Morgunn - 01.06.1975, Blaðsíða 20
18
MORGUNN
einna helzt nærðist af hinni fornu hugmynd um upprisu holds-
legs líkama úr gröfinni, — þá veitir sannarlega ekki af að
fræðast beteur.
V.
„Hvað skal gera?“ var sungið á dansleikjmn í mínu mn-
dæmi. Og „hvað skal gera?“ er nú spurning, sem hugsandi
fólk veltir fyrir sér á flestum sviðum mannlegs lífs. Og ég tel,
að einmitt i sambandi við þessi mál sé nauðsyn á samvinnu
allra góðviljaðra manna. Mér er persónulega kunnugt um,
að meðal sérfræðinga í Biblíuskýringum eru menn, sem hafa
áhuga á því, að meira tillit sé tekið til rannsókna dulsálar-
fræðinnar við ritskýringar heldur en verið hefir. Hvað kemur
út úr slíkum rnnræðmn veit auðvitað enginn enn. Sjálfur er
ég þeirrar skoðunar, að hér á landi mætti t. d. halda rækilega
undirbúna ráðstefnu (ekki námskeið), þar sem lærðir menn
bæru saman bækur sinar. Þá væri meðal annars athugað,
hvaða munur er á starfsaðferðum sálarrannsóknamanna á
fyrri hluta aldarinnar og dulsálarfræðinga nútímans. Þá kæmi
einnig í ljós, hvemig „þessi mál“ snerta Bibliurannsóknir,
trúfræði, trúarsálfræði, eðlisfræði og líffræði. Ef til vill yrði
niðurstaðan fremur spumingar en svör, nema að því leyti sem
menn ættu að skilja hver annan betur við að ræðast við í vin-
semd og virðingu hver fyrir annars sjónarmiðum. Hér væri
verkefni fyrir háskólann, kirkjm-áð eða Prestafélag Islands.
Afglapanum finnst sinn vegur réttur,
en vitur máSur hlySir á ráS.
Orðskv. 12—15.