Morgunn - 01.12.1960, Qupperneq 67
Justinus Kerner og sjáandinn
frá Prevorst
★
Swedenborg andaðist árið 1772, en þrátt fyrir það að
áhangendur hans héldu því fram að hann hefði verið ein-
stæður maður og hæfileikar hans sérstæðir með öllu, komu
eftir hans dag fram menn og konur sem höfðu líka hæfi-
leika og hann hafði haft til sálrænna fyrirbrigða. Mikla
athygli vakti á sínum tíma kona nokkur í Stokkhólmi, frú
Tándquist. Árið 1788 fór hún að falla í trans og af vörum
hennar talaði framliðin dóttir hennar og annað barn,
framliðið. Þá kom fram dáleiðslulæknirinn frægi, A.
Mesmer, sem geysilega athygli vakti (1734—1815), og
mannvinurinn og lærdómsmaðurinn mikli Jung Stilling
(1740—1817). Hann var einn frægasti maður sinna tíma,
náinn vinur Goethe, var afburðalæknir og mikils metinn,
en að lokum háskólakennari í hagfræði við háskólana í
Marburg og Heidelberg. Hann var trúmaður mikill og
sjálfsævisaga hans, Heinrich Stilling’s Childhood, ev ein
af perlum heimsbókmennanna að því, er kemur til sjálfs-
ævisagna. Sálrænar gáfur voru ríkar með ætt hans, hann
var gæddur þeim sjálfur og í bókum sínum, sem geysi-
legri útbreiðslu náðu, segir hann fjölda af merkilegum
fyrirbrigðasögum og vann þannig mjög að því að leiða
athygli manna að þessum fyrirbrigðum. Hann hafði mikl-
ar mætur á ritum Swedenborgs. En læknirinn Justinus
Kerner hefur öllum öðrum fremur á fyrri hluta 19. aldar
verið fyrirrennari sálarrannsókna nútímans, bæði sakir