Fréttablaðið - 19.11.2010, Blaðsíða 45
19. nóvember föstudagur 9
vill meina að leiklistin eigi betur við hana enda félagsvera.
Fyrsta leiklistarfélagið „Þarna erum við Dísa vinkona mín
enn og aftur komnar í búning, vissum fátt skemmtilegra. Við
vorum alltaf að búa til leikrit og skemmtiatriði. Í dag er Dísa
óperusöngkona í Berlín og ég orðin leikkona og erum svo
heppnar að það fylgir starfinu okkar að vera alla daga í búningi.
Við Dísa kynntumst þegar við vorum þriggja ára og höfum verið
bestu vinkonur alla tíð síðan.“
Óborganleg fjölskyldumynd „Fjölskyldan í sumarfríi, stór-
kostleg mynd sem væri ekki til í dag því henni hefði hrein-
lega verið eytt af digitalvélinni. Pabbi hefur skellt myndavélinni
á borðið, hlaupið síðan á sinn stað, allir tilbúnir með sísið og
þegar flassið kom brostum við öll eins og enginn væri morgun-
dagurinn. Enda er fátt skemmtilegra en að fara í sumarbústað
með skemmtilegu fólki.“
Garðvinna „Þarna er ég í garðinum hennar Nönnu frænku að
hjálpa henni að hugsa um blómin. Garðurinn hennar Nönnu
var eins konar töfragarður fyrir barn eins og mig. Tré til að
klifra í, endalausir felustaðir, dularfullir steinar, kartöflugarður
og ótrúlega falleg blóm voru uppspretta mikilla ævintýra sem
öll hófust með því að ég fann mér eina Gleym-mér-ei sem ég
límdi á fötin mín.“
Tóta, sem hefur alltaf verið mikil
barnagæla og vill meina að ef hún
hefði ekki elt leikkonudrauminn
væri hún líklegast kennari í dag.
„Mér finnst svakalega gaman að
kenna. Hef verið að kenna leiklist
í Ísaksskóla og það er rosalega gef-
andi að sjá hvað einn klukkutími
af leiklistarnámi á viku gerir fyrir
krakkana. Þau þroskast mikið í því
ferli og í mínum bekk var enginn
látinn leika tré. Það eiga allir að fá
sín móment á sviðinu.“
ALLTAF MEÐ ATRIÐI
Tóta er staðráðin í að festa sig í
sessi í leikarabransanum enda er
þetta það sem hún vill gera. „Þetta
er erfiður bransi og mikil sam-
keppni. Ég er ekkert sérstaklega
hrifin af því. Þegar við i bekknum
settum upp verk í Nemendaleik-
húsinu vorum við búin að ákveða
að vinna með hvert öðru og ekki
reyna að láta okkar ljós skína
sterkast á sviðinu,“ segir hún og
bætir við að slíkt komi oft niður
á hópnum. „Það er líka einkenni
góðra leikara að láta alla í kring-
um sig líta vel út og við vildum
gera það.“
Tóta þarf að hugsa sig um vel
og lengi þegar hún er spurð að
því hvert sé hennar draumahlut-
verk. Eftir langan umhugsunar-
frest segir hún: „Seinna á ferlinum
mundi ég vilja leika alvöru konu.
Þegar maður er búin með barna-
hlutverkin, þá væri gaman að fá
að bregða sér í hlutverk sterkrar
konu eða kannski tálkvendis.“
Athyglisýki og hressleiki í partí-
um einkennir oft leikarastéttina.
Er hún ein af þeim sem eru allt-
af með uppistand fyrir gesti í
gleðskap? „Já, fjölskyldan mín er
örugglega komin með ógeð á mér
því það er varla búin að vera veisla
án þess að ég hef haldið ræðu,
sungið eða verið með atriði. Mér
finnst samt langskemmtilegast að
halda veislur sjálf og vera veislu-
stjóri í mínu eigin partíi,“ hlær
Tóta.
Hún segist ekki myndu gefast
upp þótt tækifærum myndi fækka
hér á landi heldur færi hún bara
eitthvert annað. „Ég er opin fyrir
öllu og heimurinn er svo stór og
býður upp á marga möguleika.
Ég er alveg til í að fara eitthvert
annað og skoða aðra leikhúsheima
en eins og staðan er núna ætla ég
að njóta og nýta þetta tækifæri
sem ég fékk í Þjóðleikhúsinu. Eins
og ég sagði áðan get ég verið mjög
þrjósk þó að saklausa útlitið segi
annað. Ég er komin til að vera,“
segir Tóta glaðbeitt og sannfærir
undirritaða undir eins.
Ásta Hermannsdóttir förðunarfræðingur og meistari í
snyrtifræði verður með kennslu og kynningu laugardaginn
20. nóv. frá kl 14.00-16.30 og ætlar hún að sýna og leiðbeina
hvernig best er að nota hreina Mineral farðann okkar.
15% afsláttur af blush í kinnar- og augnskuggum.
Gefðu unaðslegt dekur í jólagjöf
Hugaðu að líkama og sál
ólakertin fást hjá okkur íslensk framleiðsla J
jafakassar frá – 1.990 kr.G
www.signaturesofnature.is
Verlsanir okkar eru í Smáralind 2. hæð við D-inngang | sími 511-10-09