Morgunn - 01.12.1966, Blaðsíða 79
Aðalfundur
Sálarrannsóknafélags Islands
☆
Aðalfundur Sálarrannsóknafélagsins var haldinn í sam-
komuhúsinu Sigtúni í Reykjavík 15. nóvember síðastl. For-
maður félagsstjórnar, séra Sigurður Haukur Guðjónsson,
setti fundinn og skýrði í fáum orðum frá starfi félagsins á
liðnu ári.
Reikningar félagsins fyrir árið 1965 voru lesnir upp og
samþykktir í einu hljóði. Fjárhagur félagsins er góður, og
nokkur tekjuafgangur varð á árinu.
Samkv. lögum félagsins er á aðalfundum kosið 12 manna
fulltrúaráð, er síðan velur þriggja manna félagsstjórn til eins
árs í senn. Fulltrúarnir eru hins vegar kjörnir til tveggja
ára, 6 á hverjum aðalfundi.
Fulltrúaráðið skipa nú:
Arnheiður Jónsdóttir, frú, Reykjavík.
Guðmundur Einarsson, verkfræðingur, Reykjavík.
Guðmundur Jörundsson, útgerðarmaður, Reykjavík.
Gunnar E. Kvaran, stórkaupmaður, Reykjavík.
Hilmar Norðf jörð, loftskeytamaður, Reykjavík.
Séra Jón Auðuns, dómprófastur, Reykjavík.
Magnús Guðbjörnsson, verzlunarmaður, Reykjavík.
Ottó A. Michelsen, forstjóri, Reykjavík.
Séra Páll Þorleifsson, fv. prófastur, Reykjavík.
Séra Sigurður H. Guðjónsson, sóknarprestur, Reykjavík.
Sveinn Ólafsson, fulltrúi, Reykjavík.
Séra Sveinn Víkingur, fv. biskupsritari, Reykjavík.