Morgunn - 01.06.1975, Blaðsíða 87
KITSTJÓRARABB
85
1. Draumar.
2. Dulræn reynzla og þjóðtrú.
3. Trúarreynzla og lestur bóka um dulræn efni og trúarleg.
4. Kynni af starfsemi miðla, huglækna, spákvenna o. fl.
5. Viðhorf til dulrænna og fleiri fyrirbæra.
Dregnir voru úr þjóðskrá 1132 menn á aldrinum frá þrítugu
til sjötugs. Þetta er um sjötugasti hver landsmaður á þessu
aldurskeiði. Spurningarlistinn var póstsendur þessu fólki.
Heimtur voru þær, að 902 svöruðu með útfylltum spurn-
ingalista, 425 karlar og 477 konur. Þetta eru 80% úrtaksins.
Af þeim sem svöruðu eru 47% karlar og 53% konur. 64%
þeirra sem svöruSu telja sig hafa orÖiS fyrir einhverri dul-
rœnni reynzlu.
Þareð dr. Erlendur hefur enn ekki unnið úr þessum skýrsl-
um, telur Morgunn ekki tímabært að draga neinar ályktanir
af rannsókninni að svo komnu máli.
Ólík
viðhorf,
„Óhætt er að fullyrða, að menn hafa aldrei
í sögu veraldarinnar hugsað eins mikið um
ódauðleik sálarinnar og tilveru andaheims-
ins eins og nú. Vísindin hafa loks stigið alveg yfir línuna
milli dauðlegs líkamans, og andans og nýtt rannsóknarsvið
hefur fundizt. Menn skyggnast nú inn í hinn heiminn með
hjartanlegri þrá eftir sönnunum fyrir „borginni á trausta
grundvellinum, þeirri sem Guð er smiður að og bygginga-
meistari“. Vísindin eru óðum að verða þerna trúarbragðanna,
og mönnum er að verða ljóst, að hin eilífu sannindi sem til
þessa hafa virzt koma sem leiftur við og við út úr heimi
goðsagna og ævintýra, séu raunveruleikur og einn hluti af
fyrirbrigðum alheimsins, og þeir lofa Guð fyrir það“.
Charles Tweedale, prestur í
Weston, Yorkshire.