Fréttablaðið - 19.11.2010, Blaðsíða 82
58 19. nóvember 2010 FÖSTUDAGUR
FÓTBOLTI Nú liggja fyrir drög að
niðurröðun leikja í Pepsi-deild karla
næsta sumar. Þátttaka íslenska U-
21 landsliðsins í EM í Danmörku
næsta sumar hefur mikil áhrif en
mótið fer fram dagana 11.-25. júní.
Gert er ráð fyrir því að Íslands-
mótið hefjist 1. maí en ljúki 1.
október. Um talsvert lengra tímabil
er að ræða en á síðasta sumri þegar
tímabilið hófst 10. maí og lauk 25.
september.
Samkvæmt þeim drögum sem
liðin í Pepsi-deild karla fengu að sjá
á dögunum er gert ráð fyrir fimm
umferðum í maímánuði, rétt eins
og í fyrra.
Hins vegar eiga 6. og 7. umferð-
in að fara fram á meðan EM í Dan-
mörku stendur. Þau félög sem eiga
leikmenn í U-21 landsliðinu geta
fengið þeim leikjum flýtt fram í
maí og myndu þá spila sjö deildar-
leiki í þeim mánuði auk þess sem
gert er ráð fyrir því að 16 liða úrslit
bikarkeppninnar fari fram 29.-30.
maí.
Ef af því verður er ljóst að álagið
á leikmenn verður mikið í maí, sem
og á sjálfa vellina sem oft hafa
verið viðkvæmir snemma vors.
Þó er enn verið að vinna að drög-
unum og verða lokatillögur lagðar
fyrir formenn og framkvæmda-
stjóra félaganna á fundi um helgina.
Heimildir Fréttablaðsins herma að
til standi að spila heila umferð eftir
landsleik Íslands og Danmerkur 4.
júní og áður en EM í Danmörku
hefst 11. júní. Það gæti mögulega
létt á álaginu í maímánuði.
- esá
Drög að niðurröðun fyrir Pepsi-deild karla 2011:
Mögulegt að lið spili
sjö leiki strax í maí
MIKIÐ ÁLAG Úr leik Breiðabliks og Stjörnunnar á síðasta sumri en Blikar mega eiga
von á því að missa einhverja leikmenn í U-21 landsliðið í júní. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
VILDARÁSKRIFT AÐ STÖÐ 2 INNIHELDUR AUK STIGVAXANDI AFSLÁTTAR. 512 5100 STOD2.IS VERSLANIR VODAFONE VERSLANIR OG ÞJÓNUSTUVER SÍMANS 800 7000
ÞAÐ ER AUÐVELTAÐ KAUPA ÁSKRIFT ÁSTOD2.IS
Ný alíslensk og hörkuspennandi gamanþáttaröð í 12 þáttum. Siggi Hlemm er fráskilinn
ljúflingur á fertugsaldri sem erfir myndbandaleigu eftir föður sinn. En rekstur mynd-
bandaleigu er honum síður en svo efst í huga því lengi hefur hann gælt við þá hugmynd
að gerast alvöru einkaspæjari. Úr því rætist þegar hann flækist inn í stórhættulegt og
eldfimt sakamál sem teygir anga sína mjög víða.
HANDBOLTI Þungu fargi var létt af
leikmönnum Vals í gær eftir 22-23
sigur á Aftureldingu. Fyrsti sigur
liðsins í N1-deildinni í sjö leikjum
var staðreynd og leikmenn fögn-
uðu inni í klefa líkt og þeir væru
orðnir Íslandsmeistarar. Lái þeim
hver sem vill eftir verstu byrjun í
sögu félagsins.
„Þetta var virkilega sætt enda
búið að vera djöfull erfitt. Það var
enn sætara að ná sigri í svona leik
á þetta erfiðum útivelli þar sem
margt var á móti okkur,“ sagði
Júlíus Jónasson, þjálfari Vals,
sem gat loksins leyft sér að brosa
í leikslok.
Leikurinn í gær fer ekki í sögu-
bækurnar fyrir gæði en skemmti-
legur var hann. Sveiflurnar voru
með ólíkindum og dramatíkin hélst
allt til loka.
Í stöðunni 6-6 spóluðu Valsmenn
fram úr og náðu sex marka for-
skoti, 6-12. Í upphafi síðari hálf-
leiks náðu þeir sjö marka forskoti,
7-14, en þá hófst endurkoma heima-
manna. Þeir minnkuðu muninn í
eitt mark, 13-14, og jöfnuðu loks-
ins í stöðunni 20-20 þegar rúmar
fimm mínútur voru eftir.
Þá fóru þeir ákaflega illa að ráði
sínu. Létu reka sig ítrekað af velli
fyrir klaufaleg brot og það nýttu
Valsmenn sér til þess að merja
sigur og það mikilvægan. Sigurinn
var svo sannarlega ekki fallegur
og það eru enn verulegar brota-
lamir á leik Valsliðsins. Sigurinn
ætti þó að gefa þeim smá byr í
seglin.
„Síðustu vikur hafa verið mjög
erfiðar fyrir okkur en þetta er eitt-
hvað til að byggja ofan á. Menn
verða samt að gera sér grein fyrir
því að þeir verða að leggja enn
harðar að sér til þess að ná næstu
stigum. Þetta kemur ekkert af
sjálfu sér þó svo að við höfum
unnið einn leik,“ bætti Júlíus við.
Mosfellingar hafa verið að missa
menn í meiðsli og gamlar kempur
voru því mættar á svæðið. Hauk-
ur Sigurvinsson stal senunni með
ótrúlegum leik í gær en það dugði
ekki til.
„Það var hrikalegt að tapa þess-
um leik og enn eina ferðina töpum
við leik í restina á heimavelli. Það
er ekki nógu gott. Við töpuðum
þessum leik samt ekki raunveru-
lega þá heldur þegar við lentum
mörgum mörkum undir í síðari
hálfleik. Strákarnir sýndu síðan
karakter að koma til baka en við
verðum að gera betur,“ sagði
hundsvekktur þjálfari Aftureld-
ingar, Gunnar Andrésson.
henry@frettabladid.is
Þetta var virkilega sætt
Sex leikja taphrinu Vals lauk í Mosfellsbænum í gær er Valsmenn mörðu sigur á
baráttuglöðu liði Aftureldingar. Litlu munaði að Valur glutraði niður unnum leik.
LANGÞRÁÐUR FÖGNUÐUR Valsmaðurinn Ernir Hrafn Arnarsson fagnar en hann
mætti í gær sínu gamla félagi úr Mosfellsbænum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI