Morgunn - 01.06.1975, Blaðsíða 95
BÆKUB
93
varð hann til þess að útskýra fyrir henni, hvað hér var á
ferð. Víða í þessari bók xninnist hún þess með þakklæti,
hvernig Hafsteinn miðill kom henni til hjálpar, þegar hún
varð fyiir verulegum óþægindum af hinum ósýnilegu verum,
því það er tvíeggjað sverð að komast i samband við hinn
ósýnilega heim.
Elinborg er nú komin hátt á níræðisaldur, og það er eins
og hún finni nú hin óhjákvæmilegu umskifti nálgast, því
hún lýkur bókinni með þessum orðmn:
„Ég vil enda þessa bók með því að þakka öllrnn samferða-
mönnum minum. Þakka öllum, sem verið hafa mér vel og
stult hafa mig á einn og annan hátt. En fyrst og fremst þakka
ég guði fyrir hans handleiðslu og vernd á allri lífsbraut
minni.“
Jeffrey Furst:
JEStJS KRISTUR I DÁLESTRUM EDGARS CAYCE.
Þýðandi: Dagur Þorleifsson.
Bókaútgáfan örn og Orlygur, 1974.
Það eru nú liðin um 30 ár síðan Edgar Cayce lézt. Hann
hlýtur að teljast án tvimæla einhver athyglisverðasti dulspek-
ingur og sjáandi sem tmi getur á þessari öld. Dálestrar hans
urðu um 16,000 og hafa alveg sérstakt gildi, sökum þess hve
vel þeir eru vottfestir. Þeir voru hraðritaðir jafnóðum og verða
um alla framtið hinar aðgengilegustu heimildir, því þeir eru
varðveittir í skjalasafni stofnunar, sem helgar sig rannsókn
á þeim og úrbreiðslu ýmissa kenninga dulspekingsins.
f Cayce-stofnuninni á Virginia Beach í Bandaríkjunmn er
afarfullkomin spjaldskrá yfir dálestrana, og er þessi þekk-
ingarsjóður þannig mjög aðgengilegur fyxir þá sem hafa í
hyggju að kynna sér hvað þessi undarlegi maður tveggja
heima hefur sagt um ákveðin efni. Þegar er tekið að ausa úr
þessum Mímisbrmtni og fjölgar Cayce-bókunum með ári
hverju. Þetta mun vera fjórða bókin, sem kemur út á íslenzku