Búnaðarrit - 01.06.1967, Blaðsíða 242
552
BUNAÖAIiRIT
Bárðardal. Telja verður kúastofninn allgóðan, og liafa
félagsmenn verið farsælir í vali kynbótanauta.
Bf. Skrifidalshrepps. Sýndar voru 14 kýr, enda var
sýningin fásótt og skýrsluhald í félaginu lítið. Félagið á
nú ekkert félagsnaut, en hafði áður notað félagsnautið
Spak A2, sem var ættaður úr Mýrdalnum. Voru 8 kýr af
14 sýndum dætur lians, og eru þetta holdsamar og
þroskamiklar kýr og bera mörg einkenni Mýrdalsstofns-
ins, en kýrnar í félaginu eru mjög nytlágar. Kann að
vera, að bætt fóðrun og þá einkum meiri kjarnfóður-
gjöf geti aukið að nokkru nytliæð kúnna, en telja verður,
að mjólkurlagni kúastofnsins sé ekki nógu mikil til að
svara aukinni fóðrun, og er nauðsyn að lierða á kyn-
bótastarfinu, einkum þar sem mjólkursala liófst úr sveit-
inni fyrir nokkrum árum.
Nf. Eifiaþinghár. Telja verður, að sýningin hafi verið
vel sótt í þessu fámenna félagi. Eiga félagsmenn margar
ágætlega gerðar kýr og mjólkurlagnar. Þótt félagiö liafi
ekki starfað nema í 9 ár, liefur verið uunið að kynbót-
um á kúastofninum af nokkrum einstaklingum, og liafa
verið fengin að naut til að bæta stofninn. Elzta naut
félagsins, Smári A5, sem nú er fallinn, hefur reynzt vel
til kynbóta, og eru dætur hans mjög mjólkurlagnar.
Voru sýndar 8 dætur Smára, og hlutu 3 I. verðlaun, 3
II. verðlaun og 2 III. verðlaun. Alls lilutu 5 kýr I. verð-
launa viðurkenningu. Nú á félagið injög vel ættað naut,
Móa A15, frá Móum í Gnúpverjahreppi, son Bolla S46,
sem var einliver mesti kynbótagripur, sem nokkru sinni
hefur verið notaður á Kynbótastöðinni í Laugardælum.
Voru skoðaðar nokkrar dætur Móa utan sýningar, og
voru þetta vel byggðar kýr með mikið rými, góða aftur-
byggingu og vel löguð júgur. Svipar þeim að mörgu
leyti til dætra Bolla S46, sem reynzt liafa afburða mjólk-
urkýr. Má vænta þess, að Mói A15 reynist góður kynbóta-
gripur, þótt ekki verði með vissu sagt um það að sinni,
fyrr en fleiri dætur hans bera og koma á skýrslur.