Fréttablaðið - 19.11.2010, Blaðsíða 30
19. nóvember 2010 FÖSTUDAGUR30
timamot@frettabladid.is
„Það er um að gera að gera sér dagamun þegar tilefnið
gefst,“ segir Pétur Eggerz leikari en hann fagnar fimmtugs-
afmæli sínu í dag með fjölskyldu og vinum.
Pétur ólst upp í Reykjavík en fjölskylda hans var meðal
frumbyggja í Breiðholti og flutti inn í fyrstu blokkina sem
þar var byggð, á H-daginn 1968. Pétur segir gaman að hafa
alist upp í hverfi í mótun. „Þá var Breiðholtið nánast uppi í
sveit. Allir skólar sem maður fór í voru nýir, fyrst var ég í
Breiðholtsskóla, tók landspróf í Hólabrekkuskóla og fór svo
í Fjölbraut. Mér leið mjög vel að alast þarna upp, enda er ég
aftur kominn í Breiðholtið.“
Aðspurður segist Pétur fjölskyldumaður. Stórfjölskyld-
an sé samheldin og hittist oft. „Við erum þrjú systkinin.
Mamma kemur úr stórri og samheldinni fjölskyldu en hún
er yngst af fimmtán systkinum. Eins er föðurfjölskylda mín
samheldin. Ég og Alda, konan mín eigum tvo unglinga og
hún uppkominn son sem sjálfur er kominn með börn. Auð-
vitað finnst manni alltaf að maður mætti eyða meiri tíma
með fjölskyldunni, hún skiptir mig miklu máli.“
Pétur er einn af stofnendum Möguleikhússins og rekur
það enn ásamt eiginkonu sinni. Þessa dagana er hann á
þönum milli sýninga og æfinga en þessi árstími er anna-
samur hjá Möguleikhúsinu. „Við erum með fjórar sýningar í
gangi og erum að æfa upp tvær sýningar fyrir jólin. Desem-
ber er annasamur en við hjálpum Þjóðminjasafninu að taka
á móti jólasveinunum.“ Aðspurður hvort leiklistarbakterían
hafi gripið hann snemma segist Pétur hafa byrjað að leika
í barnaskóla. „Ég tók síðan þátt í að stofna leikfélag í FB en
það var þó ekki fyrr en dálitlu eftir að ég kláraði stúdentinn
að mér datt í hug að leggja leiklistina fyrir mig. Ég fór þá
til London í leiklistarnám og hef starfað við leiklist meira
og minna síðan.“
Þegar Pétur er spurður hvort hálfrar aldarafmæli sé til-
efni til að horfa yfir farinn veg segir hann öll tímamót til-
efni til að líta bæði um öxl, en líka til framtíðar. „Ég er mjög
sáttur við mitt líf og starf og lít bjartsýnn fram á veginn.
Það er góð tilfinning að eldast.“ heida@frettabladid.is
PÉTUR EGGERZ LEIKARI: FIMMTUGUR
Góð tilfinning
að eldast
75 GUÐRÚN ÁSMUNDSDÓTTIR leikkona er 75 ára í dag. „Ef við höfum ekki vinnu er um að gera að búa
hana til og þá fara æfintýrin að gerast.“
ÁNÆGÐUR MEÐ LÍFIÐ Pétur Eggerz fagnar fimmtugsafmæli í dag og
segir það góða tilfinningu að eldast. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
Olgeir Gottliebsson
fv. hitaveitustjóri, Túngötu 1,
Ólafsfirði,
lést þriðjudaginn 9. nóvember. Útför hans fer fram frá
Ólafsfjarðarkirkju laugardaginn 20. nóvember
kl. 14.00.
Unnur Lovísa Friðriksdóttir
Friðrik G. Olgeirsson Guðrún Þorsteinsdóttir
Sigríður Olgeirsdóttir Björn Gunnarsson
Snorri Þ. Olgeirsson Rósa Einarsdóttir
og barnabörn
Móðir okkar,
Hjördís Þorsteinsdóttir
Blikaási 25, Hafnarfirði,
andaðist þann 14. nóvember síðastliðinn.
Íris Randversdóttir
Randver Þ. Randversson
Lára Björk Steingrímsdóttir
Margrét Hildur Steingrímsdóttir
Rafnar Steingrímsson
Okkar bestu þakkir til allra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug vegna andláts
móður okkar, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
Gestheiðar Jónsdóttur
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á
hjúkrunarheimilinu Eir fyrir góða umönnun.
Anna Kristjánsdóttir
Grímkell Pálsson
Sigríður Eikaas
og fjölskyldur
80 ára afmæli
Hann Sumarliði á
Ferjubakka verður
80 ára 22. nóv.
Af því tilefni langar okkur að gleðjast
með vinum og vandamönnum laugar-
daginn 20. nóv. frá kl. 15.00 á Valfelli
í Borgarhreppi.
Systkinin
Vinsamlegast látið vita ef þið sjáið ykkur
fært að koma í síma 861-1432 eða
evasum@simnet.is
Konan mín, móðir, tengdamóðir,
amma og langamma,
Kristbjörg
Benediktsdóttir
lést á Landspítalanum við Hringbraut föstudaginn 12.
nóvember sl. Útför hennar fer fram þriðjudaginn 23.
nóvember kl. 13.00 frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði.
Hörður Hjartarson
Benedikt Harðarson Jóhanna Ólafsdóttir
Una Björk Harðardóttir Pétur Hansson
Hörður Harðarson Guðrún Hrund Sigurðardóttir
Brynjar Harðarson Guðrún Árnadóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Þökkum auðsýnda samúð og vináttu
við andlát og útför föður okkar, tengda-
föður, afa og langafa,
Sigurðar Lárusar
Kristjánssonar
(Sigga í Bót)
Lindasíðu 4, Akureyri.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Lyflækningadeildar
Sjúkrahússins á Akureyri og Öldrunarlækningadeildar
Kristnesspítala.
Kristján Jakob Pétursson Ragnheiður Ólafsdóttir
Guðmundur Friðrik Sigurðsson Auður Hansen
Ingibjörg Anna Sigurðardóttir Gunnlaugur Sverrisson
Harpa Hrönn Sigurðardóttir Gunnar Viktorsson
Kristlaug María Sigurðardóttir Loftur Guðni Kristjánsson
Íris Halla Sigurðardóttir Jón E. Árnason
afa- og langafabörn.
Hjartans þakkir færum við öllum þeim
sem sýndu okkur samúð, vináttu og hlý-
hug við andlát og útför ástkærs eigin-
manns míns, föður okkar, tengdaföður,
sonar, bróður og mágs,
Gísla Haukssonar
Hólmvaði 2, Reykjavík.
Karen S. Kristjánsdóttir
Unnur Gísladóttir Einar Ómarsson
Anna Kristín Gísladóttir
Unnur Gísladóttir Haukur Berg Bergvinsson
Halldór Hauksson Sumarlína Pétursdóttir
Bergrós Hauksdóttir
Kristjana Berg Hauksdóttir
Ástkær sonur okkar, bróðir og frændi,
Birgir Örn Lárusson
Vallarbarði 13, Hafnarfirði,
varð bráðkvaddur að heimili sínu sunnudaginn
14. nóvember. Útförin fer fram frá Víðistaðakirkju
þriðjudaginn 23. nóvember kl. 15.00.
Lárus Geir Brandsson Ingibjörg Marinósdóttir
Íris Dögg Lárusdóttir Hafdís Kristín Lárusdóttir
Lilja Benediktsdóttir Rakel Auður Árnadóttir
MOSAIK
Þökkum auðsýnda samúð, hlýhug og
vináttu við andlát og útför elskulegrar
móður okkar, tengdamóður, ömmu,
langömmu og langalangömmu,
Mörtu Sonju
Magnúsdóttur
Sérstakar þakkir viljum við færa starfsfólkinu á
Hrafnistu í Reykjavík fyrir góða umönnun, ljúft viðmót
og hlýju.
Aðstandendur.
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.