Morgunn - 01.12.1966, Blaðsíða 37
MORGUNN
115
á úrslit tilraunanna. Þess vegna tókum við upp á því að
setja upp skilrúm á mitt borðið, svo að sá, sem reyndur var,
gæti ekki séð spilastokkana. Við settum einnig spilin í
ógagnsæ og innsigluð umslög til frekari varúðar, eða höfð-
um þau í sérstökum kassa, meðan á tilraun stóð. Stundum
var prófunin með spilin í öðru herbergi eða jafnvel í öðru
húsi. Og fleiri öryggisráðstafanir voru gerðar.
Skráning svaranna og spilanna, sem tekin voru úr stokkn-
um, var einnig mjög nákvæm, og sín á hvoru blaði, til þess
að koma í veg fyrir mistök.
1 tilraunum þeim, sem þeir Pratt og Woodruff fram-
kvæmdu í Duke háskólanum á árunum 1938 og 1939, var
enn hert á varúðarráðstöfunum til stórra muna. Hér var
gengið þannig að verki, að hópar manna voru reyndir, án
alls tillits til þess hvort þeir höfðu f jarskyggnigáfu eða ekki.
Heildarniðurstaða þessara tilrauna, sem alls voru 2400,
varð sú, að fram komu 489 réttum svörum fleira en vænta
mátti, ef hending ein réði, en það svarar til 5.20 réttra svara
af hverjum 25 í stað 5. Þetta er að visu lítill munur, en þó
harla athyglisverður, þegar tekið er tillit til þess, hvað til-
raunirnar voru margar.
Hér er þó þess að gæta, að reynsla allra þeirra, sem feng-
izt hafa við fjarskyggnirannsóknir, er sú, að tilraunirnar
heppnast því verr, sem þær eru flóknari í sniðum og þyngri
í vöfum. Mikill seinagangur á þar ekki við. Ennfremur tóku
þeir Pratt og Woodruff eftir því, að yfirleitt varð árangur-
inn beztur í fyrstu tilraun, en hrakaði eftir því, sem hún
var oftar endurtekin, þótt allar aðstæður væru að öðru leyti
óbreyttar. Þetta töldu þeir stafa af því, að nýjabragðið væri
þá farið, og maðurinn yrði leiður og þreyttur á endurtekn-
ingunni.
Þeim, sem vildu kynna sér þessar tilraunir þeirra félag-
anna, framkvæmd þeirra og hvernig varúðarráðstöfunum
var háttað, skal bent á að lesa skýrslu þeirra í Journal of
Parapsychology árið 1939.