Fréttablaðið - 19.11.2010, Blaðsíða 36
19. nóvember 2010 FÖSTUDAGUR4
„Ég lagði höfuðið lengi í bleyti til að
finna nafn við hæfi og sem tengd-
ist kökuskreytingum, en nafnið er
lýsandi fyrir ástandið í þjóðfélag-
inu, að hér fáist allt í köku og auð-
vitað að fólk komi allt í köku,“ segir
brosmild Kristín Eik Gústafsdóttir
sem á morgun lætur drauma sína
rætast og heldur upp á opnun köku-
skreytingabúðar sinnar Allt í köku,
um leið og hún fagnar þrítugsafmæli
sínu og meistaragráðu í stjórnun og
stefnumótun frá Háskóla Íslands. Á
sunnudag opnar verslunin svo form-
lega almenningi.
„Við Katrín systir áttum ekki
aftur kvæmt frá hrærivélinni eftir
að komið var að okkur að halda
barnaafmæli. Það eru ekki nema
tvö ár síðan en bara á þeim stutta
tíma erum við báðar orðnar for-
fallnar kökuskreytingarkonur og
vitum ekkert skemmtilegra en að
föndra við kökuskraut. Hins vegar
kom fljótt í ljós að efniviður til
kökuskreytinga var afar fátæk-
legur hér heima svo við fórum að
panta vörur að utan. Við það opnað-
ist heimur kökuskreytinga og opin-
beraðist enn betur hversu Íslend-
ingar eru ótrúlega skammt á veg
komnir í kökuskreytingum því fari
maður til Bandaríkjanna, sem er
mekka kökuskreytingarmenning-
ar, er ekki þverfótað fyrir heillandi
sérverslunum og heilu samfélögin
til í kringum kökuskreytingar. Ég
sá því í hendi mér að svona verslun
sárvantaði heima og ákvað að kasta
örlagateningunum,“ segir Kristín
Eik um þessa skemmtilegu viðbót í
flóru sælkeraverslana. Einnig verð-
ur hægt að kaupa allt í köku í vef-
versluninni www.alltikoku.is, þar
sem líka má finna skemmtilegan
fróðleik um kökuskreytingar, kon-
fekt, mótagerð og bakstur.
„Sykurmassi er töfraefni í köku-
skreytingar og möguleikarnir óþrjót-
andi. Landsmenn geta nú loks unnið
með fínasta sykurmassamerki ver-
aldar, sem er SatinIce frá Satin Fine
Foods, og notaður af bestu bökurum
heims, en margir þekkja merkið úr
frægustu kökuþáttum sjónvarps-
stöðvanna. Þá erum við með duftsyk-
urmassa sem er frábær í skreyting-
ar sem á að geyma, því hann þornar
upp og hægt að geyma stytturn-
ar áratugum saman eins og hverj-
ar aðrar postulínsstyttur,“ segir
Kristín Eik í heimilislegri verslun
sinni þar sem finna má úrval sykur-
massa- og konfektmóta, tilbúinn syk-
urmassa, mynstur mottur, matarliti,
skrautsykur, piparkökumót, bækur,
bökunarmót og gómsæt bragðefni.
„Hér er nú ævintýraland bak-
arans og algjör veisla að koma því
loks fæst allt sem þarf í dýrind-
is kökuskreytingar á einum stað.
Kökuskreytingar eru afbragðs útrás
fyrir sköpunarkraftinn og allir geta
spreytt sig á fallegri köku með aðdá-
unarverðum árangri,“ segir Kristín
Eik og útskýrir ánægjuna við köku-
og konfektgerð.
„Allir verða svo einlægt ánægðir
þegar þeim eru boðin sætindi. Það
eru laun sem enginn stenst eftir
vinnu að baki gómsætrar og fagurr-
ar köku.“
Allt í köku er á Suðurlandsbraut 4
og verður opin alla virka daga. Sjá
nánar á www.alltikoku.is.
thordis@frettabladid.is
Enginn stenst fagra köku
Dyr að ævintýralandi allra sem elska fallegar kökur, konfekt og sætindi ljúkast upp á sunnudaginn
þegar kökuskreytingabúðin Allt í köku verður opnuð með áður óséðu úrvali kökuskreytingarvarnings.
Sykurmassi býður upp á endalaus tæki-
færi fyrir ímyndunaraflið í kökugerð.
Styttur úr sykurmassa, eins og þessi af litla barninu sofandi, má geyma áratugum
saman og vinsælt að nota slíkar styttur aftur og aftur á skírnartertur í fjölskyldum.
Kristín Eik Gústafsdóttir, eigandi Allt í köku, heldur spennandi námskeið í sykurmassa-
gerð, sykurmassaskreytingum og konfekt- og mótagerð eftir jól. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Loi Krathong, árleg hátíð
Taílendingafélagsins á Íslandi,
verður haldin í Rimaskóla á
morgun frá klukkan 11 til 18.
Löng hefð er fyrir hátíðinni í
Taílandi, en hún er til dýrðar
gyðju vatnsins og haldin á fullu
tungli í tólfta mánuði taílenska
tunglalmanaksins.
„Við erum bara að fagna okkar
menningu og samvinnu Taílend-
inga á Íslandi,“ segir Petra Delux-
sanna formaður Taílendinga-
félagsins. „Þetta er tækifæri til að
gera eitthvað saman og vera fín í
taílensku búningunum okkar, sem
við fáum ekki oft tækifæri til að
nota.“
Fjölbreyttur taílenskur matur
verður seldur á hátíðinni og eins
og venjan er rennur allur ágóðinn
til styrktar góðu málefni. „Í fyrra
vorum við að safna fyrir Búdda-
félagið á Íslandi,“ segir Petra,
„en núna verður allur ágóðinn
sendur til Taílands til að hjálpa
þeim sem urðu illa úti í flóðunum
í október.“
Hátíðin er öllum opin enda
segir Petra að í hugum Taílend-
inga þýði hátíð einmitt að allir séu
velkomnir. - fsb
Hátíð þýðir að allir eru velkomnir
Loi Krathong, hátíð Taílendingafélagsins, verður haldin í Rimaskóla á morgun.
Myndin var tekin á hátíð í Ráðhúsi Reykjavíkur. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Nýsköp-
unarmessa
Háskóla
Íslands
verður
haldin á
Háskólatorgi í dag milli
klukkan 11 og 17.15.
Þar verða Hagnýtingar-
verðlaun HÍ afhent
auk þess sem sprota-
fyrirtæki sem hafa
sprottið úr jarðvegi
Háskólans verða með
kynningu. Þau eru
Amivix, Gavia, Global-
Call, Meniga og Ýmir
Mobile.
Heimild: www.
hi.is
Allur ágóði rennur til verkefna innanlands.
NemendurMenntaskólans í Kópavogi íáfanga
umsjálfboðiðRauðakross starf sjá um markaðinn.
RAUÐA KROSSINS
20. nóvember
Kópavogsdeild Rauða krossins heldur markað laugardaginn
20. nóvember kl. 11-16 í Rauðakrosshúsinu Hamraborg 11, 2. hæð.
Seld verða handverk sjálfboðaliða deildarinnar, sauma- og prjónavörur,
kökur og annað föndur. Þá verða notuð föt til sölu og skiptidótamarkaður
einnig í gangi þar sem fólki gefst tækifæri til að koma með dót og skipta
út fyrir annað. Einnig verður hægt að kaupa notuð leikföng á vægu verði.
Auk þessa verður handverk frá Mósambík til sölu, skartgripir, töskur,
batik-myndir og fleira.
MARKAÐUR
HERRA-
KULDASKÓR
Úrval af herrakuldaskóm
úr leðri, fóðruðum
með lambsgæru.
Stærðir: 41 - 47
Verð: 23.700.-
Sími 551 2070.
Opið mán.-fös. 10-18.
Laug. 10-14.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.misty.is
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
Meiri Vísir.