Fréttablaðið - 19.11.2010, Blaðsíða 70
46 19. nóvember 2010 FÖSTUDAGUR
Söngvaskáldið Svavar Knútur
hefur gefið út sína aðra plötu,
Amma, sem var hljóð rituð á
stofutónleikum í október. Plöt-
una tileinkar hann ömmum
sínum enda eru þau flest
komin til ára sinna og hafa
verið sungin af eldri kynslóð-
um, þar á meðal Sofðu unga
ástin mín og Kvöldið er fag-
urt.
Svavar segist eiga þrjár
ömmur en tvær þeirra eru
á lífi, þær Svava og Vilborg.
„Svava amma kom á tónleik-
ana þegar við tókum þetta
upp. Hún er voða glöð og fékk
eintak frá mér um daginn,“
segir hann. „Það er yndislegt
að fá að gera þetta. Það eru
svo mikil forréttindi að fá að
skapa svona.“
Svavar er nýkominn heim
úr mánaðarlangri tónleika-
ferð um Þýskaland til að
kynna sína síðustu plötu,
Kvöldvaka, sem kemur út þar
í landi í janúar. „Þegar ég er
að spila er ég alltaf með eitt
eða tvö gömul íslensk með.
Mér þykir vænt um þessi lög
og mér finnst þau eiga svo vel
við ömmur mínar. Maður er
líka að heiðra fortíðina með
þessu.“ Hann ætlar að fylgja
plötunni eftir með útgáfutón-
leikum þar sem frítt verður
inn fyrir allar ömmur. -fb
Svavar Knútur syngur
fyrir ömmur sínar
SVAVAR KNÚTUR Svavar tileinkar
ömmum sínum plötuna, sem
nefnist einfaldlega Amma.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Fótboltakappinn Guðmundur Reyn-
ir Gunnarsson, eða Mummi, heldur
útgáfutónleika í Iðnó á laugardag-
inn vegna sinnar fyrstu sólóplötu,
Various Times in Johnny’s Life.
Þetta verður í fyrsta sinn sem
Mummi spilar opinberlega en hann
er hvergi banginn. „Þetta er það
skemmtilegasta sem maður gerir.
Það þýðir ekkert að vera stressað-
ur.“
Hljómsveitin sem Mummi hefur
sett saman fyrir tónleikana er skip-
uð fyrrverandi félögum hans úr
þriðja flokki KR í fótbolta. Tveir
þeirra eru einnig með honum í
meistaraflokki KR, þeir Egill Jóns-
son og Atli Jónasson. „Við vorum
allir saman í þriðja flokki nema
einn. Við mynduðum svakalegt lið
á sínum tíma,“ segir bakvörðurinn
knái. Strákarnir unnu alla leikina
sem þeir tóku þátt í það sumarið og
hömpuðu bæði Íslands- og bikar-
meistaratitli.
Aðspurður segist Mummi lengi
hafa dreymt um að gera sólóplötu.
„Tónlistin er eitt af því skemmti-
legasta sem maður gerir og það
er ennþá skemmtilegra ef maður
gefur eitthvað út sjálfur.“ Hann
hefur lokið sjö stigum í píanóleik
og menntunin nýttist honum vel á
plötunni því hún er uppfull af píanó-
skotnu poppi í anda bresku hljóm-
sveitarinnar Coldplay. Mummi var
í láni hjá KR í sumar frá sænska
liðinu GAIS. Hann á þrjú ár eftir
af samningi sínum þar og veit ekki
hvað framtíðin ber í skauti sér. „Það
skýrist ekkert fyrr en um áramótin
því þeir eru í fríi núna. Það verður
bara að koma í ljós hvað gerist.“
Útgáfutónleikarnir á laugardag-
inn hefjast stundvíslega klukkan
20.30. Húsið opnar hálftíma fyrr. -fb
Meistarar saman í
hljómsveit Mumma
BÍLSKÚRSÆFING Mummi og félagar á bílskúrsæfingu fyrir tónleikana í Iðnó á laugar-
daginn. Mummi spilar á hljómborðið. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Páll Óskar Hjálmtýsson
kom í óvænta heimsókn
á leikskólann Álftaborg á
miðvikudaginn. Palli var
á leiðinni að Lyngási en
fór húsavillt og mætti því
starfsmönnum Álfta borgar
á kaffistofu leikskólans.
Heimsóknin endaði með
samsöng þar sem Palli og
börnin tóku lagið.
„Hann heillaði okkur algjör-
lega upp úr skónum,“ segir Anna
Ágústsdóttir, leikskólastjóri á
Álftaborg, en leikskólinn fékk
óvænta heimsókn frá Páli Ósk-
ari Hjálmtýssyni á miðviku-
dagsmorguninn. „Hann kemur
inn á kaffistofu og spyr okkur
hvar Lyngás sé til húsa og vissi
greinilega að hann hefði farið
húsavillt. Við vísuðum Palla á
réttan stað og spurðum hann í
leiðinni hvort hann væri ekki til
í að taka lagið fyrir krakkana,
sem hann gerði, og þau sungu
líka fyrir hann,“ segir Anna, og
bætir því við að lagið hans Palla
hafi hljómað stanslaust það sem
eftir lifði dags á leikskólanum.
Haraldur Diego fékk heldur betur
að heyra af komu Páls Óskars, en
hann á þriggja ára son á Álfta-
borg. „Ég fer að sækja litla strák-
inn minn á leikskólann og þegar
ég kem er starfsmaður að aðstoða
hann í föt. Hún spyr strákinn
hvort hann vilji ekki segja pabba
hver hafi komið í heimsókn, hann
horfir á mig og segir: „Gordjöss!
Gordjöss kom í heimsókn“,“ segir
Haraldur, sem gat ekki annað en
hlegið við frásögnina. „Ég verð
að viðurkenna að Páll Óskar var
ekkert sérstaklega hátt skrifað-
ur hjá mér en hann hefur verið
að skríða upp vinsældalistann.
Þarna skreið hann síðan algjör-
lega á toppinn,“ segir Haraldur.
Fréttablaðið hafði samband við
Pál Óskar, sem fannst heimsóknin
hin ánægjulegasta. „Ég var á leið-
inni á Lyngás, þar sem ég var að
veita styrk, og fór bara húsavillt.
Þær báðu mig um að taka lagið
fyrir krakkana og ég gerði það.
Þetta var án efa ánægjulegasta
óvænta heimsókn sem ég hef farið
í,“ segir Palli léttur í bragði.
kristjana@frettabladid.is
PÁLL ÓSKAR SÖNG ÓVÆNT
FYRIR BÖRNIN Á ÁLFTABORG
SKEMMTILEG HEIMSÓKN Páll Óskar fór húsavillt en lét það ekki á sig fá og tók lagið fyrir krakkana á Álftaborg, sem glöddust
mjög við heimsóknina.
48
Tússpennar
gull eða silfur
Fullt verð stk. kr. 890,-
2 stk. kr. 1.246,-
Allt fyrir
persónulegu
jólakortin
Kauptu
2 stk. og
sparaðu
kr. 534
20% afsláttur af
öllum ljósmynda-
pappír
Límbútar fyrir myndir
fylgja frítt með öllum
ljósmyndapappír
Fullt verð kr. 721,-
20%
afsláttur
Fylgir
frítt
með!
Vnr. S7EK-993
Vnr. APL00113
JODIE FOSTER á afmæli í dag og er orðin 48 ára gömul. Næst
á dagskránni hjá henni er að frumsýna myndina The Beaver, en hún
leikstýrir og fer með aðalhlutverk. Mel Gibson leikur einnig stórt
hlutverk í myndinni.folk@frettabladid.is
Þetta var án efa
ánægjulegasta
óvænta heimsókn sem ég
hef farið í.
PÁLL ÓSKAR HJÁLMTÝSSON
TÓNLISTARMAÐUR