Morgunn - 01.12.1966, Side 80
158
MORGUNN
Endurskoðendur félagsins voru kjörnir:
Halldór V. Sigurðsson, endurskoðandi, Reykjavík.
Ingimar Jóhannesson, kennari, Reykjavík.
Á fundinum flutti Guðmundur Einarsson erindi um rann-
sóknir í sambandi við endurholdgunarkenninguna.
Fulltrúaráðið mun bráðlega koma saman til þess að velja
stjórn félagsins. En í stjórn þess eru nú:
Séra Sigurður Haukur Guðjónsson, formaður.
Guðmundur Jörundsson, ritari.
Magnús Guðbjörnsson, gjaldkeri.
Til lesenda Morguns
Timaritið Morgunn hefur nú komið út í samfellt 47 ár.
Það hefur flutt, og flytur enn, fjölda greina um sálarrann-
sóknir, dulsálarfræði (parapsychology), merkilega drauma
og dulræn fyrirbæri, auk margs annars efnis. Því er það, að
allir þeir, sem áhuga hafa á þessum málum, ættu að kaupa
þetta rit og lesa það vandlega.
Sýnið kunningjum ykkar og vinum Morgun og leyfið
þeim að kynnast efni því, er hann flytur. Nýir áskrifendur
þurfa ekki annað en senda pöntun og verður þeim þá sent
ritið um hæl. Utanáskriftin er:
TlMARITIÐ MORGUNN,
GARÐASTRÆTI 8, REYKJAVlK. PÓSTHÓLF 433.
Morgunn kemur út í tveim heftum á ári, alls rúmlega 160
blaðsíður lesmáls, auk auglýsinga, og kostar aðeins kr. 100.00
árgangurinn. Mun hann því vera eitt af allra ódýrustu tíma-
ritum landsins. Eldri árgangar fást á afgreiðslunni með nið-
ursettu verði, á meðan upplag þeirra endist.
Ritstj.