Fréttablaðið - 19.11.2010, Blaðsíða 8
8 19. nóvember 2010 FÖSTUDAGUR
Nýr Volkswagen Polo hefur svo sannarlega slegið í gegn á árinu 2010.
Fyrir utan að vera mest seldi bíll landsins á árinu var hann valinn Alheimsbíll
ársins og Bíll ársins í Evrópu. Polo 1.6 TDI vann líka sparaksturskeppni Atlantsolíu
og fór 100 km á aðeins 2,93 lítrum. Það gerist einfaldlega ekki betra. Nýttu þér
hagstætt verð og njóttu allra kosta verðlaunabílsins Volkswagen Polo!
Das Auto.
BÍLAÁBYRGÐ HEKLU - Nýr VW Polo fæst með allt að fimm ára ábyrgð
2010. Besta árið fyrir Polo.Nýr Polo kostar aðeins
2.390.000 kr.
*Polo Trendline 1.2 MPI, 70 hestöfl, beinskiptur.
Aðeins 27.232 kr. á mánuði miðað við bílasamning
SP Fjármögnunar til 84 mánaða með breytilegum
vöxtum og 30% útborgun. Árleg hlutfallstala
kostnaðar er 10,39%.
www.volkswagen.is
1. Adam Sandler. 2. Þorvaldur Lúðvík
Sigurjónsson. 3. Reading.
1. Með hvaða fræga banda-
ríska kvikmyndaleikara fundaði
Gestur Valur Svansson nýverið?
2. Hvað heitir forstjóri Saga
fjárfestingarbanka?
3. Við hvaða knattspyrnulið
er Eiður Smári Guðjohnsen
orðaður?
SVÖR
ORKUMÁL Nýjustu athuganir Lands-
virkjunar og fleiri aðila sýna fram
á að sæstrengur til meginlands
Evrópu muni líklega skila sér í
gróða. Heildarkostnaður við virkj-
anir, flutningskerfi frá Íslandi,
landsstöðvar og streng er áætlað-
ur um 2,5 milljarðar evra, eða um
380 milljarðar íslenskra króna.
Edvard G. Guðnason, deildar-
stjóri sölu- og markaðsdeildar
Landsvirkjunar, segir hagkvæmni
tengingar við Evrópu hafa verið
margsinnis kannaða á síðustu árum
og hefur Landsvirkjun tekið þátt í
nokkrum sæstrengsverkefnum frá
tíunda áratug síðustu aldar.
Fjölmörg fyrirtæki hafa komið
að rannsóknunum og í megin-
atriðum hafa niðurstöðurnar
hingað til verið þær að verkið sé
framkvæmanlegt en myndi líklega
ekki skila arði.
Á síðustu tíu til fimmtán árum
hefur orkuverð í Evrópu hins vegar
hækkað töluvert. Edvard segir
það vera einn megin grundvöllinn
fyrir því að Landsvirkjun hafi
ákveðið að skoða málið að nýju,
ásamt aukinni þörf á erlendum
mörkuðum fyrir orkugjafa sem
ekki losa gróðurhúsa lofttegundir.
„Á undanförnum árum hafa
verið lagðir margir jafnsauma-
sæstrengir, bæði lengri og á meira
dýpi en áður hefur verið gert,“
segir Edvard. „Það er vaxandi
eftirspurn eftir strengjum á
erlendum mörkuðum og það eru
fáir framleiðendur, sem þýðir að
það er ekki mikil samkeppni á
þessum markaði.“
Orkuverð í nágrannalöndunum
hækkar sífellt miðað við orkuverð
hérlendis og segir Edvard því
hugsan legt að sæstrengur myndi
skila meiri arði.
Séu gefnar þær forsendur að
sæstrengurinn lægi frá austur-
strönd Íslands til Skotlands yrði
lengdin um 1.200 kílómetrar.
Flutningsgeta væri um 700 mega-
vött og er framkvæmdartími áætl-
aður um fjögur ár. Seldar væru um
5.200 gígavattstundir á ári og væri
raforkuverð eins og það var í fyrra
fengjust um 60 evrur á hverja gíga-
vattstund. Líftími hvers strengs er
talinn vera um 30 ár.
„Ýmsar spár gera ráð fyrir því að
markaðsverð raforku hækki hratt
á komandi árum,“ segir Edvard.
„Markmið Landsvirkjunar er að
tengjast þessari þróun.“
sunna@frettabladid.is
Landsvirkjun telur
sæstreng mögulegan
Landsvirkjun telur að sæstrengur frá Íslandi til Evrópu muni líklega skila sér í
arði vegna hækkandi orkuverðs erlendis. Framkvæmdirnar myndu kosta um
400 milljarða íslenskra króna væri strengurinn lagður frá Íslandi til Skotlands.
Sæstrengur
1900 km
1170 km
1250 k
m
ATHAFNAVIKA
SAMGÖNGUR Iceland Express
ætlar að fljúga til Edinborgar í
Skotlandi, Belfast á N-Írlandi og
Dublin á Írlandi næsta sumar.
Flogið verður tvisvar til þrisvar í
viku til borganna þriggja.
Í tilkynningu segir að Iceland
Express verði eina félagið sem
bjóði upp á beint flug til Íslands
frá þessum þremur borgum.
Áætlað er að flugin tengist leiða-
kerfinu til New York og Boston
og komi til með að styrkja það
enn frekar.
Eins og fram hefur komið
hyggst Iceland Express færa út
kvíarnar næsta sumar og fljúga
daglega til New York frá og með
júníbyrjun. Félagið mun líka
fjölga áfangastöðum í Bandaríkj-
unum.
Áfangastöðum fjölgar:
Iceland Express
flýgur til Belfast
og Edinborgar
NÝSKÖPUN Hjálpartæki þeirra sem
ánægju hafa af því að prjóna bar
sigur úr býtum í Snilldarlausnum
Marel, hugmyndasamkeppni
framhaldsskólanna, sem lauk í
gær. Þátttakendur í keppninni
áttu að auka notagildi pappakassa.
Sigurvegararnir voru þær
Lilja Björk Hauksdóttir, Magnea
Ósk Örvarsdóttir og Sigurveig
Gunnars dóttir, sem eru nemendur
við Framhaldsskólann á Húsavík,
en þær útbjuggu hirslu úr pappa-
kassa fyrir garnhnykla. Göt eru
á hliðum kassans og út um þau
má þræða enda garnsins. Þetta
fyrir komulag kemur í veg fyrir að
garnið flækist við prjónaskapinn.
Til viðbótar útbjuggu þær pappa-
spjöld sem nota má sem skil-
rúm þegar prjónað er úr fleiri en
einum hnykli.
Nemendur við Framhaldsskól-
inn á Húsavík sendu fimm mynd-
bönd í keppnina þar sem pappa-
kassinn var útfærður en enginn
einn skóli sendi inn jafn mörg
myndbönd. - jab
FRÁ ÚRSLITUNUM Jón Gnarr borgarstjóri
afhenti verðlaun fyrir bestu lausnina,
frumlegustu hugmyndina og flottasta
myndbandið. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Prjónapappakassinn er snilld:
Getur hindrað
garnaflækju
VEISTU SVARIÐ?