Búnaðarrit - 01.06.1967, Blaðsíða 243
NAUTGRIPASTNINGAR
553
Nf. NorSfjarSarlirepps. Þetta félag hefur ekki starfað
lengi, en nú þegar ríkir mikil deyfð yfir félagsstarfinn.
Var sýningin fremur fásótt, og af 29 sýndum kúm lilutu 3
II. verðlaun og 2 III. verðlaun. Mest bar á dætrum Mána
A8 frá Bergliyl í Hrunamannahreppi, sem notaður var
í félaginu eftir Ljóma frá Oddgeirshólum. Voru sýndar
13 dætur Mána A8, en þetta eru allt ungar kýr og ekki
komin full reynsla á þær. Dætur Mána eru þroskamikl-
ar með mikið rými, en hafa liátt krossbein og nokkuð
hallandi malir. Júgrin eru vel löguð og gerð spena góð.
Yfirleitt eru þær góðar í mjöltun, en tvær voru fast-
mjólka. Nú á félagið naut, er nefnist Lundi, frá Búfjár-
ræktarstöðinni að Lundi við Akureyri, son Gerpis N132
og Bröndu 50 á Lundi. Var Lundi ekki viðurkenndur
sökum þess, að hann var talinn hyrndur. Eitt naut í
einkaeign var skoðað, en það var Kúddi í Skuggahlíð,
undan ágætri kú þar, Huppu 18, og Kolskildi S300, I.
verðlauna nauti á Kynbótastöðinni í Laugardælum.
Auk sýninganna í Múlasýslum voru skoðaðar kýr á
nokkrum bæjum í Hlíðarhreppi, sökum þess að áhugi
ríkti fyrir stofnun nautgriparæktarfélagsskapar, og var
efnl til fundar um það mál, er nautgriparæktarráðunaut-
ur Búnaðarfélags Islands var þar á ferð. Auk þess Iiafði
Búnaðarfélag Hlíðarhrepps keypt mjög vel ættað naut til
kynbóta frá Húsatóftum í Skeiðalireppi, Árnessýslu, son
Sóma S119 á Kynbótastöðinni í Laugardælum og Bínu
70. Nefnist nautið Stjarni og er vel gerður gripur með
ágæta bolbyggingu, breiðar malir og góða fótstöðu. Kúa-
stofninn í hreppnum er mjög sundurleitur, en til eru
ágætir einstaklingar, og eru til kýr úr Eyjafirði og Suður-
Þingeyjarsýslu, mjólkurlagnar og vel gerðir gripir. Er
ekki vafi á því, að með notkun vel ættaðra kynbóta-
nauta má kynbæta stofninn í lireppnum og rækta þar arð-
samar og fallegar kýr sem annars staðar, þar sem unnið
er að kynbótum á félagslegum grundvelli.