Fréttablaðið - 19.11.2010, Blaðsíða 40
4 föstudagur 19. nóvember
Forboðin ást og aðrir smámunir
? Kæra Sigga Dögg, ég er í algjörum vandræðum! Ég á mjög góðan vin sem ég hangi mikið með og það er alltaf mjög gaman hjá okkur. Við höfum tvisv-
ar sinnum farið heim saman af djamminu og ég er orðin vel skotin í gaurnum.
Stundum finnst mér eins og ég finni líka fyrir áhuga frá honum, en aðra daga
finnst mér eins og hann hafi alls engan áhuga. Ég er búin að reyna að ráða í allt
sem hann segir og gerir í von um vísbendingar en kemst aldrei að neinni niður-
stöðu. Hvað get ég gert til að komast að hinu sanna?
Svar: Ég ætla að gefa mér þrjá hluti; þú vilt að þessi „vinátta“ verði að
sambandi, að fara heim saman af djamminu tákni kynlíf og loks að þú
viljir að hann sé bara með þér og engri annarri. Í mínum bókum kall-
ast vináttan sem þú lýsir „bólfélagasamband“, það er kynlíf án skuld-
bindinga. Eina leiðin til að komast að því hvort hann sé hrifinn af þér
er að spyrja hann beint út. Það eru engin „leynitákn“ til að ráða í og
sögð orð hafa ekki tvöfalda merkingu. Þú segist vera skotin í honum
og því þarftu að spyrja sjálfa þig hvernig þú ætlar að taka á því ef hann
er ekki hrifinn af þér en vill bara vera „vinur“ þinn sem fær að hanga
með þér og stunda skuldbindingarlaust kynlíf. Þú þarft að vera hrein-
skilin við sjálfa þig um það hvort þú getir og viljir vera í slíku sambandi
ef hann er ekki tilbúinn að fara í samband með þér og bara þér. Nú er
tími hreinskilni, þú þarft að spyrja hann orðrétt, „Ertu hrifinn af mér
og viltu samband?“. Ef honum vefst tunga um tönn, þá er það þitt að
taka ákvörðun um næsta skref.
?Halló Sigga Dögg, ég er búin að vera á lausu alltof lengi, alveg í þrjú ár, og er farið að langa í kærasta. Ég kynntist einum fínum gaur fyrir nokkru síðan
og við höfum verið að hittast svolítið. Hann er frábær í alla staði fyrir utan eitt,
hann klæðir sig eins og fífl og ég meika varla að sjást með honum á almanna-
færi. Er ekki gróft að dömpa frábærum strák fyrir svona „smámuni“? Og er allt-
of snemmt fyrir mig að reyna að hafa áhrif á klæðaval hans? Ég bara get ekki
horft upp á þessa hörmung mikið lengur.
Svar: Þú ert búin að vera á lausu „alltof lengi“ og hafa þrjú löng, ein-
sömul ár til að gera lista yfir hinn fullkomna mann og þegar þú svo
kynnist honum þá uppfyllir hann ekki skilyrðin um réttu klæðin. Töff
fataburður er huglægt mat. Þú getur vissulega komið með athugasemd
varðandi klæðaburð hans en ég get ekki séð að það komi þér við. Ég veit
ekki hversu lengi þið hafið verið að hittast eða hversu náin þið eruð
en, ef þetta er þitt eina umkvörtunarefni, þá væri þér nær að kíkja í
smá sjálfsskoðun. Á meðan þú hefur áhyggjur af því að dömpa honum,
hefur þér dottið í hug að hann gæti dömpað þér vegna yfirborðskennd-
ar og hégóma?
Á RÚMSTOKKNUM
Sigga Dögg kynfræðingur
Svart og seiðandi eða nátt-
úrulegt og frískandi. Hvort
tveggja er í boði ef marka
má förðun fyrirsætanna
sem svifu um tískpallana
á nýliðnum tískuvikum.
Dökk augu, brúnir tónar
og rauðir varalitir ein-
kenndu útlit sumra og
má rekja innblásturinn
til tíunda áratugarins en
sá áratugur er einnig að
verða ríkjandi í fatatísk-
unni með magabolum og
fylltum hælum.
Það þýðir þó ekki að hið
náttúrulega útlit fari hverf-
andi. Frísklegir ferskju-
litir, léttir litir á augun
og glansandi áferð á húð
var einnig áberandi. Með
góðum rakagefandi krem-
um og náttúrulegum farða
er hægt að líta frísklega út
á veturna. Föstudagur tók
saman nokkra hluti sem
hægt er að nota til að ná
hvoru útliti fyrir sig. - áp
Fjölbreytni í förðunarheiminum
FRÍSKLEGT Í BLAND
VIÐ DÖKKA TÓNA
1. OPI, From A to Z-urich naglalakk
2. Bobbi Brown, Vixen Red varalitur
3. Mac, Radiant Jewels gloss
4. Mac, Moonlight
Night, augnskuggi
5. Bobbi Brown,
Hollywood Red
Gloss
6. OPI, Just a little
rösti at this,
naglalakk
Dökkt og matt Ofurfyrir-
sætan Natalia Vodianova
með dökk augu á sýningu
Robertos Cavalli í París á
dögunum. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Ferskt Fyrirsæta sem gekk
fyrir hönnuðinn Elie Saab var
með frísklega förðun og létta
augnskugga. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Baksviðs Fyrirsæta í stóln-
um baksviðs á sýningu Gian-
franco Ferre með dökka augn-
förðun.
1. Mac, Golden Crown
augnskuggi
2. L´occitane, gloss
3. L´occitane, varalitur
og gloss
4. Clarins, Extra Firming
Foundation farði
5. Estée Lauder, Radiant
Lifting Make Up
6. Maybelline, Luminous
Matte Finish froðufarði
7. Mac, Cut a Caper,
varalitur
8. L´occitane, varalitur
9. Clarins, Instant Light
Brush on Perfector
hyljarapenni
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Sendu Siggu Dögg póst með spurningum eða óskum um umfjöllunarefni.
Netfangið er kynlif@frettabladid.is
LAUGAVEGUR 66
Mán. – Fös. 10–18.
Lau. 11–17.
HÁTÍÐARAFSLÁTTUR
FIMMTUDAG, FÖSTUDAG
& LAUGARDAG
20%
F I L I PPA K * S P ORT M A X * RÜ TZ OU * DE S IG UA L
BRU U N & S T E N G A DE * W R A N G L E R
L E E * G K R E Y K JAV Í K
& h e i t t á k ö n n u n n i