Fréttablaðið


Fréttablaðið - 19.11.2010, Qupperneq 23

Fréttablaðið - 19.11.2010, Qupperneq 23
FÖSTUDAGUR 19. nóvember 2010 23 Fyrir tíu árum fór Kristín Ást-geirsdóttir, núverandi fram- kvæmdastýra Jafnréttisstofu, til starfa í Kosovó fyrir Þróunar sjóð Sameinuðu þjóðanna fyrir konur (UNIFEM). Þar vann hún að efl- ingu stjórnmálaþátttöku kvenna og auknu samstarfi kvenna- hreyfinga í þessu stríðshrjáða héraði. Kristín var brautryðjandi sem fyrsti íslenski sérfræðing- urinn í jafnréttis málum til að starfa með UNIFEM á vegum íslenska utanríkisráðuneytis- ins en rúmur tugur sérfræðinga hefur fylgt í kjölfarið. Samstarf utanríkisráðuneytis- ins og UNIFEM er eitt lang- l í fasta verkefni íslensku friðargæslunnar og þykir sam- starfið sérstakt. Í tíu ár hafa íslenskir sér fræðingar starfað fyrir UNIFEM á Balkan- skaganum: í Kosovó, í Make- dóníu, í Serbíu og í Bosníu og Hersegóvínu. Auk þess hefur utanríkisráðuneytið sent Íslend- inga til starfa fyrir UNIFEM í Líberíu, á Barbados og í höfuð- stöðvunum í New York. Á sama tíma hefur hlutfall fjárhagslegs stuðnings utanríkisráðuneytisins við UNIFEM aukist margfalt og skilað Íslandi í röð helstu stuðnings ríkja sjóðsins. L andsnefnd U N I F EM á Íslandi var stofnuð 1989 með það að markmiði að vekja umræðu, stunda fjáröflun og stuðla að bættri stöðu og aukn- um réttindum kvenna í þróunar- löndum og á stríðshrjáðum svæðum. Landsnefnd UNIFEM á Íslandi er ein sautján lands- nefnda UNIFEM í jafnmörgum löndum og starfa þær sem frjáls félagasamtök. Með öflugu sam- starfi við utanríkisráðuneytið, íslenskan almenning og fyrirtæki hefur félagið stuðlað að bættri stöðu kvenna í þróunarlöndum og á stríðs hrjáðum svæðum. Kaflaskil verða í starfsemi UNIFEM á næstunni því um komandi áramót rennur Þróunar- sjóðurinn inn í nýja og öflugri Stofnun Sameinuðu þjóðanna um kynjajafnrétti og valdaeflingu kvenna (UN Women). Sú stofnun mun hafa sterkari valdheimildir og meira fjármagn en UNIFEM og er til marks um ríkari áherslu á kynjajafnréttismál innan Sam- einuðu þjóðanna en áður. Íslensk stjórnvöld hafa stutt þessa þróun ötullega. Samstarf utanríkis- ráðuneytisins við UNIFEM mun í framhaldinu flytjast yfir á hina nýju stofnun, UN Women, sem Michelle Bachelet, fyrrverandi forseti Síle, mun veita forystu. Í dag verður efnt til málþings í Háskólanum á Akureyri frá kl. 10.00-15.00 til að ræða sam- starf utanríkisráðuneytisins og UNIFEM, vægi þess og fram- tíð innan UN Women. Ég vona að sem flestir sjái sér fært að mæta og taka þátt í áhugaverðri umræðu um jafnréttismál og utanríkisstefnu Íslands. Framlag til friðar og kynjajafnréttis UNIFEM Ragna Sara Jónsdóttir formaður UNIFEM á íslandi Neyðarmóttaka vegna nauðgun-ar og Stígamót taka á móti að meðaltali 230 manneskjum árlega sem leita sér aðstoðar eftir að hafa orðið fyrir nauðgun eða nauðgunar- tilraun. Neyðarmóttaka veitir eins og nafnið gefur til kynna neyðar- þjónustu eftir ofbeldi en fólk leit- ar til Stígamóta til að vinna úr afleiðingum ofbeldisins. Samtals hafa um 1.600 manns leitað sér aðstoðar á þessum tveimur stöð- um á síðustu sjö árum. Þolendur nauðgana eru í miklum meirihluta konur og ofbeldismennirnir í lang- flestum tilfellum karlar. Rétt er að taka fram að hér er ekki meðtalið kynferðislegt ofbeldi gegn börn- um en að því viðbættu tvöfaldast fjöldinn. Árið 2009 komu 233 nauðgun- armál á borð Neyðarmóttöku og Stígamóta. Lögreglu bárust hins vegar aðeins 65 kærur. 42 mál fóru áfram til Ríkissaksóknara, ákært var í 14 málum og sakfellt í átta. Átta mál af 233 gera 3,4%. Á undanförnum sjö árum hefur þetta hlutfall hæst orðið 6,8%. Endurmenntun og hærri miskabætur Vegna þessara tölfræðilegu stað- reynda boðaði dómsmála- og mannréttindaráðherra til samráðs- fundar um meðferð nauðgunar mála í réttarvörslukerfinu föstudaginn 12. nóvember sl. Til fundarins komu, svo dæmi séu tekin, full- trúar Stígamóta, Neyðar móttöku, lögreglu, Ríkis saksóknara, dóm- stólaráðs, Mannréttindaskrifstofu, Femínistafélags Íslands og þing- flokka. Þátttakendum var skipt upp í smærri hópa og tekin voru til umræðu fimm efni: Löggjöf, kærur, lögreglurannsókn, ákær- ur og dómstólar. Í öllum hópun- um spunnust frjóar umræður og lagðar voru fram ýmsar tillögur til úrbóta. Meðal þess sem fram kom á fundinum var að stofnun sérstakrar kynferðis- brotadeildar innan lögreglunnar á höfuð- borgarsvæðinu hefði verið til mikilla bóta en flutningur fleiri mála- flokka undir sömu deild hefði verið skref aftur á bak. Skiptar skoðan- ir voru um hvort kyn- ferðisbrotadeild ætti að starfa á landsvísu en rík áhersla var lögð á mikil- vægi fyrstu klukku- stundanna í rannsókn nauðgunarmála. Þá var einnig rætt hvort lögregla ætti, í sam- ræmi við lög, alltaf að bregðast við með rannsókn þegar nauðgunar mál koma upp fremur en að láta brotaþola taka ákvörð- un um kæru. Meðal hugmynda sem komu fram voru rannsókn á áhrifum breytinga á kynferðisbrotakafla almennra hegningarlaga frá árinu 2007; kynningarátak um viðbrögð við nauðgun; endurmenntunar- námskeið fyrir dómara um áhrif kynferðislegs ofbeldis á brota- þola; endurskoðun á lögum sem fjalla um réttargæslumenn; a.m.k. tvær konur sitji í fjöl skipuðum dómi í nauðgunar málum og að miskabætur til brotaþola verði hærri. Þessar hugmyndir og fleiri verða unnar áfram á vett- vangi dómsmála- og mannréttinda- ráðuneytisins og þá í samráði við lykilaðila varðandi hverja ákvörð- un fyrir sig. Svar okkar er nei Fyrir aðeins örfáum áratugum var kynferðislegt ofbeldi ekki til umræðu á Íslandi og marg- ir litu svo á að slíkt ofbeldi ætti sér aðeins stað úti í hinum stóra heimi. Síðan þá hefur mikið vatn runnið til sjávar, ekki síst fyrir tilstuðlan kvennahreyf- ingarinnar, sem hefur barist við að ná eyrum samfélagsins og oft mátt þola svívirðingar fyrir það eitt að vekja máls á nauðgunum og öðru kynferðislegu ofbeldi. Fundurinn í dóms- mála- og mannrétt- indaráðuneytinu er aðeins lítið skref í þess- ari baráttu. Það getur verið freistandi að líta á nauðganir sem einstaklingsbundinn valda. Fjöldi þeirra sýnir hins vegar skýrt fram á að þetta ofbeldi er stórt samfélagslegt vanda- mál. Nauðgun er ekki aðeins ógn við líf og heilsu þeirra sem fyrir slíku ofbeldi verða heldur einnig hinna sem þurfa að lifa við ógnina við ofbeldi. Á þessu þarf að taka með lögum og framfylgd laga en líka með menntun, fræðslu, for- vörnum og hugarfarsbreytingu. Sem samfélag þurfum við að líta inn á við og spyrja: „Ætlum við að sætta okkur við 230 nauðganir á ári á Íslandi?“ Svar okkar í dóms- mála- og mannréttindaráðuneyt- inu er nei. Lítið skref í baráttunni gegn nauðgunum Kynferðisofbeldi Ögmundur Jónasson dómsmála- og mannréttindaráðherra Halla Gunnarsdóttir aðstoðarmaður dómsmála- og mannréttindaráðherra Samstarf utan- ríkis ráðuneytisins og UNIFEM er eitt lang- lífasta verkefni íslensku friðargæslunnar. 42 mál fóru áfram til Rík- is saksóknara, ákært var í 14 málum og sakfellt í átta. Átta mál af 233 gera 3,4%. 1919 R E STAU R A N T AND LOUNGE Radisson Blu 1919 Hótel Pósthússtræti 2 102 Reykjavík Sími: 599 1000 Í hjarta miðborgarinnar býður veitingastaðurinn 1919 upp á girnilega þriggja og fimm rétta jólamatseðla og jólahlaðborð fyrir hópa. Flauelsmjúkir forréttir, safaríkar jólasteikur og gómsætir eftirréttir koma þér í sannkallað jólaskap. Pantaðu borð núna og njóttu þess að taka forskot á jólasæluna. Hátíðarmatseðill 3ja rétta: 4.900 kr. 5 rétta: 6.900 kr. Hlaðborð: 5.900 kr. (fyrir hópa, samkv. pöntun) JÓLIN KOMA TIL ÞÍN FRÁBÆR VÍN Í ÚRVALI lÍs en ku ALPARNIR s BRETTAPAKKAR OG HJÁLMAR BRETTA- OG SKÍÐAHJÁLMAR Verð frá: Kr. 9.995 Pakki 1 TILBOÐ: Kr. 37.789 Bretti 110 Skór 35 / 37 JR. bindingar Pakki 2 TILBOÐ: Kr. 49.995 Bretti 125 til 165cm Skór 39 til 46 SR. bindingar Faxafeni 8, 108 Reykjavík, Sími: 534 2727, www.alparnir.is Góð gæði Betra verð FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN MEIRI HALLDÓR BALDURSSON Meiri Vísir. Deildu Vísi með öðrum. Þeir sem setja „like“ við Vísi á Facebook geta unnið óvænta vinninga í hverri viku. m.visir.is Fáðu Vísi í símannog iPad!
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.