur
byggi yfir eiginleikum til góðrar afurðasemi, en ekki
þótti þó rétt að veita honum I. verðlauna viðurkenn-
ingu einkum vegna byggingargalla margra dætranna.
Hélt liann II. verðlauna viðurkenningu, en var felldur
um liaustið.
7. Kyndill S294, sonur Tíguls S42 og Lukku 1, Rifs-
halakoti í Ásahreppi frá Garðakoti í Mýrdal. Skoðaðar
voru 7 dætur Kyndils, sem í afkvæmarannsókn voru í
Laugardælum, en auk þess var komið að með nokkrar
systur þeirra. Þessar dætur Kyndils voru allar ungar og
misjafnar að þroska og gerð. Sumar voru með ójafna
yfirlínu, en aðrar með beina. Júgurlag og spenabygging
er hvort tveggja gott og mjöltun flestra. Þessar liálfsyst-
ur eru réttvaxnar, en fínbyggðar og smáar. Þegar sýn-
ingin var Jialdin, var komin of stutt reynsla á dætur
Kyndils til þess, að liægt væri að byggja á lienni ákvörð-
un um I. verðlaun, þótt líkur hendi til, að afurðahæfni
þeirra sé mikil. Dómur um byggingarlag stvrkir einnig
hærri viðurkenningu, og hlaut Kyndill biðdóin varðandi
hana. Uppgjör á afurðum í afkvæmarannsókninni eftir
1. mjólkurskeið, sem gert var síðar á árinu, náði að-
eins til 6 systranna, og liöfðu þær að meðaltali mjólkað
2893 kg með 4.12% mjólkurfitu eða 11922 fe, sem er
ágætt.
8. Búi S295, sonur Galta S154 og Búkollu 61, Efra-Lang-
holti í Hrunamannahreppi. Þetta naut er sammæðra
Berki S280, sem I. verðlaun hlaut á sýningu nú og getið
er Iiér að framan, og reyndar eru þeir frændur í föður-
ætt einnig. 1 afkvæmarannsókn voru 8 dætur Búa, en
eina þeirra varð að fella nokkru eftir burð vegna heiftar-
legrar júgurbólgu. Náðist ekki full tala dætra lians á
sýningu, og kom því ekki til álita að Iiækka viðurkenn-