Fréttablaðið - 19.11.2010, Blaðsíða 66
42 19. nóvember 2010 FÖSTUDAGUR
Bækur ★★★
Önnur líf
Ævar Örn Jósepsson
Uppheimar
Af skunkum og svörtum englum
Löggugengið úr bókum Ævars Arnar, þau
Stefán, Katrín, Árni og Guðni, er löngu orðið
heimilisvinir flestra Íslendinga, ekki síst eftir
sjónvarpsþáttaraðirnar eftir fyrstu bókunum
tveimur. Hér eru þau mætt í sjöttu sögunni
og hafa þróast hvert í sína áttina eins og
fólk gerir. Árni orðinn hamingjusamur út-
hverfaplebbi með konu og tvö börn, Katrín
einstæð móðir tveggja unglinga í Hvassaleit-
inu, Stefán í þunglyndi eftir konumissi og
Guðni á góðri leið með að drekka sig í hel.
Ekki beysin uppskrift að rannsóknarteymi,
en auðvitað finna þau lausn gátunnar, þótt
mikið gangi á og áföllin læði sér inn í þeirra
eigin raðir.
Málið sem þau fást við hér, brútalt morð
á ungri konu, er ógeðfellt með eindæm-
um, ekki síst þar sem sama stúlkan hafði
orðið fyrir hrottalegri hópnauðgun rúmu ári áður.
Óhugnaðurinn vex enn við það að stúlkan er frænka Katrínar og fyrrverandi
barnfóstra og Katrín því í raun beggja vegna borðsins, bæði rannsóknaraðili
og aðstandandi. Inn í söguna fléttast búsáhaldabyltingin í janúar 2009 og
árekstur anarkistanna á Austurvelli og máttarstólpa þjóðfélagsins, dópsala
Lalla feita, ungbarnasund og uppgerð á Landrover, svo fátt eitt sé nefnt. Úr
verður spennandi saga sem rígheldur athygli lesandans, vekur til umhugs-
unar og kemur sífellt á óvart. Annað málið sem löggurnar glíma við og
splundrar hópnum er þó óleyst í bókarlok svo lesendur geta strax farið að
láta sig hlakka til næstu sögu í beinu framhaldi.
Sagan flakkar fram og aftur í tíma, byrjar í maí 2010, fer síðan aftur til jan-
úar 2009 og lýkur í október 2010. Þannig gefst lesendum færi á að kynnast
fórnarlambinu og aðstæðum þess betur en oft gerist í sakamálasögum og
láta sig því örlög hennar meiru varða.
Ævar Örn er flinkur krimmahöfundur, byggir sögurnar vel, kynnir bæði
fórnarlömb og löggur í þaula af næmum mannskilningi, er gagnrýnin á
samfélagið og skrifar betri og eðlilegri samtöl en nokkur annar íslenskur
höfundur. Glæpamennirnir fá meira að segja oft eigin rödd, þótt samúðin
með þeim sé eðlilega af skornum skammti og persónulýsingarnar því meira
einhliða.
Önnur líf sver sig í ætt fyrri bóka Ævars Arnar, en ástæðan fyrir nauðgun-
inni þykir mér dálítið ótrúverðug og skemma annars flott plott. Engu að
síður er sagan fínasta glæpasaga, spennan byggð upp jafnt og þétt eins og
vera ber og lausn gátunnar langt frá því augljós. Svo ekki sé nú minnst á
hversu gaman það er að viðhalda kynnunum við gengið á Hverfisgötunni.
Friðrika Benónýsdóttir
Niðurstaða: Fínn krimmi með flottu plotti og góðri persónusköpun.
Rígheldur athygli lesandans, vekur til umhugsunar og kemur á óvart.
Þjóðminjasafn Íslands vinnur nú
að söfnun heimilda um heimatil-
búið, viðgert og notað. Búin hefur
verið til sérstök spurningaskrá til
að kanna hvort og í hvaða mæli
fólk gerir við búshluti, fatnað eða
annað heima hjá sér, hvað það býr
til sjálft og hversu mikið það notar
hlutina eða endurnýtir.
„Við erum að spyrja vítt og
breitt út í það sem kannski má
kalla einhvers konar sjálfsþurft,“
segir Ágúst Ó. Georgsson, fag-
stjóri Þjóðháttasafns. „Hvort fólk
endurnýti hlutina, skipti um dekk,
baki brauð, taki slátur, búi til sín
eigin jólakort og
svo fram vegis.
Margir hafa á
tilfinningunni
að Ísland sé ein-
nota land, þar
sem því gamla
er einfaldlega
hent og eitthvað
nýtt keypt í stað-
inn. En það er
einmitt það sem
við erum að reyna að fiska eftir
með þessari spurningaskrá.“
Tilefni heimildasöfnunarinn-
ar er sýning um sama efni sem
haldin verður í Þjóðminjasafninu
eftir áramót.
„Það er forvitnilegt að komast
að því hvernig þetta hefur breyst
í gegnum árin og hvort kreppan
hafi haft áhrif á þessa þróun. Eftir
hrun,“ segir Ágúst, sem vonast til
að með þessu móti verði unnt að
varðveita mikilvæga þekkingu
sem annars er hætt við að fari for-
görðum.
Ágúst hvetur fólk til að leggja
heimildasöfnunni lið. Hægt er að
nálgast spurningaskrána á heima-
síðu safnsins, thjodminjasafn.is,
eða hringja beint í safnið. - bs
Heimatilbúið, viðgert og notað
GAMALT OG GOTT Góði hirðirinn, nytjamarkaður Sorpu, er í hópi þeirra staða þar
sem hægt er að kaupa notuð húsgögn og búsáhöld. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
ÁGÚST Ó.
GEORGSSON
… allt sem þú þarft
Meðal efnis í blaðinu:
Allt um jólamatinn;
forréttir, aðalréttir,
eftirréttir og
borðskreytingar.
Fjölbreytt jólaskraut
og jólaföndur.
Ólíkir jólasiðir.
Íslenskar og alþjóðlegar
uppskriftir að jólakökum
og jólasælgæti.Nánari upplýsingar veitir:
Ruth Bergsdóttir
512 5469/ 694 4103
ruth@365.is
Auglý
sendur
trygg
ið
ykkur
pláss í
blaðin
u!
Jólahandbókin
kemur út
30. nóvember