Fréttablaðið - 19.11.2010, Blaðsíða 12
12 19. nóvember 2010 FÖSTUDAGUR
Styrkjum þingræðið,
ekki losa ríkisstjórnina
frá Alþingi
Stjórnlagaþings
frambjóðandi
Björn Einarsson
læknir og heimspekinemi
Nr. 6340
Heimasíða með myndskeiði
www.bjorneinarsson.is
FRAMKVÆMDIR „Þetta er algert lykil-
atriði fyrir okkur,“ segir Ásgeir
Loftsson, yfirverkfræðingur hjá
Ístaki, um sjö verkefni fyrirtækis-
ins í Noregi sem samtals eru upp
á um 11 milljarða króna.
„Þeim verkefnum sem voru í
gangi fyrir hrunið hefur verið að
ljúka og það er orðið mjög lítið að
gera hérna heima,“ segir Ásgeir,
sem kveður Ístak því horfa út fyrir
landsteinana. Fyrirtækið hafi
meðal annars boðið í mörg verk
í Noregi. „Við höfum bara fengið
brot af þeim verkefnum sem við
höfum reynt að fá.“
Í síðustu viku var Ístak lægst-
bjóðandi í nýju jarðgangaverkefni.
Með því er andvirði núverandi
samninga Ístaks í Noregi komið í
tæpar 600 milljónir norskra króna,
sem svarar til áðurnefndra 11
milljarða íslenskra króna.
„Þetta var fyrst og fremst hugs-
að til að tryggja okkar starfsmönn-
um vinnu þegar botninn datt úr
þessu hérna heima. Fyrstu verk-
in komu inn í apríl á síðasta ári og
byrjuðu þá um haustið þannig að
við erum búnir að vera í þessari
lotu í rúmt eitt ár,“ segir Ásgeir.
Verkefni Ístaks í Noregi eru allt
frá Bergen og til Norður-Noregs.
Um er að ræða þrenn jarðgöng,
tvo grjótgarða og síðan dýpkunar-
verkefni við hafnir.
Ásgeir segir starfsmennina ytra
aðallega vera Íslendinga. „Það eru
yfir tvö hundruð manns að vinna
þarna. Grunnurinn er gamlir og
góðir Ístaksstarfsmenn en svo
hefur eitthvað bæst við líka af
góðu fólki,“ segir hann.
Stærstu verkefni Ístaks erlend-
is eru hins vegar í Grænlandi þar
sem yfir hundrað manns voru í
sumar. Verið er að ljúka við skóla
í Nuuk og byggingu vatnsaflsvirkj-
unar í Ilulissat við Diskóflóa á að
ljúka árið 2013. Þetta eru verk upp
á samtals um 15 milljarða króna.
Þess utan er Ístak nú að reisa
byggingar við viðlegukant fyrir
skemmtiferðaskip á Jamaíka. Þar
eru nú um tuttugu starfsmenn frá
fyrirtækinu. Með þessum verkum
nálgast upphæð núverandi verk-
samninga Ístaks erlendis 30 millj-
arða.
Sem fyrr segir er verkefnastaðan
á Íslandi bágborin. „En það er
kannski Búðarhálsvirkjun sem er
vonarglætan í þessu hjá okkur,“
segir Ásgeir. Heildarverkið þar er
upp á um tíu milljarða en óvissa
er um framgang þess. „Það eru
ákveðnir fyrirvarar um fjármögn-
un en við erum þó byrjaðir á fyrsta
hlutanum.“
gar@frettabladid.is
Verkefni í Noregi skila
Ístaki 11 milljörðum króna
Ístak er með verkefni fyrir ellefu milljarða króna í Noregi. Með verkum í Grænlandi og á Jamaíka nálgast
virði utanlandsverkefna 30 milljarða. Yfirverkfræðingur segir vonarglætu Ístaks á Íslandi vera á Búðarhálsi.
GRJÓTFLUTNINGAR Í GRYLLEFJORD Framkvæmdir Ístaks við grjótgarð í Gryllefjord í Norður-Noregi hófust á þessu ári og á að ljúka
í lok næsta árs. MYND/ÞORGILS ARASON
SETTI UPP BLÁA NEFIÐ Í Lissabon,
þar sem tveggja daga leiðtogafundur
NATO hefst í dag, setti þessi mótmæl-
andi upp trúðsgervi og blátt nef í gær
þegar efnt var til mótmælafundar.
NORDICPHOTOS/AFP
ALÞINGI Áform heilbrigðisráðuneytisins um að stað-
setja sameinaða stofnun Landlæknisembættisins og
Lýðheilsustöðvar í Heilsuverndarstöðinni á Baróns-
stíg vöktu hörð viðbrögð á þingi í fyrradag.
Frumvarp um sameiningu stofnananna var til
umræðu.
Ársleigan í Heilsuverndarstöðini er tólf milljónum
króna dýrari en í því húsnæði sem Framkvæmda-
sýsla ríksins mælir með að leigt verði undir samein-
aða stofnun. Er það jafnframt stærra.
„Eru þeir tímar ekki liðnir að við getum bruðlað
svona með peninga?“ spurði Ásbjörn Óttarsson Sjálf-
stæðisflokki.
Flokksbróðir hans, Guðlaugur Þór Þórðarson, tók
undir og vakti jafnframt athygli á að sautján ár væru
enn eftir af núverandi húsaleigusamningi land læknis.
Sagði hann rannsóknarefni hvers vegna ríkið gerði
svo langa leigusamninga.
Siv Friðleifsdóttir Framsóknarflokki sagði að af
lestri umsagnar fjármálaráðuneytisins um frum-
varpið væri greinilegt að fjármálaráðuneytið væri
foxillt út í heilbrigðisráðuneytið.
Guðbjartur Hannesson heilbrigðisráðherra sagði
til skoðunar að færa starfsemi úr ráðuneytinu yfir
til nýju stofnunarinnar. Því þyrfti að gera ráð fyrir
stærra rými.
Lengd leigusamninga ríkisins, án uppsagnar- og
endurskoðunarákvæða, kallaði ráðherrann vandræða-
gang. - bþs
Þingmenn furða sig á áformum um að taka ekki hagstæðu boði um húsaleigu:
Heilbrigðisráðuneytið bruðlar
HEILSUVERNDARSTÖÐIN Leiguhúsnæðið er tólf milljónum
krónum dýrara en húsnæðið sem Framkvæmdasýsla ríkisins
mælir með.
SAMGÖNGUR Gríðarleg umferðar-
teppa varð í Ártúnsbrekkunni og
Miklubraut í gærmorgun og varð
til þess að fjöldi manns kom of
seint á áfangastað.
Ökumaður sem Vísir ræddi við
var um klukkustund á leiðinni í
vinnu frá Grafarvogi. Samkvæmt
umferðardeild lögreglunnar á
höfuðborgarsvæðinu var afrein
frá Miklubraut inn á Skeiðarvog
lokuð vegna framkvæmda.
Afrein lokuð frá Miklubraut:
Var klukkutíma
á leið í vinnu
Síbrotamaður dæmdur
Rúmlega tvítugur karlmaður hefur
verið dæmdur í níu mánaða fangelsi
fyrir líkams árásir og fjölmörg umferðar-
laga brot. Þá var maðurinn dæmdur
fyrir að hafa hótað lögreglumanni og
fjölskyldu hans ofbeldi þegar lögreglu-
menn höfðu afskipti af honum.
DÓMSMÁL
Auglýsingaskilti sem sett var upp án
leyfis í bæjarlandi á Reykjavíkurvegi
60 í Hafnarfirði verður nú fjarlægt
af framkvæmdasviði bæjarins eftir
að eigandi skiltisins hefur hunsað
írekaðar kröfur um að taka það niður.
Honum verður síðan sendur reikning-
ur fyrir verkinu.
HAFNARFJÖRÐUR
Auglýsingaskilti fjarlægt
VIÐSKIPTI Hömlur, dótturfélag
Landsbankans, hefur selt iðn-
fyrirtækið Límtré Vírnet til
félagsins Uxahryggja fyrir 720
milljónir króna. Þar af nema
skuldir sex hundruð milljónum
króna. Límtré Vírnet var áður
hluti af BM Vallá sem varð gjald-
þrota í maí.
Tveir fjárfestar eiga samtals
áttatíu prósent í Uxahryggjum.
Það eru Kristinn Aðalsteinsson,
sonur Aðalsteins Jónssonar, sem
betur er þekktur sem Alli ríki á
Eskifirði, og Hjörleifur Jakobs-
son, fyrrverandi forstjóri Kjalar.
Heimamenn í Borgarnesi áttu
frumkvæðið að stofnun Uxa-
hryggja til að tryggja starfsemi
þar. Stefnt er á að fjölga hlut-
höfum. - jab
Búið að selja Límtré Vírnet:
Tryggja rekstur
í Borgarnesi
BORGARNES Heimamenn í Borgarnesi
áttu frumkvæði að því að stofna félag
sem keypti rekstur Límtrés Vírnets af
félagi Landsbankans. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
BANDARÍKIN Sarah Palin, fyrrverandi
varaforsetaefni repúblikana í Banda-
ríkjunum, sagði í viðtali við ABC-stöð-
ina í gær að hún gæti sigrað Barack
Obama í forsetakosningunum 2012.
Palin kemur nú fram í hverju við-
talinu á fætur öðru þar sem hún segist
vera að hugsa sinn gang og íhuga hvort
hún ætti að bjóða sig fram til forseta
í næstu kosningum. Palin beitti sér
mikið í nýafstöðnum þingkosningum
í landinu og er hún einn helsti tals-
maður Teboðshreyfingarinnar svo-
kölluðu sem skilgreina má sem hægri-
sinnaða repúblikana. Palin varð þó
fyrir áfalli þegar tilkynnt var að Lisa
Murkowski hefði sigrað í baráttunni
um sæti Alaska, heima ríkis Palin, í
kosningunum sem fram fóru á dög-
unum.
Murkowski, sem er sitjandi öldunga-
deildarþingmaður, bar sigurorð af Joe
Miller, sem Palin studdi með ráðum og
dáð. Murkowski var hins vegar ekki á
kjörseðlinum því hún hafði tapað fyrir
Miller í forkosningum repúblikana.
Lög Alaska og sumra annara ríkja,
leyfa kjósendum að skrifa nafn ein-
hvers annars en þeirra sem eru í fram-
boði á kjörseðilinn og dugði það henni
til sigurs. Slíkt hefur ekki gerst í rúm-
lega fimmtíu ár í Bandaríkjunum.
Sarah Palin, fyrrverandi varaforsetaefni repúblikana, íhugar forsetaframboð:
Telur sig geta sigrað Barack Obama
SARAH PALIN Hún
hefur farið mikinn
fyrir Teboðshreyfing-
una svokölluðu.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP