Fréttablaðið - 19.11.2010, Blaðsíða 86
62 19. nóvember 2010 FÖSTUDAGURFÖSTUDAGSLAGIÐ
„Lag sem kemur mér alltaf í gír-
inn á föstudögum er On to the
Next One með Jay-Z og Swizz
Beatz.“
Pálmi Ragnar Ásgeirsson, lagahöfund-
ur og meðlimur upptökufyrirtækisins
StopWaitGo.
„Núna langar mig að líma allt dótið
mitt á mig svo það verði ekki tekið
af mér,“ segir Athena Ragna, fyrir-
sæta og nemi í tískumarkaðssetn-
ingu í Kaupmannahöfn.
Athena lenti í því á dögunum að
vera rænd tvisvar á einni viku á
götum Kaupmannahafnar. Ráns-
alda gengur yfir borgina þessa
dagana og danskir fjölmiðlar hafa
hvatt almenning til að vera á betur
á varðbergi en áður. Athena vonast
til að reynsla hennar verði öðrum
víti til varnaðar, enda Kaupmanna-
höfn gríðarlega vinsæll viðkomu-
staður Íslendinga, sem hafa hingað
til ekki nefnt borgina á nafn í sömu
andrá og vasaþjófa.
Þegar fyrra ránið var framið
var Athena á leiðinni á Ráðhús-
torgið á sunnudegi. Mikið af fólki
var á ferðinni og hún rakst utan í
nokkra á leið sinni. „Svo þegar ég
ætlaði að fá mér að borða með vin-
konu minni var ekkert veski, engin
myndavél og enginn sími. Ég tók
ekkert eftir þessu,“ segir hún. „Ég
tek fulla ábyrgð á seinna ráninu
því þá var ég bara kærulaus. Ég lét
töskuna mína frá mér þegar ég var
á Strikinu. Ég sá engan í kringum
mig nema fólkið sem var með mér.
Svo 30 sekúndum seinna var task-
an horfin.“
Seinni þjófarnir komust á brott á
með það sem fyrri þjófarnir náðu
ekki: eldri bráðabirgðasíma, hús-
lykla og lestarkort. Athena tekur
þessari einstöku óheppni með jafn-
aðargeði. „Í fyrsta skipti var ég
miður mín, en í annað skipti var
ég bara „nei, kommon!“. Mamma
mín skellihló líka þegar hún frétti
þetta,“ segir hún og játar að hún sé
miklu varkárari í dag.
Fólkið í kringum Athenu hefur
einnig orðið fyrir barðinu á þjófum
sem hafa verið sérstaklega klókir
undanfarið. „Það komu stelpur
í heimsókn yfir helgi og tvær af
þeim voru rændar, strákurinn
sem ég bý með var rændur, tvær
stelpur úr bekknum mínum voru
rændar. Þetta er alltaf að gerast,“
segir Athena.
Fréttablaðið greindi frá ævintýr-
um Athenu í sumar, en til stóð að
hún léki lítið hlutverk í kvikmynd
Guy Maddin, Keyhole. Krepp-
an kom í veg fyrir það þegar hún
var komin með handrit og flug-
miða í hendurnar á leið til Kan-
ada, þar sem myndin er tekin upp.
Framleiðendurnir höfðu ekki efni
á að greiða henni laun og uppi-
hald og var því heimastúlka feng-
in í hlutverkið. „Þetta var búið að
vera í gangi frá því í febrúar. Ég
var heillengi að sannfærast, en svo
var þetta loksins að fara að gerast,“
segir Athena sem tekur óheppninni
með stóískri ró. „Skítur skeður.“
atlifannar@frettabladid.is
ATHENA RAGNA: NÚNA LANGAR MIG AÐ LÍMA ALLT DÓTIÐ MITT Á MIG
Rænd tvisvar á einni viku
á götum Kaupmannahafnar
ANSANS ÓHEPPNI Athena lenti í því að vera rænd tvisvar á einni viku í Kaupmanna-
höfn. Hún flutti þangað fyrir þremur mánuðum og leggur stund á nám í tísku-
markaðssetningu. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
„Við verðum í Noregi um jólin og áramótin en
þegar við fréttum af þessum tónleikum fannst
okkur lítið tiltökumál að bæta Íslandi á listann,“
segir Ástralinn Craig Murray. Hann hyggst
fljúga alla leið til Íslands og vera viðstaddur jóla-
tónleika Frostrósa sem haldnir verða á Akureyri
um miðjan næsta mánuð. Murray er að eigin sögn
forfallinn Eurovision-aðdáandi og hefur verið
allar götur síðan Abba-flokkurinn kom, sá og
sigraði árið 1974. Hann ætti því að fá nóg fyrir
sinn pening enda troða upp á tónleikunum þrír
söngvarar sem eru með slíka reynslu á bakinu:
þau Friðrik Ómar, Regína Ósk og Hera Björk.
Craig upplýsir að hann hafi notið liðsinnis Heru
Bjarkar við að panta sér hótel og miða á tónleik-
ana en hann, ásamt félaga sínum Darryl, ætla
einnig að skoða Reykjavík og fara ferðamanna-
leiðina Þingvellir-Gullfoss-Geysir. Hann viður-
kennir að þetta hljómi ekkert sérstaklega rök-
rétt, að fara frá Ástralíu til Íslands og hlýða þar á
jólatónlist, en: „Það kom okkur bara svo stórkost-
lega á óvart hvað allt er ódýrt á Íslandi, flugið til
Akureyrar kostaði nánast ekki neitt.“ Eitthvað
sem kemur ekki til af góðu.
Craig verður hins vegar ekki sleppt án þess að
hann sé spurður út í frammistöðu Heru Bjarkar
í Osló sem vakti mikla athygli en fékk ekki mörg
stig. „Ég var mjög vonsvikinn með niðurstöðuna,
ég hélt í alvöru að hún væri að fara að vinna
þessa keppni og trúði því.“ - fgg
Fljúga frá Ástralíu til að sjá Frostrósir
KEMUR HÁLFA LEIÐ YFIR HNÖTTINN Craig Murray og
unnusti hans Darryl Brown (t.h) eru miklir nautnabelgir og
ferðalangar og setja það ekki fyrir sig að koma alla leið til
Íslands til að sjá Frostrósir.
Helgi Svavar Helgason hefur tekið að sér að semja
tónlistina við rómantísku gamanmyndina Okkar
eigin Osló í leikstjórn Reynis Lyngdal. Helgi, þekkt-
astur fyrir að vera trymbill í Hjálmum og
Flís, hefur unnið töluvert með Stefáni
Jónssyni, prófessor í leiklist við Lista-
háskóla Íslands, og samdi meðal ann-
ars tónlistina við Enron sem sýnt er í
Borgarleikhúsinu.
Reynir Lyngdal segist í samtali
við Fréttablaðið einnig ætla sjálf-
ur að koma að gerð tónlistarinn-
ar. „Við erum svona að spá, ég
og Helgi, hvort við eigum ekki
að endurhljóðblanda gömul
íslensk dægurlög. Myndin á
að vera svolítið íslensk og við
viljum nýta músíkina. Það er
til svo mikið af tónlist sem
eitt sinn þótti hallærisleg
en er alveg geðveikt góð,“
segir Reynir en hann er ekki ókunnur endurhljóð-
blöndunum enda hefur hann starfað sem plötusnúður
á skemmtistöðum samhliða kvikmyndagerðarhlut-
verkinu.
Kvikmyndin er nú í klippiherberginu en
tökuliðið var nýverið í Osló að taka upp
ástarsenur. Að sögn Reynis mátti reynd-
ar litlu muna að dagsverki þeirra yrði
stolið einn daginn. „Það var brotist inn
í einn bílinn hjá okkur og við fengum
mikið sjokk því þar voru upptökur dags-
ins geymdar á geisladiski. Sem betur fer
var bara einu kvenmannsveski stolið.“
Reynir reiknar með því að myndin
verði frumsýnd í febrúar. - fgg
Helgi Svavar semur fyrir Osló
SAMAN Reynir Lyngdal og Helgi Svavar
ætla jafnvel að endurhljóðblanda
gömul íslensk dægurlög sem þóttu
einu sinni hallærisleg en gætu verið
töff í dag.
„… af þeim skáldsögum
sem þessi penni hefur lesið á þessu hausti er
MÖRG ERU L JÓN SIN S E Y RU
sú merkilegasta vegna stílgáfu, næmni og
skáldlegra tilþrifa.“ P B B / F R É T T A T Í M I N N
F B / F R É T TA B L A ÐI Ð
Fös 19.11. Kl. 20:00
Lau 20.11. Kl. 20:00
Sun 21.11. Kl. 15:00 br. sýn.t.
Lau 27.11. Kl. 20:00
Sun 28.11. Kl. 20:00
Lau 4.12. Kl. 20:00
Lau 20.11. Kl. 13:00
Lau 20.11. Kl. 15:00
Sun 21.11. Kl. 13:00
Lau 27.11. Kl. 13:00
Lau 27.11. Kl. 15:00
Sun 28.11. Kl. 13:00
Sun 28.11. Kl. 15:00 100 sýn.
Sun 5.12. Kl. 13:00 br. sýn.t.
Sun 5.12. Kl. 15:00
Mið 29.12. Kl. 16:00 br. sýn.t.
Fim 30.12. Kl. 16:00 br. sýn.t.
Fös 19.11. Kl. 20:00
Lau 20.11. Kl. 20:00
Fös 26.11. Kl. 20:00
Lau 27.11. Kl. 20:00
Fös 3.12. Kl. 20:00
Sun 5.12. Kl. 20:00
Sun 5.12. Kl. 20:00
Mið 24.11. Kl. 19:00 Aukas.
Fim 25.11. Kl. 19:00 Aukas.
Fös 10.12. Kl. 19:00 Aukas.
Lau 11.12. Kl. 19:00 Aukas.
Sun 12.12. Kl. 19:00 Aukas.
Fim 30.12. Kl. 19:00
Fös 7.1. Kl. 19:00
Lau 15.1. Kl. 19:00
Sun 16.1. Kl. 19:00
Lau 22.1. Kl. 19:00
Sun 23.1. Kl. 19:00
Fös 26.11. Kl. 20:00 Fös 2.12. Kl. 20:00 Fim 3.12. Kl. 20:00 Aukas.
U
U
Finnski hesturinn (Stóra sviðið)
Fíasól (Kúlan)
Hænuungarnir (Kassinn)
Íslandsklukkan (Stóra sviðið)
Gerpla (Stóra sviðið)
Ö
Ö
Ö
Ö
Lau 27.11. Kl. 13:00
Lau 27.11. Kl. 14:30
Sun 28.11. Kl. 11:00
Sun 28.11. Kl. 13:00
Sun 28.11. Kl. 14:30
Lau 4.12. Kl. 11:00
Lau 4.12. Kl. 13:00
Lau 4.12. Kl. 14:30
Sun 5.12. Kl. 11:00
Sun 5.12. Kl. 13:00
Sun 5.12. Kl. 14:30
Lau 11.12. Kl. 11:00
Lau 11.12. Kl. 13:00
Lau 11.12. Kl. 14:30
Sun 12.12. Kl. 11:00
Sun 12.12. Kl. 13:00
Sun 12.12. Kl. 14:30
Lau 18.12. Kl. 11:00
Lau 18.12. Kl. 13:00
Lau 18.12. Kl. 14:30
Sun 19.12. Kl. 11:00
Sun 19.12. Kl. 13:00
Sun 19.12. Kl. 14:30
Leitin að jólunum
Ö
Ö Ö
Ö
Ö
Ö
U
Ö
U
Ö
Ö
Ö
Ö
U
Ö
Ö
Ö
U
Lér konungur (Stóra sviðið)
Sun 26.12. Kl. 20:00 Frums.
Þri 28.12. Kl. 20:00 2. sýn
Mið 29.12. Kl. 20:00 3. sýn
Lau 8.1. Kl. 20:00 4. sýn
Sun 9.1. Kl. 20:00 5. sýn
Fim 13.1. Kl. 20:00 6. sýn
Fös 14.1. Kl. 20:00 7. sýn
Fös 21.1. Kl. 20:00
U
Ö
Ö
Ö
Ö
Ö
Ö
Fös 19.11. Kl. 20:00 Lau 20.11. Kl. 20:00 Sun 21.11. Kl. 14:00
Íslandsklukkan – á Akureyri (Hof, menningarhús)
U Ö
U
Ö
U
Ö Ö
Ö
Ö
U
Ö
U
Ö
U
Ö
Ö
Ö
Ö
U
U
Ö
U
U
Ö
U
U
U
U
U
U
Ö
U
U
Ö
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
MEIRI SKEMMTUN
Meiri Vísir.