Morgunn - 01.06.1975, Blaðsíða 60
58
MORGUNN
ið, en eftir því man ég ekkert eða mjög óljóst. En eftir því
sem leið á þennan dag, minnkuðu þrautimar. Um kveldið
voru þær að mestu eða öllu horfnar, nema ég fann til ósegjan-
lega mikillar þreytu og máttleysis. Tilfinningarnar munu og
hafa verið að mestu lamaðar. En með því að allar sárar þján-
ingar voru horfnar, skildi ég ekkert í því, að ég hlyti að deyja.
Samt taldi ég það víst. Ég hafði lesið það svo berlega út úr
öllum, og fann, að ástand mitt var óeðlilegt, og gagnstætt því,
sem ég hafði áður þekkt. Dauðinn hryggði mig þó hvorki né
gladdi. Mér var algjörlega sama um hann. Ég var svo jafn
tilfinningarlaus fyrir öllu.
En nú kemur smátt og smátt sú breyting á, að mér virtust
líkamspartarnir vera að leysast sundur, og eins og allur líkam-
inn vildi leysast upp og tvístrast út í geiminn. Hömndið veitti
þó mótspymu. En mér virtist það þó verða að láta svo undan,
og þenjast svo út, að ég fyndi til þess. Ég fann því glögglega
ummál líkamans, og virtist mér ég stækka svo, að ég varð
eins og gildur meðalmaður á vöxt. En þó að hörundið setti
líkamanum takmörk, þá virtist mér engu síður einhverja
strauma liggja frá mér upp í loftið, eins og eitthvað hefði
liðið á burt. Þessir straumar slitnuðu þó eigi frá líkamanum.
Þeir voru fastir við hann allan, og toguðu i hann upp á við,
en sterkastir vom þeir frá höfðinu og brjóstinu. En ég fann
þá leggja frá hverri taug, eða hverjum depli, á yfirborði hör-
undsins. Ég lá að mestu á bakinu. Hallaðist aðeins örlítið til
vinstri handar, og var það sú höndin, er framar var í rúm-
inu. Mér varð litið í áttina eftir þessari straumleiðslu, er vildi
draga mig með sér. Sá ég þá óljósa þokumynd uppi undir
loftinu í herberginu. Hún skýrðist smátt og smátt, svo að ég
sá, að það var mynd mín, þótt óljós væri. Var hún í náttúr-
legri stærð, og því mun minni að sjá en mér virtist stærð
líkamans vera að því sinni.
Þessir straumar, ósýnilegu lífgeislar, segulbönd eða hvað,
sem á að nefna það, er lágu frá líkamanum, fann ég, að voru
tengd við myndina, svo að myndin og líkaminn gátu eigi
skilizt að, nema því aðeins, að böndin slitnuðu. Ég hafði áður