Fréttablaðið - 19.11.2010, Page 6

Fréttablaðið - 19.11.2010, Page 6
6 19. nóvember 2010 FÖSTUDAGUR TRÚMÁL Sömu aðilar standa á bak við sjálfseignarstofnunina Islamic Endowment Center in Iceland, sem festi nýlega kaup á Ýmishúsinu við Skógarhlíð, og verkefni um að byggja mosku í Tromsö í Noregi. Hætt var við bygginguna í Tromsö þar sem norsk stjórnvöld gátu ekki uppfyllt kröfur fjár- festa frá Sádi-Arabíu, en talsmaður Menningar seturs múslima á Íslandi segir málum ólíkt farið hér á landi. Tarjei Skirbekk, pólitískur ráð- gjafi í norska utanríkisráðuneytinu, sagði í samtali við Fréttablaðið að málið í Tromsö hefði í raun strand- að á fjárfestunum. „Sádi-arabísku fjárfestarnir þurftu skriflega yfirlýsingu frá norskum stjórnvöldum um að moskan, sem reist yrði fyrir fé frá Sádi-Arabíu, fengi að starfa í sam- ræmi við sádi-arabískar reglur. Það eru sádi-arabísk stjórnvöld sem setja fjárfestunum þetta skilyrði ef þeir hyggjast senda fé úr landi til að fjárfesta í moskum í öðrum ríkjum.“ Yfirlýsingu af því tagi vildu norsk stjórnvöld ekki gefa út, og segir Skirbekk sádi-arabísku fjárfestana þess vegna hafa hætt við. „Það er almenn regla hjá okkur að gefa ekki út slík leyfi,“ segir Skirbekk. Hann tekur þó fram að norsk stjórnvöld eigi í góðu sambandi við stjórnvöld í Sádi-Arabíu og Espen Barth Eiden aðstoðarutanríkis- ráðherra hafi tekið málið upp við þau þegar hann átti erindi til Sádi- Arabíu. Þarlend stjórnvöld sýni afstöðu norskra stjórnvalda fullan skilning. Fréttablaðið hafði samband við Hussein Aldaoudi, sem er einn af aðstandendum Islamic Endowment Center in Iceland og fleiri verkefna á Norðurlöndum, en hann vildi ekki tjá sig um málið. Karim Askari, varaformaður stjórnar Menningarseturs múslima á Íslandi, sem verður með starfsemi í Ýmishúsinu, sagði í samtali við Fréttablaðið að fjármagn til kaupa á húsnæðinu kæmi úr styrktarsjóði óháð sádi-arabískum stjórnvöldum. „Við þiggjum ekki fé frá Sádi- Arabíu. Féð kemur úr styrktarsjóð- um sem eru notaðir til að hjálpa fátækum eða í verkefni eins og að byggja skóla eða moskur.“ Karim segir að starf Menning- arseturs og Islamic Endowment Center in Iceland sé unnið í sam- vinnu við stjórnvöld og í raun sé ekkert að vanbúnaði að hefja starf- semi. Fréttablaðið sendi fyrirspurn um málið til dómsmála- og mannréttinda- ráðuneytis en fékk ekki svör áður en blaðið fór í prentun. thorgils@frettabladid.is gudsteinn@frettabladid.is SYDNEY, AP Útlit er fyrir að skipta þurfi út allt að fjörutíu hreyflum í A380-risaþotunum frá Airbus vegna öryggisástæðna. Hreyflar biluðu fyrir nokkru í tveimur þotum ástralska flugfélagsins Qantas, en í öðru tilvikinu leiddi olíusmit í hreyfli til þess að hann sprakk í flugi yfir Singapúr. Qantas kyrrsetti allar A380- þotur sínar sex í kjölfarið. Rolls-Royce framleiðir hreyfl- ana. Talsmenn bæði fyrirtækis- ins og Airbus hafa verið þögulir sem gröfin. Sérfræðingar um öryggi í flugi segja Rolls-Royce ætla að skipta gölluðum hreyflun- um út fyrir nýja. Reikna má með röskun á flugi af þeim sökum. - jab Galli í hreyflum A380-þota: Einn sprakk yfir Singapúr RISAÞOTA FER Á LOFT Alvarlegar bilanir urðu í hreyflum tveggja A380-risaþota frá Airbus með stuttu millibili fyrir skömmu. MYND/AIRBUS FJÁRMÁL Marínó G. Njálsson, stjórnarmaður í Hagsmunasam- tökum heimilanna, hefur látið af stjórnarsetu. Hann segir ástæð- una hnýsni fjölmiðla í mál sín. Marinó segir í bloggi sínu rit- stjóra og fréttastjóra Frétta- tímans hafa ákveðið að skuldir hans væru söluvara og ætla að birta frétt um skuldastöðu hans í blaðinu þótt hann hafi beðið þá um að gera það ekki. Ekkert var fjallað um skuldastöðu Marinós í netútgáfu blaðsins í gærkvöldi. „Við stjórnum ekki viðbrögðum fólks við fyrirspurnum blaða- manna,“ segir Jón Kaldal rit- stjóri. - jab Úr stjórn Hagsmunasamtaka: Vildi ekki frétt um skuldirnar MARINÓ G. NJÁLSSON Stjórnarmaður í Hagsmunasamtökum heimilanna vill ekki að fjölmiðlar fjalli um skuldir sínar. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM SJÁVARÚTVEGUR Hafrannsóknastofn- unin leggur til að heildaraflamark loðnu á yfirstandandi vertíð verði samtals tvö hundruð þúsund tonn. Stofnunin mun kanna hvort tilefni sé til að endurskoða tillögurnar eftir mælingu á loðnustofninum eftir áramót. Mælingar á loðnunni fóru fram seint í september og fram í byrjun þessa mánaðar. Loðna fannst víða, bæði eins árs ungloðna og fullorðin tveggja og þriggja ára loðna. Hún hrygnir í mars á næsta ári. Eins árs loðnan fannst í Grænlands- sundi og við Grænland, að sögn Hafrannsóknastofnunarinnar. Landssamband íslenskra útvegs- manna, LÍÚ, benti á það í gær að mjög lítið hefði sést af eins árs loðnu á síðustu árum. Ástand hennar nú muni hins vegar vera mjög gott, bæði meðallengd og meðalþyngd yfir meðallagi. Sýni sem tekin hafi verið í síðustu mæl- ingu bendi til að tíu prósent eins árs loðnu hrygni næsta vor. Það er meira en sést hefur í fyrri mæling- um á þessum árstíma. „Miðað við framangreindar mæl- ingar, að teknu tilliti til náttúru- legra affalla, þyngdaraukningar fram að hrygningu og að skilin verði eftir fjögur hundruð þúsund tonn til hrygningar, reiknast veiði- stofn loðnu 198 þúsund tonn,“ segir LÍÚ. - jab NÓG AF LOÐNU Mælingar á eins árs loðnu lofa mjög góðu. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI Hafrannsóknastofnunin leggur til tvö hundruð þúsund tonna aflamark á loðnu: Eins árs loðnan lofar góðu IÐNAÐUR Álframleiðendur á Íslandi, Rio Tinto Alcan, Alcoa Fjarðaál og Norðurál, hafa tekið höndum saman til að vinna að sameigin- legum hagsmunum atvinnugreinar- innar og stofnað Samtök álfram- leiðenda, eða Samál. Að sögn Rannveigar Rist, stjórnar formanns Samáls, er helsta hagsmunamál áliðnaðarins á Íslandi í dag upplýsingagjöf. Á fundinum voru reifaðar niður- stöður viðhorfskönnunar sem gerð var á vegum Samáls, en þar kom í ljós að meirihluti svarenda var jákvæður í garð íslensks áliðn- aðar. Samál leggur áherslu á að koma til skila góðum árangri álfyrirtækja í umhverfismálum og jákvæðum hagrænum áhrifum, en ál iðnaðurinn skilar um 70 millj- örðum, af 170 milljarða útflutn- ingstekjum, inn í efnahagslífið á hverju ári. Þorsteinn Vigfússon, fram- kvæmdastjóri Samáls, segir aðspurður að erfitt sé að sjá af þessari könnun hvort almenn- ingur sé hlynntur frekari vexti ál iðnaðar hér á landi. „Það má hins vegar fullyrða út frá stöðugt jákvæðu viðhorfi sem mælst hefur um langt árabil, sam- hliða hinni miklu uppbyggingu sem hefur verið innan greinarinn- ar. Þannig að það hefur ekki haft neikvæð áhrif á viðhorf almenn- ings.“ - þj Álframleiðendur á Íslandi taka höndum saman um helstu hagsmunamál greinarinnar: Upplýsingagjöf helsta hagsmunamálið BINDAST SAMTÖKUM Stjórn Samáls, Rannveig Rist, Ragnar Guðmundsson og Tómas Már Sigurðsson ásamt framkvæmdastjóranum Þorsteini Víglundssyni. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA ÞJÓÐKIRKJAN Tæplega helmingur landsmanna ber mikið traust til sinnar sóknarkirkju og prestanna í sinni sókn. Tæp tuttugu prósent bera lítið traust til þeirra. Kemur þetta fram í niðurstöðum nýlegr- ar könnunar Capacent sem unnin var fyrir Biskupsstofu. Traust landsmanna til kirkju og presta virðist vera meira á landsbyggðinni en á höfuðborgar- svæðinu og kirkjusókn er það einnig. Samkvæmt könnuninni fara Íslendingar fjórum sinnum í kirkju á ári að meðaltali. Tæp 45 prósent aðspurðra sögðust bera mikið traust til sóknarkirkjunnar sinnar, en rúm tuttugu prósent bera lítið traust til hennar. Könnunin var gerð á tímabil- inu 30. september til 7. október síðastliðinn. Úrtakið var 1.171 einstaklingur, 18 ára og eldri, af landinu öllu. - sv Traust til presta og kirkju: Tæplega 50% treysta prestum SAMGÖNGUR Síðasti öruggi skila- dagur til að póstleggja jólapakka til landa utan Evrópu er mánu- dagurinn 6. desember og föstu- dagurinn 10. desember fyrir jóla- kort til landa utan Evrópu. Síðasti öruggi skiladagur á jólapökkum til Evrópu er mánu- dagurinn 13. desember og á jóla- kortum til Evrópu föstudagurinn 17. desember, eigi þau að skila sér í tæka tíð fyrir jólin. Jólavertíðin hjá póstinum: Styttist í síðasta sendingardag Segja annað gilda um starfið á Íslandi Talsmaður Menningarseturs múslima á Íslandi segir ekkert af fjármunum til kaupa á Ýmishúsi koma frá Sádi-Arabíu. Kröfur yfirvalda þar settu strik í reikn- inginn varðandi mosku í Tromsö. Ekkert að vanbúnaði hjá Menningarsetrinu. ÍRAK, AP Jalal Talabani, forseti Íraks, sagðist í gær ekki ætla að staðfesta líflátsdóm yfir Tariq Aziz, fyrrverandi utanríkisráð- herra í stjórn Saddams Hussein. Talabani skipar sér þar með í lið með mannréttindasamtökum, Páfagarði og fleirum sem for- dæmt hafa líflátsdóminn. Ekki er þó víst að afstaða Tala- banis verði til þess að lífláts- dóminum verði aldrei fullnægt, því neiti forseti nægir að þingið eða einhver staðgengla forsetans staðfesti hann. - gb Forseti Íraks Aziz til bjargar: Staðfestir ekki líflátsdóminn DÓMSMÁL Tveir karlmenn hafa verið ákærðir fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir húsbrot og líkams árás. Fyrst braust annar mannanna inn í íbúð fyrrverandi unnustu og sinnar. Mennirnir ruddust síðan saman inn í aðra íbúð og annar þeirra braust inn á salerni þar sem konan hafði læst að þér. Hann hrinti henni, reif í hár hennar og sló hana, þannig að hún hlaut verulega áverka. Hinn maðurinn hvatti félaga sinn í lokin til að láta þar við sitja, eins og segir í ákæru. - jss Tveir ákærðir fyrir líkamsárás: Réðst á fyrrum unnustu sína Tarjei Skirbekk segir Norðmenn gera athugasemdir við það að stjórnvöld í Sádi-Arabíu skuli ekki leyfa að reistar séu kristnar kirkjur þar í landi. Norsk stjórnvöld ætla að taka málið upp á vettvangi Evrópuráðsins. Þetta mál snerti ekki bara Norðmenn heldur fleiri ríki í Evrópu, og snúist um það að gagnkvæmnissjónarmið séu virt, þannig að hægt sé að gera kröfu til Sádi- Araba um að standa sjálfir við það sem þeir ætlist til af öðrum. Fjárfesting Sádi-Araba í moskum í Noregi hafi hins vegar ekki strandað á þessu, því norsk stjórnvöld hafi ekkert á móti því að moskur séu reistar þar í landi. „Þvert á móti ríkir hér trúfrelsi og við styðjum það að hér séu reistar moskur,” segir Skirbekk. Norðmenn segjast ekki á móti moskum ÝMISHÚSIÐ Félagsskapurinn sem festi kaup á Ýmishúsinu undir starfsemi Menningarseturs múslima á Íslandi er tengdur fyrirhugaðri mosku í Tromsö. Keyptir þú Rauða nef Barna- hjálpar Sameinuðu þjóðanna? Já 3,1% Nei 96,9% SPURNING DAGSINS Í DAG Styður þú málshöfðun gegn Bretum vegna hryðjuverkalaga? Segðu þína skoður á visir.is KJÖRKASSINN

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.