Morgunn - 01.06.1975, Page 16
14
MOHGUNN
hafi yfirleitt ekki borið mikið á slíku. Samt mættu sumir
þeirra rifja upp fyrir sér orð Páls í 14. kapítula Rómverja-
bréfsins: „Takið að yður hina trúarveiku — Þó ekki til áÖ
leggja dóm á skóðanir þeirra.“
Hvað er það, sem gerir mann „hólpinn“? Það, að lýsa yfir
fylgi við tilteknar skoðanir eða „trúaratriði“? Ekkert er haft
eftir Jesú í guðspjöllunum, að slíku lútandi. Hins vegar sagði
Jesús við tiltekið tækifæri, og allt hans atferli vitnar um hið
sama, að brýnasta nauðsyn væri að elska. Og i 1. Jóhannesar-
bréfi segir stutt og laggott: „Guð er kœrleikur.“ Og síðan eru
orð þessei ítrekuð óbreytt.
„Af því skulu allir þekkja, að þér eruð mínir lærisveinar,
að þér berið elsku hver til annars.“ Með öðrum orðum: Það
að bera kærleik í brjósti, er að vera „kristinn“. IJegar tveir
eða fleiri slíkir menn hittast er viðhorf þeirra gagnkvæmlegt
— þeir elskast. Af því má marka, að þeir eru lærisveinar Jesú
Krists.
Þetta er Jesús Kristur „eins og honum er borið vitni i Nýja
testamentinu“. „Látið ekki bifast á þeim grundvelli!“
Reykjavík28. júní 1975.
Björn O. Björnsson.
DæmiS ekki, til þess áÖ þér verÖiÖ ekki dœmdir; því
áÖ meÖ þeim dómi, sem þér dœmiÖ, veröiö þér dæmdir,
og meÖ þeim mœli, sem þér mœliÖ, verÖur yÖur mælt.
En hví sér þú flísina í auga brööur þíns, en tekur ekki
eftir bjálkanum í auga þínu.
Matt. 7:2,3.