Fréttablaðið - 19.11.2010, Page 40

Fréttablaðið - 19.11.2010, Page 40
4 föstudagur 19. nóvember Forboðin ást og aðrir smámunir ? Kæra Sigga Dögg, ég er í algjörum vandræðum! Ég á mjög góðan vin sem ég hangi mikið með og það er alltaf mjög gaman hjá okkur. Við höfum tvisv- ar sinnum farið heim saman af djamminu og ég er orðin vel skotin í gaurnum. Stundum finnst mér eins og ég finni líka fyrir áhuga frá honum, en aðra daga finnst mér eins og hann hafi alls engan áhuga. Ég er búin að reyna að ráða í allt sem hann segir og gerir í von um vísbendingar en kemst aldrei að neinni niður- stöðu. Hvað get ég gert til að komast að hinu sanna? Svar: Ég ætla að gefa mér þrjá hluti; þú vilt að þessi „vinátta“ verði að sambandi, að fara heim saman af djamminu tákni kynlíf og loks að þú viljir að hann sé bara með þér og engri annarri. Í mínum bókum kall- ast vináttan sem þú lýsir „bólfélagasamband“, það er kynlíf án skuld- bindinga. Eina leiðin til að komast að því hvort hann sé hrifinn af þér er að spyrja hann beint út. Það eru engin „leynitákn“ til að ráða í og sögð orð hafa ekki tvöfalda merkingu. Þú segist vera skotin í honum og því þarftu að spyrja sjálfa þig hvernig þú ætlar að taka á því ef hann er ekki hrifinn af þér en vill bara vera „vinur“ þinn sem fær að hanga með þér og stunda skuldbindingarlaust kynlíf. Þú þarft að vera hrein- skilin við sjálfa þig um það hvort þú getir og viljir vera í slíku sambandi ef hann er ekki tilbúinn að fara í samband með þér og bara þér. Nú er tími hreinskilni, þú þarft að spyrja hann orðrétt, „Ertu hrifinn af mér og viltu samband?“. Ef honum vefst tunga um tönn, þá er það þitt að taka ákvörðun um næsta skref. ?Halló Sigga Dögg, ég er búin að vera á lausu alltof lengi, alveg í þrjú ár, og er farið að langa í kærasta. Ég kynntist einum fínum gaur fyrir nokkru síðan og við höfum verið að hittast svolítið. Hann er frábær í alla staði fyrir utan eitt, hann klæðir sig eins og fífl og ég meika varla að sjást með honum á almanna- færi. Er ekki gróft að dömpa frábærum strák fyrir svona „smámuni“? Og er allt- of snemmt fyrir mig að reyna að hafa áhrif á klæðaval hans? Ég bara get ekki horft upp á þessa hörmung mikið lengur. Svar: Þú ert búin að vera á lausu „alltof lengi“ og hafa þrjú löng, ein- sömul ár til að gera lista yfir hinn fullkomna mann og þegar þú svo kynnist honum þá uppfyllir hann ekki skilyrðin um réttu klæðin. Töff fataburður er huglægt mat. Þú getur vissulega komið með athugasemd varðandi klæðaburð hans en ég get ekki séð að það komi þér við. Ég veit ekki hversu lengi þið hafið verið að hittast eða hversu náin þið eruð en, ef þetta er þitt eina umkvörtunarefni, þá væri þér nær að kíkja í smá sjálfsskoðun. Á meðan þú hefur áhyggjur af því að dömpa honum, hefur þér dottið í hug að hann gæti dömpað þér vegna yfirborðskennd- ar og hégóma? Á RÚMSTOKKNUM Sigga Dögg kynfræðingur Svart og seiðandi eða nátt- úrulegt og frískandi. Hvort tveggja er í boði ef marka má förðun fyrirsætanna sem svifu um tískpallana á nýliðnum tískuvikum. Dökk augu, brúnir tónar og rauðir varalitir ein- kenndu útlit sumra og má rekja innblásturinn til tíunda áratugarins en sá áratugur er einnig að verða ríkjandi í fatatísk- unni með magabolum og fylltum hælum. Það þýðir þó ekki að hið náttúrulega útlit fari hverf- andi. Frísklegir ferskju- litir, léttir litir á augun og glansandi áferð á húð var einnig áberandi. Með góðum rakagefandi krem- um og náttúrulegum farða er hægt að líta frísklega út á veturna. Föstudagur tók saman nokkra hluti sem hægt er að nota til að ná hvoru útliti fyrir sig. - áp Fjölbreytni í förðunarheiminum FRÍSKLEGT Í BLAND VIÐ DÖKKA TÓNA 1. OPI, From A to Z-urich naglalakk 2. Bobbi Brown, Vixen Red varalitur 3. Mac, Radiant Jewels gloss 4. Mac, Moonlight Night, augnskuggi 5. Bobbi Brown, Hollywood Red Gloss 6. OPI, Just a little rösti at this, naglalakk Dökkt og matt Ofurfyrir- sætan Natalia Vodianova með dökk augu á sýningu Robertos Cavalli í París á dögunum. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY Ferskt Fyrirsæta sem gekk fyrir hönnuðinn Elie Saab var með frísklega förðun og létta augnskugga. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY Baksviðs Fyrirsæta í stóln- um baksviðs á sýningu Gian- franco Ferre með dökka augn- förðun. 1. Mac, Golden Crown augnskuggi 2. L´occitane, gloss 3. L´occitane, varalitur og gloss 4. Clarins, Extra Firming Foundation farði 5. Estée Lauder, Radiant Lifting Make Up 6. Maybelline, Luminous Matte Finish froðufarði 7. Mac, Cut a Caper, varalitur 8. L´occitane, varalitur 9. Clarins, Instant Light Brush on Perfector hyljarapenni FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Sendu Siggu Dögg póst með spurningum eða óskum um umfjöllunarefni. Netfangið er kynlif@frettabladid.is LAUGAVEGUR 66 Mán. – Fös. 10–18. Lau. 11–17. HÁTÍÐARAFSLÁTTUR FIMMTUDAG, FÖSTUDAG & LAUGARDAG 20% F I L I PPA K * S P ORT M A X * RÜ TZ OU * DE S IG UA L BRU U N & S T E N G A DE * W R A N G L E R L E E * G K R E Y K JAV Í K & h e i t t á k ö n n u n n i

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.