Búnaðarrit - 01.06.1967, Blaðsíða 214
524
BUNAÐAK 1! IT
eru rnjög ungar. Fyrstu verðlaun hlutu 54 kýr. Voru
9 þeirra frá hvoruni bæjanna Brúnastöðum og Ölvis-
holti, 6 frá Miklaholtshelli og 5 frá Hjálmholti, Hrygg
og Túni. Meðal I. verðlauna kúnna vortt 8 dætur Austra
S 57, 7 dætur Bletts S158, 5 dætur Víðkunns S34 og 4
dælur hvors þeirra, Fróða S28 og Rauðs S118. Álirifa
frá Kynbótastöðinni í Laugardælum á kúastofn félags-
manna gætir í vaxandi mæli, þar sem félagið hóf strax
viðskipti við stöðina, er hún tók til starfa árið 1958.
Þau naut, sem nefnd eru hér að frantan og notuð voru
í félaginu, móta þó enn stofninn einna mest. Af þeim
Hefur Austri S57 bætt byggingu livað mest. Má geta
þess, að 35 kýr á sýningunni hlutu 80 stig eða fleiri fyrir
byggingu. Þá liefur hann haft áhrif á að stækka kýrnar.
Félagið veitir farandgrip til varðveizlu milli sýninga
fyrir þá kú, sem að áliti dómnefndar er glæsilegust að
útliti og afurðamest árin frá næstu F.ýningu áður. Þessa
viðurkenningu félagsins hlaut í þetta skipti Ljóntalind
53, Hrygg. Er hún dóttir Autra S57 og Lukku 33, en
Lukka var undan Hæng S10 og Huppu 52 í Hjálmholti.
Standa því kunnar ættir að Ljómalind. svo sem við var
að búast. Ljómalind er ágætlega byggð að öðru leyti en
því, að hún er með lausa bóga. Hlaut hún 81 stig fyrir
byggingu. Milli sýninga (1959—1962) liafði hún mjólk-
að á ári að meðaltali 4887 kg mjólkur með 3,90%
mjólkurfitu, þ. e. 19059 fe. Var verðlaunagripurinn af-
hentur Guðbirni Sigurðssyni, eiganda Ljómalindar, á
fundi í félaginu skömmu síðar.
Ástæða er að minnast á Gerplu 85, Túni, sem efst er
á skránni um I. verðlauna kýr í breppnum. Er hún
einnig dóttir Austra S57, en móðir hennar, Dirra 57,
var Reppsdóttir. Með Gerplu voru sýndar 4 dætur henn-
ar, sem hlutu I., II., III. og engin verðlaun. Sonur
Gerplu, Gyllir S304 á Kynbótastöðinni í Laugardælum,
hlaut II. verðlaun. Síðar í þessari grein vex-ður vikið að