Fréttablaðið - 19.11.2010, Blaðsíða 35
FÖSTUDAGUR 19. nóvember 2010 3
Sögufélagið Steini stendur fyrir
þjóðlegri sögustund á morgun,
laugardag, í Klébergsskóla á
Kjalarnesi.
Sögustundin sem Sögufélagið
Steini stendur að er hugsuð sem
eins konar framhald af degi
íslenskrar tungu 16. nóvember
síðast liðinn.
Þema sögustundarinnar er þjóð-
skáldið Matthías Jochumsson, sem
meðal annars var prestur á Kjalar-
nesi, en nú í nóvember eru 175 ár
liðin frá fæðingardegi hans sem
og 90 ár frá dánardegi hans, en
Matthíast lést 18. nóvember 1920.
Gestir sögustundarinnar eru rit-
höfundurinn og sagnfræðingurinn
Þórunn Erlu-Valdimarsdóttir, sem
meðal annars skrifaði bókina Upp
á Sigurhæðir sem fjallar um ævi
Matthíasar. Erindi Þórunnar nefn-
ist Matthías Jochumsson – Einn
frægasti nábúi Esju.
Ljóð eftir Matthías sem og brot
úr leikverki hans, Skugga-Sveini,
verða lesin af Jóni Júlíussyni leik-
ara og Geirlaugu Þorvaldsdóttur
leikkonu. Þá flytja nemendur úr
Klébergsskóla tónlistaratriði og
séra Gunnar Kristjánsson flytur
erindi um þau ár sem Matthías bjó
á Móum. Dagskráin hefst klukkan
16 og aðgangseyrir er 1.000 krón-
ur. - jma
Þjóðleg sögustund
Þórunn Erlu-Valdimarsdóttir er meðal
þeirra sem fjalla um Matthías Jochums son
í Klébergsskóla á Kjalarnesi á morgun.
Tónlist á mörkum djass og blús er
þema tvennra tónleika sem kvart-
ett saxófónleikarans Sigurðar
Flosasonar heldur í Risinu næst-
komandi sunnudags- og mánudags-
kvöld.
Tónlistin er að hluta til ný og
að hluta til gömul, meðal annars
af plötunum Blátt ljós og Bláir
skuggar en þó verður ekki sama
efnisskráin á báðum tónleikun-
um.
Auk Sigurðar skipa kvartettinn
þeir Þórir Baldursson á Hammond-
orgel, Andrés Þór Gunnlaugsson á
gítar og Einar Scheving á tromm-
ur. - jma
Klúbbvæn
djasstónlist
Kvartett Sigurðar Flosasonar
heldur tvenna tónleika í Risinu.
Efnisskrá tónleikanna sem kvartett
Sigurðar Flosasonar stendur fyrir um
helgina er ekki sú sama bæði kvöldin.
Vegna alþjóðlegu athafnavikunnar verður Vísinda-
porti Háskólaseturs Vestfjarða breytt í Kaffihúsið Ver-
öld. Þar munu ólíkir einstaklingar hittast og ræða vel
valin málefni í hópum. Að lokum verða niðurstöður
umræðnanna settar á „vegg viskunnar“ og í framhald-
inu birtar á netinu. Kaffihúsið verður opnað kl. 12.10.
heimild. www.hsvest.is
Kæru viðskiptavinir
DIGRANESVEGUR 10 // 200 KÓPAVOGUR // SÍMI 527 2777 // INFO@MYSECRET.IS // WWW.MYSECTRET.IS
Þar sem okkur er óheimilt að vera með fullyrðingar sem eru
ekki vísindalega rannsakaðar, höfum við breitt því og eru nýjar
vörur komnar á markaðinn. Ýmsar heimildir frá virtum háskólum
víðsvegar um heiminn ásamt rannsóknum og sögum sýna að
engifer er talinn vera mjög virk jurt við ýmsum kvillum.
Í aada frá My Secret er einungis notaður 100% ferskt engifer.
aada er íslenskt vörumerki og íslensk framleiðsla.
„Engifer hefur verið einn af hornsteinum austurlenskra náttúrulækninga í þúsaldir”
Heimild: www.lyfja.is
„Engiferdrykkurinn aada hefur hjálpað mér við gigt og bólgum“
Reynsludaga: Anna Árnadóttir
„Engifer virkar jafnvel gegn vöðvaverkjum og slitgigt og verkjalyf”
Heimild: www.heilsuhusið.is
„Engifer hefur í nokkur ár verið rannsakaður við liðverkjum og bólgum”
Heimild: www.heilsa.is
Fleiri reynslusögur viðskiptavina okkar er að finna á www.mysecret.is
Á tilboði fram að jólum
í næstu verslun
Engiferdrykkurinn aada
frá My Secret
E n g i f e r e h f | D i g r a n e s v e g i 1 0 | 2 0 0 K ó p a v o g i | S í m i 5 2 7 - 2 7 7 7 | w w w. m y s e c r e t . i s