Fréttablaðið - 19.11.2010, Blaðsíða 2
2 19. nóvember 2010 FÖSTUDAGUR
ALÞINGI Fjórtán þingmenn úr
Framsóknarflokki, Hreyfingunni
og Sjálfstæðisflokki vilja að for-
sætisráðherra
undibúi máls-
höfðun á hendur
breska ríkinu
fyrir alþjóð-
legum dómstól
vegna beit-
ingar hryðju-
verkalaga gegn
íslenska ríkinu
og íslenskum
fyrirtækjum.
Þingsályktunartillaga þess
efnis var lögð fram í gær. Gunn-
ar Bragi Sveinsson Framsóknar-
flokki er fyrsti flutningsmaður.
Vilja þeir að gerð verði krafa
um skaðabætur fyrir það tjón sem
beiting laganna olli íslenska rík-
inu og íslenskum fyrirtækjum.
Nauðsynlegt sé að fá staðfest að
sá gjörningur hafi verið með öllu
óviðeigandi, ómálefnalegur og
ólöglegur. - bþs
Þingmenn þriggja flokka:
Vilja í mál við
breska ríkið
GUNNAR BRAGI
SVEINSSON
SPURNING DAGSINS
Úlfar, eru þetta nokkuð ein-
tómar svikamyllur sem þið
ætlið að setja upp?
„Alls ekki, og þetta er ekkert út í
vindinn heldur.“
Landsvirkjun íhugar að koma upp
vindmyllum á Suðurlandi til raforkufram-
leiðslu. Úlfar Linnet er sérfræðingur hjá
Landsvirkjun.
HEILBRIGÐISMÁL „Ég tel mér skylt
að standa vörð um þessa þjónustu
hér á landi. Ef semja á niður verð
um allt að tuttugu prósent er sjálf-
hætt og læknarnir fara annað,“
segir Kristján Guðmundsson, for-
maður samninganefndar sérfræði-
lækna. Sérfræðilæknar munu ekki
semja um átján prósent lækkun á
taxta til að mæta sparnaðarkröfu
fjárlaga, að hans sögn.
Sjúkratryggingar Íslands áætla
að útgjöld vegna lækniskostnaðar
árið 2011 verði rúmlega sex
milljarðar króna en fjárlagafrum-
varpið gerir ráð fyrir rétt tæpum
fimm milljörðum. Stjórnvöld
áætla því 1.126 milljóna króna
sparnað á þessum fjárlagalið eða
18,7 prósent.
Kristján segir í raun þrjá kosti
í stöðunni til að mæta kröfu fjár-
lagafrumvarpsins. „Semja við
lækna um lægra verð, hækka sjúk-
lingagjöld eða henda út úr kerfinu
vissri þjónustu.“
Viðmælendur Fréttablaðsins
hafa á orði að án afgerandi breyt-
inga á fjárlagafrumvarpinu stefni
í harkaleg átök lækna við ríkið.
Kristján segir of snemmt að spá
slíku en ef svo yrði væri það
ekki fyrsta skipti. „Það má líka
segja að það tekur langan tíma að
byggja upp gott heilbrigðiskerfi
en það tekur enga stund að rífa
niður.“
Samningar sérfræðilækna við
Sjúkratryggingar Íslands eru
allir lausir 1. apríl næstkomandi,
þeir fyrstu renna út um áramót-
in. Undir nefndum fjárlagalið
fjárlagafrumvarpsins eru sjálf-
stætt starfandi sérfræðilækn-
ar, rannsókna- og röntgenstofur
en jafnframt sjálfstætt starfandi
heimilislæknar og greiðslur til
rannsóknastofa á Landspítala
vegna sjúklinga utan spítalans.
Um fjörutíu prósent lækna sem
vinna samkvæmt samningum við
Sjúkratryggingar eru ekki í neinu
eða afar litlu starfi hjá ríkinu eða
stofnunum sem njóta rekstrar-
styrkja frá hinu opinbera. Þessir
læknar eru með um sextíu prósent
af veltunni. Rúmlega 140 læknar
starfa alfarið á eigin vegum en
sérfræðilæknar eru um 340 tals-
ins á Íslandi.
Skipta má heilbrigðisþjónustu
á Íslandi niður í þrjár megin-
stoðir. Þjónustu heilbrigðisstofn-
ana, heilsugæslu og starfsemi sér-
fræðilækna. Sérgreinarnar eru
fjölmargar, eða ríflega 25 talsins.
Komur til sérfræðilækna árið
2009 voru 443 þúsund talsins.
svavar@frettabladid.is
Læknar semja ekki
um stórfellda lækkun
Áætluð útgjöld Sjúkratrygginga Íslands vegna lækniskostnaðar árið 2011 eru 1,2
milljörðum hærri en ríkið ætlar málaflokknum. Sjálfhætt fyrir sérfræðilækna
ef lækka á gjaldskrá um allt að 20 prósent, segir formaður samninganefndar.
DÓMSMÁL Hæstiréttur hefur sak-
fellt lögreglumann á höfuðborgar-
svæðinu fyrir að hafa farið offari
við framkvæmd lögreglustarfa
og ekki gætt lögmætra aðferða.
Maðurinn var dæmdur á tveggja
ára skilorð, en ákvörðun um refs-
ingu var frestað.
Umræddur lögreglumaður var
enn við störf hjá lögreglunni á
höfuðborgarsvæðinu í gær, sam-
kvæmt upplýsingum Fréttablaðs-
ins.
Málið snerist um það er hann
sem stjórnandi lögregluaðgerðar,
í miðbæ Reykjavíkur, fyrirskip-
aði öðrum lögreglumanni að aka
með handtekinn mann þaðan út á
Granda og skilja hann þar eftir.
- jss
Gætti ekki lögmætra aðferða:
Lögreglumaður
fær skilorðsdóm
LÖGREGLUMÁL Lárus Welding, fyrrverandi forstjóri
Glitnis, var yfirheyrður af starfsmönnum sérstaks
saksóknara í allan gærdag vegna rannsóknar emb-
ættisins á nokkrum málum tengdum Glitni.
Lárus féllst fyrr í vikunni á að mæta til yfir-
heyrslu í gær, eins og Fréttablaðið greindi frá á
miðvikudag. Lárus kom til landsins í gærmorgun
með flugi frá London og mætti stuttu síðar til yfir-
heyrslu.
Tíu starfsmenn Glitnis, Saga Capi-
tal og FL Group voru yfirheyrðir á
þriðjudag vegna rannsóknarinnar
og fleiri bættust í þann hóp í gær.
Yfirheyrslurnar í gær stóðu fram
á kvöld.
Auk Glitnis beinist rann-
sóknin meðal annars að félög-
unum Stím, Baugi, FL Group,
101 Capital, Fons og Land-
ic Properties. Félögin voru
öll á vegum fólks úr svo-
kallaðri sjömenningaklíku
Jóns Ásgeirs Jóhannessonar;
Ingibjargar Pálmadóttur, Hannesar
Smárasonar, Pálma Haraldssonar og
Jóns Ásgeirs sjálfs. Ólafur Þór Hauks-
son, sérstakur saksóknari, segir að
lagt hafi verið hald á töluvert magn af
gögnum í húsleitunum tuttugu vegna
málsins á þriðjudag. Nokkurn tíma
muni taka að fara yfir þau.
Meðal þeirra sem hafa verið yfir-
heyrðir vegna málsins er Magnús Pálmi
Örnólfsson, sem var sjóðsstjóri gjald-
eyrissjóðsins GLB FX. Sjóðurinn
keypti verðlaust skuldabréf á Stím
hf. af Saga Capital á 1,2 milljarða
haustið 2008. Fréttablaðið hefur
síðan á þriðjudag ítrekað reynt að
ná tali af Magnúsi Pálma til að leita
skýringa á því hvers vegna sjóður-
inn kaus að skera Saga Capital úr
snörunni með þessum hætti. Til-
raunirnar hafa ekki borið árangur
og Magnús Pálmi hefur ekki svar-
að skilaboðum blaðsins. - sh
Fjölgað hefur um nokkra í hópi yfirheyrðra vegna Glitnismálsins:
Lárus Welding yfirheyrður í gær
LÁRUS WELDING Í
viðtali í Silfri Egils
örfáum vikum fyrir
bankahrun sagði
Lárus að Stím-við-
skiptin hefðu bara
verið viðskipti eins
og hver önnur sem
bankinn gerði.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
VIÐSKIPTI Gengi hlutabréfa banda-
ríska bílaframleiðandans Gener-
al Motors, GM, hækkaði um tæp
átta prósent frá útboði í fyrstu við-
skiptum með bréfin á hlutabréfa-
markað í New York í í gær.
Bandaríska ríkið lagði í kringum
fimmtíu milljarða dala, jafnvirði
5.600 milljarða króna á núvirði, til
fyrirtækisins til að forða því frá
þroti í fyrra. Fyrirtæki stjórnvalda
sem skráð er fyrir hlutnum seldi
um fjörutíu prósent af hlutafjár-
eign sinni í útboðinu. Bloom berg-
fréttastofan segir ríkið geta komið
út á sléttu selji það afganginn, 37
prósenta eignahlut, á rétt rúma 53
dali á hlut. - jab
SKRÁNINGU FAGNAÐ Bílar GM stóðu
fyrir utan kauphöllina í New York í tilefni
af skráningu á markað. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
GM aftur á hlutabréfamarkað:
Ríkið gæti kom-
ið út á sléttu
LÖGREGLUMÁL Karlmaður á fer-
tugsaldri hefur verið úrskurðað-
ur í gæsluvarðhald til 1. desem-
ber eftir að hafa reynt að smygla
um 800 grömmum af amfetamíni
til landsins. Maðurinn hafði falið
amfetamínið í tveimur pörum af
skóm sem hann hafði meðferðis,
samkvæmt upplýsingum Frétta-
blaðsins.
Maðurinn er serbneskur en
hefur komið hingað til lands í
nokkrum sinnum. Tollgæslan á
Keflavíkurflugvelli stöðvaði hann
síðastliðinn miðvikudag, þegar
hann var að koma til landsins frá
Kaupmannahöfn. - jss
Handtekinn með amfetamín:
Með eiturlyf
í skónum
UMHVERFISMÁL Færeyingar eru ævareiðir
Skotum en fyrirtæki í Skotlandi hefur þegið
styrk Evrópusambandsins upp á hundrað
þúsund pund, jafnvirði átján milljóna króna.
Fyrirtækið veiðir lax í net.
Færeyingar segja styrkveitinguna geta
stefnt alþjóðlegum samningum um verndun
laxastofna í hættu. Í netútgáfu breska dag-
blaðsins The Times í gær kom fram að reiði
Færeyinga væri slík að þeir hótuðu að hefja
veiðar á laxi í net á ný.
Orri Vigfússon, formaður Norður-Atlants-
hafslaxasjóðsins (NASF), segir ólíklegt að
Færeyingar hóti þessu og málið hljóti að vera
byggt á misskilningi Times. Færeyingar hafi
gert verndarsamning við NASF árið 1991 og
hafi þeir leyfi til að veiða 550 tonn af laxi á 26
línubátum á sjó. „Færeyingar hugsa mikið um
gæði. Netveiddur lax er verri og lítið fæst fyrir
hann miðað við línuveiddan fisk,“ segir Orri og
efast stórlega um að Færeyingar hlaupi til og
byrji að veiða lax í net í allra nánustu framtíð.
Hann bendir á að NASF hafi keypt upp neta-
rétt við strendur flestra landa sem liggi við
Atlantshaf. Skotar og Norðmenn hafi alltaf
verið til vandræða, þeir vilji þjóðnýta réttindi
landeigenda að ám og vötnum. „Skotar halda
alltaf að allt sé frítt. Þegar þeir greiddu í sjóð-
inn okkar söfnuðu þeir í hann í Bretlandi,“
segir Orri. - jab
Breska blaðið Times segir Færeyinga ævareiða Skotum og hóta að veiða lax í net á nýjan leik:
Þáðu netaveiðistyrk frá Evrópusambandinu
ORRI VIGFÚSSON Skotar og Norðmenn hafa alltaf
verið til vandræða, segir formaður NASF.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
LÆKNAVAKTIN Á SMÁRATORGI Formaður samninganefndar sérfræðilækna, Kristján Guðmundsson, segir að þeir muni ekki semja
um átján prósenta lækkun á taxta til að mæta sparnaðarkröfu fjárlaga. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI